Loksins kom ég mér í það að gera myndasyrpuna um FYLKIR UMHVERFIS HNÖTTINN Á 365 DÖGUM. Þessi hugmynd kom upp hjá okkur félögunum mér og Grindavíkur Badda um 2 vikum áður en lagt var af staði í ferðina, en við vorum að fara sem skiftinemar til Nýja Sjálands og höfðum keypt okkur flugmiða umhverfis hnöttinn. Baddi hafði einhverntíman látið prjóna á sig lopapeysu í Grindavíkurlitunum, svo forljóta að engum manni nema honum hefði dottið í hug að vera í henni nema honum, og meira að segja á þjóðhátið í Eyjum. Ég gat því ekki verið minni maður og lét í snarhasti prjóna á mig lopapeysu í Fylkislitunum og með Fylkismerkinu á. Þar sem Örn Hafsteins hafði sent mér Fylkisfána undir lok síðasta tímabils hugðist ég vera flottari en hann og ferðast með peysu, húfu og fána. Þetta gat hann ekki sætt sig við og lét senda sér með hraðpósti Grindavíkurfána til að jafna mig út. Ferðin hefur verið sérstaklega skemtileg og gaman að horfa á andlit fólks viðsvegar um heiminn þegar við klæðumst þessum þykku og áberandi lopapeysum. Einna mesta athygla vakti þetta í Hollywood og á Fiji eyjum þar sem var um 30-35 stiga hita og því furðulegt að sjá nokkurn mann svona mikið klæddann.

 

Til þessa hefur Fylkispeysan komið á eftirfarandi staði:

Árhús, Danmörk

New York, USA

Halifax, Canada

Yarmouth, Canada

Shellburn, Canada

Toronto, Canada

Los Angeles, USA,

Las Vegas, USA

Hoover Dam, Nevada, USA

Nevada eyðimörkin, USA

Nadi, Fiji eyjum

Beachcomber Island, Fiji eyjum

Aucland, Nýja Sjáland

Tauranga, Nýja Sjáland

 

Áður en fyrir líkur mun stöðunum fjölga til muna, en ætlunin er að fara að einhverju leiti í gegnum Nýja Sjáland, Ástralíu, Indonesíu og Asíu á leiðinni heim á næsta ári.

 

Hér eru myndirnar, eða úrval þeirra, sem teknar hafa verið.

 

Bestu kveðjur frá Nýja Sjálandi.

 

Addi Lúðviks

www.ginfan.com

fylkismadur@hotmail.com