Ginfan.com

About me

Ég er fæddur þann 11. febrúar 1964 einhverntímann um það bil um kl. 01.30 að nóttu til. Ég var það æstur að komast í heiminn að ég leyfði mömmu bara að ganga með mig í maganum í um 7 mánuði. Ég var einhver 10 merkur (2.500 gr) og 49 sm.

Rétt þegar ég var að byrjað að muna eftir mér þá fluttum við í Árbæinn og var ég þar fram yfir þrítugs aldurinn. Það er því sjálfgefið mál að ég er FYLKISMAÐUR í húð og hár, enda félagið ekki nema tæplega 1ns árs gamalt þegar ég flyt í FYLKIS hverfið. Maður hefur því fylgst með uppbyggingu félagsins og aðstöðu þess frá grunni allt frá því að malarvöllurinn góði var byggður og fram til toppbaráttunnar í efstu deild þessi árin, þó ekki hafi titillinn lent hjá okkur ennþá.

Eftir Árbæjarskólann fór ég í Iðnskólann og ætlaði að gerast tölvunarviðgerðarmaður mikill. Það vildi þó ekki betur til en það að ég féll í Rafmagnsfræðinni það árið (náði reyndar öllu öðru) þannig að ég áttaði mig á því að þetta ætti ekki alveg við mig. Þá átti að hætta í skóla, en þar sem ég bjó í foreldrahúsum var ég “neyddur” til að fara í Versló, þar sem þar var hægt að taka verslunarprófið sem tók einungis 2 ár. Það var reyndar ekki um marga aðra möguleika að ræða þar sem mér var skýrt greint frá því að færi ég á vinnumarkaðinn þyrfti ég að fara að borga heim.

Eftir verslunarprófið fór maður í ýmsa vinnu í nokkra mánuði eða þangað til að ég hóf störf hjá Íslenska Verslunarfélaginu þann 10. febrúar, 1984. Þar starfað ég við sölustörf í 17 ½ ár eða þangað til að ég flutti hingað til Danmerkur til að hefja nám í byggingafræði við Tækniháskólann Vitus Bering í Horsens.

Undor lok skólans ákváðum við nokkrir að fara til Nýja Sjálands sem skiftinemar til að klára lokaverkefnið okkar. Það var því keyptur flugmiði hringinn í kringum hnötinn og lagt í mikið ferðalag. Eftir að skóla lauk var ég mér farið að líka svo vel við staðinn að ég ákvað að flytja hingað niðreftir. Ég gekk því á milli fyrirtækja og leitaði að vinnu, nokkuð sem ég hef ekki þurft að gera síðan ég var 18 ara gamall. Ég endaði með að fá vinnu hjá Mainzeal sem er verkstjórnunarfyrirætki. Þar starfaði ég bið byggingastjórnun í ýmsum verkum í eitt ár en þá var mér boðin vinna Hjá WORKS Infrastructure sem er stæðsti verktaki á NZ með um 3.000 manns í vinnu. Í dag er ég að byggja 12 dælustöðvar í skólpverkefni. Margar þeirra eru undir sjávarmáli og því mikil reynsla að fást við þetta og þær aðstæður sem skapast við að byggja undir vatnsmáli.

Eftir þetta verkefni flutti ég til Auckland til að byggja brú og breikka veg ennúna bý ég í Ástralíu og er að vinna við byggingu Vatnshreinsistöðvar í coffs Harbour, sem er í New South Wales.

Hægt er að ná sambandi við mig á eftirfarandi hátt:

E-mail & MSN: fylkismadur@hotmail.com
Skype: ginfan
GSM: 0061 488 496 497

Contact Me

Andreas Ludviksson's Facebook profile

Andreas Ludviksson on Twitter

Old Archives
Lifestream
  • Facebook Syndication Error
  • Fejl: Facebook Syndication
  • Fejl: Facebook Syndication
  • Fejl: Facebook Syndication
  • Dani Garcia likes your photo.
Visits