|
Rétt þegar ég var að byrjað að muna eftir mér þá fluttum við í Árbæinn og var ég þar fram yfir þrítugs aldurinn. Það er því sjálfgefið mál að ég er FYLKISMAÐUR í húð og hár, enda félagið ekki nema tæplega 1ns árs gamalt þegar ég flyt í FYLKIS hverfið. Maður hefur því fylgst með uppbyggingu félagsins og aðstöðu þess frá grunni allt frá því að malarvöllurinn góði var byggður og fram til toppbaráttunnar í efstu deild þessi árin, þó ekki hafi þetta endað vel þetta árið.
Eftir árbæjarskólann fór ég í Iðnskólann og ætlaði að gerast tölvunarviðgerðarmaður mikill. Það vildi þó ekki betur til en það að ég féll í Rafmagnsfræðinni það árið (náði reyndar öllu öðru) þannig að ég áttaði mig á því að þetta ætti ekki alveg við mig. Þá átti að hætta í skóla, en þar sem ég bjó í foreldrahúsum var ég “neyddur” til að fara í Versló, þar sem þar var hægt að taka verslunarprófið sem tók einungis 2 ár. Það var reyndar ekki um marga aðra möguleika að ræða þar sem mér var skýrt greint frá því að færi ég á vinnumarkaðinn þyrfti ég að fara að borga heim.
Eftir verslunarprófið fór maður í ýmsa vinnu í nokkra mánuði eða þangað til að ég hóf störf hjá Íslenska Verslunarfélaginu þann 10. febrúar, 1984. Þar starfað ég við sölustörf í 17 ½ ár eða þangað til að ég flutti hingað til Danmerkur til að hefja nám í byggingafræði við Tækniháskólann Vitus Bering í Horsens.
|