EYJABLIKK

 

Þar sem bróðir minn hann Stefán Blikkari hefur verið duglegur að gefa okkur félögunum, mér og  Badda, góð og falleg höfuðföt þá kom upp sú hugmynd hjá okkur að gera sérstaka síðu sem heitir EYJABLIKK Í ÚTLÖNDUM.

Það er hugmynd okkar að taka myndir af höfuðfötum eða öðrum merktum fatnaði frá Eyjablikk á hringferð okkar um heiminn. Þessi hugmynd vaknaði þegar við vorum í heimsókn okkar til Írisa Lóu í Álaborg og vorum við félagarnir þá báðir með þessi höfuðföt á okkur. Eftirfarandi verður því ferðasaga fatnaðar merktum EYJABLIKK um heiminn.

 
  4. október 2003

Þetta er fysta myndi sem er tekin en hún er tekin í Álaborg fyrir framan göngugötuna þar. Þetta er laugardaginn 4. Oktober 2003

     
  4. október 2003

Hér  húfan stödd í smábæ sem heitir Hune og er um 20 mínútna keyrsla norðvestur af Álaborg. Þetta er að kvöldi 4. Októbers 2003. Fyrirsætan er Amma vinkonu okkar, hennar Írisar Lóu.

     
  11. október 2003

Hér er svo komið á landsleikinn fræga við Þjóðverja í Hamborg þann 11. október 2003. Hér var gífurleg stemming þrátt fyrir að leikurinn hafi tapast 3-0. Leikvöllurinn tekur 55.500 manns í sæti og þar af voru um 53.500 Þjóðverjar. Leikvöllurinn er einn af þeim glæsilegri sem nokkur okkar hefur séð, byggður úr stálgrind og steypueiningum.