WHAAASSSUUUP
 |
|
|
|
Miðvikudagurinn 25. Október 2006
ALLT ENDAÐI ÞETTA MEÐ ÓSKÖPUM |
Þá er maður loksins kominn til baka. Eins
og ég gat í commentinu hérna að neðan þá var ég fastur í
Wellington langt fram eftir kvöldi og var fluginum mínu
breytt 7 sinnum og því voru 6 flug sem ég var bókaður í
felld niður. Sagan er í stuttu máli svona:
6.40. Legg af stað úr húsi í Nelson
7.20. Flýg frá Nelson
7.55. Lendi í Wellington. Síðasta innanlandsfluvél til
að lenda þar áður en fluvellinum var lokað fyrir öllum
vélum nema þotum.
8.40. Fluginu til Tauranga aflýst og ég endurbókaður í
flug kl.10.35 til Tauranga.
10.35. Fluginu til Tauranga aflýst og ég endurbókaður í
flug kl. 12.35 til Tauranga.
12.35. Fluginu til Tauranga aflýst og ég kanna aðrar
leiðir og er enurbókaður í flug til Auckland kl. 15.00
með Boing 737 þotu. Átti ekki að vera vandamál þar sem
þotur gátu ennþá lent.
15.00. Fluginu til Auckland aflýst þar sem þotur gátu
ekki lengur lent. Síðasta þota til að komast í burtu var
fór kl. 14.00 en fleiri komust ekki inn. Endurbókaður á
flug til Auckland kl. 16.00.
16.00. Fluginu til Auckland aflýst þar sem næsta þota
komst ekki heldur inn. Endurbókaður kl. 17.00 til
Auckland.
17.00. Fyrsta þotan lendir aftur og er það þotan mín.
jibíííííí. Ég var kominn í flugvélina kl. 17.30 og allir
klárir þegar flustjórinn tilkynnir seinkun vegna
yfirbókunar og færslu á farþega í annað flug. Kominn í
loftið um 18.15. Flugið sem venjulega tekur um
klukkutima tók ekki nema 40 mín vegna mjög mikills
meðvindar.
19.40. Komst upp í flugél á leiðinni til Tauranga. Enn
vantar 3 farþega sem voru í næstu vél á eftir mér frá
Wellington. Þarf að bíða til kl. 19.55 til að komast í
loftið.
20.30. Lenti loksins í Tauranga eftir 14 klukkutíma
ferðalag, lengra en hefði tekið mig að komast til Asíu
og bóka mig inn í næsta flug til Evrópu.
20.40. Ekkert helv. megrunarkjaftæði í kvöld og mættur á
KFC til að kaupa feitan málsverð.
Allavega þá komst ég heim og er orðinn
FORSETI RTNZ. Mikil vinna framundan í því næsta árið. Er
með mjög mikið af myndum og videoum frá helginn og
FALLHLIFASTÖKKINU sem ég fór í í Picton. Er of þreyttur
eftir helgina til að vinna í því núna. Sennilega enginn
tími fyrr en á sunnudaginn en vona að mér takist þetta
þá. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 16. Október 2006
ÞÁ ER ÞAÐ SUÐUREYJAN |
Ennþá er alltof mikið að gera til að
uppfæra almennilega. Ég skrapp til Auckland um helgina
óvænt til að hitta Pedro og Sjóliðsforingjana. Að
sjálffsögðu var þetta mikið og skemtilegt party sem
endaði á næturklubbum Auckland og gistinug á Backpacers
þar í bæ. Þreytan sagði líka til sína á sunnudeginum og
sem betur fer þurfti ég ekki að keyra til baka.
Á fösgudagin fundust síðan fornmunir á svæðinu hjá mér
og í þetta skiftið voru þetta glerflaska frá fyrsta
áratug 19. aldar og svokallað HANGI frá síðari hluta
18.l aldar. Hangi er Máríta siður mikill þar sem hin
ýmsu matarkyjar eru soðnar, líkt og okkar þorramatur.
ekki er allur þessimatur girnilegur en eflastu finnst
sumum hrútspungar og sviðahusar álíka lítið spennandi.
Þetta hangi sem fannst voru senm sagt steinar sem
notaðir vour til að elda Hangi. Ekki var það nú
merkilegra en það en allvega þá er hægt að skrá þetta
sem furnmunastað.
Ég er að fara núna til Nelsi á suðurheyjunni á morgunog
ætlumvið að skoða þann hluta eyjarinnar og síðan er það
Round TAble árshátiðin um heglina þar sem maður getur
formelga farið a að kalla sig forseta aftur, og núna
forseta RTNZ. Myndir af Auckland verða að bíða þangaið
til í næstu viku, því miður en það verður þá bara
meira að skoða þá. þangað til eftir helgi eigiði góðar
stundir.
Pictures next week from Auckland. |
|
|
|
|
|
|
Miðvikudagurinn 10. Október 2006
ÞESSI LETI ER VARLA HÆGT |
Það ætlar að dragast að setja inn grein
um Ástralíuferðina sem ég ætlaði að skrifa um 2 dögum
eftir að ég kom aftur hingað heim en svona er þetta
þegar mikið er að gera. Ég held að það sé laaaangbest að
skjótast inn á
Síðuna
hjá Perlu og lesa greinina hennar um þessa ferð,
enda var hún með mér hverja stundu í þessu góða landi.
Annars gengur allt sinn vanagang hérna eins og venjulega
með endalausum vandræðum og fleiru í gangi í vinnunni og
núna þarf ég líka að fara að læra rafmagnið til að vita
hvað er í gangi svona rétt eins og ég hafi haft nægan
tíma aflögu. Ég held að ég sé alveg gersamlega kominn
uffyrir haus með það sem ég er að gera og sennilega bara
spurning um það hvenær ég klúðra einhverju vegna
tímaleysis. Jæja, við sjáum hvað setur. Þetta hefur
reyndar allt saman sína leið til að reddast þegar upp er
staðið.
Næsta vika fer að mestu í frí hjá mér, en það var ég
búinn að bóka fyrir langalöngu til að fara á aðalfund
Round Table NZ, en ég er að taka við sem forseti þeirrar
hreyfingar um þarnæstu helgi. Í leiðinni mun ég ferðast
um norðurhluta Surðueyjarinn og er ég þá búinn að sjá
alla hluta Nýja Sjálands, þó að ekki hafi ég komið til
allra bæja eða fjalla.
Jæja, Round Table fundur framundan í kvöld og tími til
að þjóta. Hafið það sem allra best. |
|
|
|
|
|
|
Miðvikudagurinn 4. Október 2006
TILRAUN TIL AÐ STELA FYLKISFÁNANUM |
Ennþá
er ég að reyna að gefa mér tima til að klára að skrifa
greinina en ég er sífellt truflaður af örurm skemtilegri
verkefnum. Þetta kvöldið ákvað ég að setja saman video
af ferðinni að heimsækja kengúrurnar í Sydney á
Laugardaginn síðastliðinn. Ég get með sanni sagt að það
hafi verið gerð heiðarleg tilraun til að stela
fylkisfánananum. Já hvaða Kengarúa gerir svona lagað.
(eða hvernig sem það er skrifað) Ég mun allavega skrifa
meira síðar ení þetta skiftið þá er hægt að skoða
video af
þessu hérna. |
|
|
|
|
|
|
Mánudagurinn 2. Október 2006
KOMINN |
|
Þá er ég kominn til baka og þetta var
geggjuð ferð. Ótrúlegt að sjá óperuna og labba upp á
Hafnarbrúnna. Ég segi meira frá þessu á morgun en í
þetta skiftið læt ég nægja að setja inn
myndir frá ferðinni. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 26 september 2006
FARINN |
|
Ég ætlaði að vera voða duglegur að skrifa
áður en ég færi til ástralíu en svo er ekki. Loksins
búinn að klára Dælustöð 2 go vitið hvað. það sést um 5%
af byggingunni þegar búið er að fylla alltí kringum
hana. GRRRR. eftir 2ja mánaða streð. Allavega sumarið
virðsti vera komið með 22ja stiga hita og sól, Ég er
farinn til Sydney. Í Sydney skemmti ég mér trallalala,
trallalalala. Over and out. myndir og fleira þegar ég
kem til baka. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 19 september 2006
NÚ FANN ÉG FORNMUNI OG ÞAÐ ER EKKERT NEMA VESEN |
Allt
gerist nú hérna í kringum mig þessa dagana og ekkert af
því viðist vera af betra taginu. Ég fékk annað gengi af
mönnum til að byggja dælustöðvarnar og byrjuðum við í
gær að grafa og setja niður dælustöð númer 6. Þar sem
þetta var merkt sem staðsetning þar sem mögulega
fornmuni var að finna máttum við ekki hefja gröft nema
að fornleifafræðingurinn mætti á staðinn. Ekkert fannst
í fyrsta metrinum þannig að við vorum bjarsýnir á að
eitthvað gengi loksins um upp. En viti menn, það var
varla búið að grafa í nema um klukkutíma þegar
"fornmunir fundust í jörðinni og þurfti því að stöðva
allar framkvæmdir. Við ákváðum eftir um klukkutíma bið
að reyna að grafa fyrir næsta mannopi sem var í um 2ja
metra fjarlægð tilað athuga hvort að hæt væriað halda
áfram þar en viti menn. Við fundum fleiri fornmuni og
þurftu að stöðva allar framkvæmdir í þetta skifti.
Ótrúlegt. Þegar þið lesið þetta þá haldiði eflaust að
hérna sé um merka hluti að ræða svo sem mennskar leyfar
eða potta eða pönnur en NEI, ekki aldeilis. Þetta er
skeljar, svo smávaxnar að varla er hægt að sjá þær. Í
dag er búið að merkja staðinn sem fornleifar þar sem í
framtíðinni á eftir að grafa með leikfangaskólflu og
litlum kústi til að greina þessir smávöxnu skeljar.
Ekkert er að hægt að gera nema að fornleifafræðingurinn
staðfesti það eða sjái hvað er í gangi fyrst og tefur
þetta allar framkvæmdir.
Ekki bætti úr skák að þegar ég ætlað að senda strákana í
næstu dælustöð var verið að endurhanna vegna nýrrar
staðsetningar og næsta stöð sem ég vildi byrja á var
ekki klár vegna aðgengis.
Jæja, Það bjartasta þessa stundina er tilhlökkunin við
að fara til Ástralíu í næstu viku. Búið er að kaupa enn
eina túristaferðina í Sydney en hún er í Miklagljúfur
þeirra Ástrala í rútum, bátum og lestum ásamt nánum
kynnum við Kóalabirni og Kengurur. |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 10 september 2006
NÚ ER MAGNI FRÆGAR EN BJÖRK |
Það er með miklum ólíkindum að í hvert
skifti núna sem maður talar við fólk sem veit hvaðan
maður er þá er það fyrsta semj fólk segir að Magni sé
frábær. Já Það þekkja allir Magna í dag. Það eru líka
allir sammála því að hann hefur langbestu röddina
íþessari keppni en það eru líka flestir sammála að hann
henti ekki þessir tegund af tónlist sem er meira öskur
en söngur. Þó að ég styðji hann heilshugar þá held ég að
Toby hinn Ástralski muni vinna þetta.
Þá er Ástralía öll á hreinu, eða þar um bil. Ég, sem hef
venjulega verið hrifnastur af því að mæta á flugvöllinn
í framandi landi án hótels eða nokkurrar annarar
skipulagningar, er búinn að skipuleggja ferðina frá A-Ö,
enda er maður ekki einn að ferðast í þetta skiftið.
Hótelið er klárt og er á besta stað í miðbænum. Búið er
að kaupa miða í hafnarbrúar klifrið við sólsetur á
föstudeginum og í stóra skoðunartúrinn í Óperuhúsinum á
föstudgasmorgninum. Haldi ekki meira að segja að ég hafi
keypt miða á Óperettu á Laugardagskvöldinu. Mér fannst
ekki annað hægt en að sjá óperu í frægasta Operuhúsi í
heimi, Óperuhúsinu í Sydney. Munum við sjá Operettu sem
heitir
The Pirates of Penzance. Fleira
verður örugglega gert og skipulagt þegar á staðinn er
komið.
Þá er vinnan loksins farin að vera smá jákvæð á allavega
einum byggingastaðnum mínum. Búið er að vera að vinna á
allt að 5 stöðum í einu hjá mér og því soldil yfirferð
að fyljgast með þessu. Dælustöð 2 er loksins að komast
undir stjórn og erum við búnir að ná t0ökum á vatninu og
búnir að leggja hart lag til að byggja tankiana á. það
er stór sigur, enda búið að taka um 2 mánuði að komast á
þetta stig með óheyrilegum aukakostnaði. Dælustöð 5 er
nýjasta vandamálið þar sem jarðlög á einni hliðinni
virðist ekki vera nógu traust fyrir ankerin sem halda
eiga stálþilinum eftir að grafið er. Við erum því að
skoða nýjar lausnir og einfaldasta lausnins er að reka
niður lengri og sterkari stálþil niður fyrir utna hin
stálþilin til að reyna að forðast að setja
stálstyrkingar eins og á dælustöð 2. Þetta ætlar
allavega allt að vera eitt vandræða verkefni en því er
ekki að neita að lærdómurinn er gríðarlegur hjá mér.
Næsta stig er að koma rafvirkjunum í gang or er það enn
einn hlutirnn sem ég hef ekki mikið vit á.
Dælustöðvarnar eru tengdar með ADSL kerfi til að hægt sé
að stjórna þessu frá einum stað og þarf ég víst að setja
mig inn í slík mál núna. ÚFFF. Allavega. mikið að gerast
og vorið er komið. Farið að hlýna ringingin farin að
minnka. |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 03 september 2006
ÁSTRALÍA - LAND No. 26 |
Þá
er maður búinn að ganga frá flugi og hóteli til Sydney í
Ástralíu. Verður farið 28. September og verið til 1.
Október. Ástæðan fyrir því að Sydney varð fyrir valinu
er sú að mig hefur alltaf langað til að skoða
Óperuhúsið og í síðari tíma að
ganga upp á topp á hafnarbrúnni. Örugglega er mun
meira hægt að gera þarna en þetta tvennt er það sem efst
er í huganum.
Annars er vinnan ennþá verulega erfið þó að 1-2 dagar í
viku séu eðeins bjartari en hinir. Síðasta vika fór í
það að setja ankeri í gegnum stálþilin og féllu þau öll
á þrýstiprófum. Það er því búið að vera spenna í lofti
við að reyna að finna aðferðir til að ná haldi í
jarðveginum þannig að þetta falli ekki allt saman um
sjálft sig. Á endanum náðist það eftir að hafa rekið þau
18 metra inn í staðinn fyrir 9 metra. Hin dælustöðin er
að komast í gang og búið að sjóða alla styrktrabita til
að halda stálþilunum og var prufað að grafa niður á 6
metra dýpi sem er um 3 1/2 meter undir sjávarmáli. Var
stálkassi rekinn niður og grafið inna úr honum. Ekki
tókst það vel og endaði með því að jörðin bókstaflega
gleypti það sem í stálbúrið var sett og hrundi þetta því
allt um sjálft sig. Það þarf því að ganga lengra og
setja meiri ankeri til styrktar og grafa dýpra. En, það
er allavega komin ný vika með nýjum ævintýrum og svo fæ
ég 2ja daga frí í lok þessa mánaðar og veitir ekki af.
Annars fékk ég meil frá svæðistjóranum mínum vegna
mikilllar internetnotkunar í vinnunni. Í því voru
allskonar útskýringum um framlegð til vinnnunnar og hvað
mikill tími tapaðist við að nota internetið. Aðalega
voru þetta skoðanir á 3 síðum á meðan matartíma mína
stendur sem er um 10-15 mínútur. Kom í ljós að ég hafði
notað netið í 17 mínutur og 52 sekundur að meðaltali á
dag en notkun má ekki fara yfir 7 mínutur og 53
sekúndur. Ég er því kominn á svartan lista hvað internet
notun varðar. Reyndar er um 3/4 af þessum tíma sem ég
notaði tími sem ég var ekki einu sinni á internetinu,
enda vanur að hafa ADSL og vera með internetið tengt
allan tímann. Ég bara vissi ekki að maður mætti ekki
hafa internetið tengt allan tímann.. BULL OG KJAFTAÆÐI.
Allavega ég er með nokkrar myndir frá vinunni sem ég set
inn á næstu dögum.
PS. VORIÐ ER KOMIÐ MEÐ BLÓM Í HAGA OG 18 STIGA HITA OG
SÓL OG SÓLARVÖRN TILBÚINN TIL NOTKUNAR. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 22. ágúst 2006
ÞAÐ BESTA OG VESTA AF HELGINNI |
Þar
sem klukkan er orðin 10 að kvöldi og löngu komið fram
yfir minn svefntíma þá verður þetta stutt í þetta
skiftið. Bara það besta og versta
ÞAÐ BESTA
Þreif nýja bílinn minn.
Fór til Auckland í boði Taylor Brothers að sjá All
Blacks vs Wallabies (ástralía) í Rugbý
Við unnum leikinn þrátt fyrir erfiðan fyrri hálfleik.
Hitti Pedro bæði fyrir leik, í hálfleik og eftir leik.
Stoppaði 2x á barnum þar sem ég fékk minn fyrsta bjór í
Nýja Sjálandi. Red Fox Tavern. Alger Búlla en gaman
aðkoma þangað.
Skemmti mér vel allan daginn, allt kvöldið og fram á
morgun.
ÞAÐ VERSTA
Var þunnur á Sunnudeginum
Fór í vinnu á Sunnudeginum
Loki í heitavatnstankinum gaf sig og orsakið flóð á
ganginum á sunnudagsmorgninum.
Lokinn var ekki fáanlegur þanngi að ég var
heitavatnslaus frá á þriðjudagsmorgunn.
Klessti nýja fína bílinn minn á Mánudagsmorgninum. GRRRR
Verð að segja þetta aftur, KEYRÐI Á STAUR SEM ÉG SÁ EKKI
ÞEGAR ÉG BAKKAÐI ÚT ÚR STÆÐI.
Fram brettið ónýtt.
MYNDIR/PICTURES af helginni hérna. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 15. ágúst 2006
EKKI ALVEG AÐ MEIKA ÞAÐ ÞESSA DAGANA |
|
Þetta ætlar bara að verða erfiðara og
erfiðara þangað til það fer að batna. Ég lofaði að setja
inn myndir í síðustu viku og gerði það svo sannarlega.
Það eina sem vantaði upp á var að setja link inn á þær
þannig að almeningur gæti skoðað þær. Sá
linkur er hérna og njótið sem best. Helgin var góð
sem slík. Við ákvaðum að fara á Rugby leik á laugradginn
á milli okkar liðs, sem er
Steamers. Bauð ég því vinnufélögunum og fyrrverandi
vinnufélögunum í heimsókn í eftirmiðdaginn þar sem
fenginn var sér bjór og pulsur til að hita upp fyrir
leikinn. Þetta endað með því að vera einnleiðinlegasti
Rugby leikur semég hef farið á og enduðu sumir bara á
barnum í síðari hálfleik, enda bar og matsölustaður
innan vallarinns. Það verður svo annar rugby leikur á
laugardaginn þar sem ALL BLACKS eru að spila á móti
Wallabies sem er Ástralska landsliðið. Fékk ég
boðsmiða frá einum byrgjanum okkar og verður farið með
rútu um hádegi frá Tauranga til Auckland á Eden Park en
hann rúmar rúmlega 60.000 manns. stoppað verður á Red
Fox tavern sem var fyrsti pöb sem ég fór á á leiðinni
til Tauranga og þar fékk ég fyrsta bjórinn minn í Nýja
Sjálandi. Eftir leik verður haldið heim á leið í rútunni
og eflaust verður það löng og þreytt leið. Jæja, ekki
meira í bili og ekki orð um vinnuna meira í bili. Ekki
mikið sem gengur upp þar þessa dagana en það kemur sumar
eftir 2-3 mánuði og þá kannski er betri tíð í vændum. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 8.. ágúst 2006
ALGERT KLÚÐUR OG BRÁÐUM FLEIRI MYNDIR |
Ég er þessa stundina að setja inn myndir
í tölvuna frá síðust 4 vikum eða svo. Ég reikna með að
þær komið á netið síðar í þessari viku. Innfalið í þeim
myndum er nokkrar frá síðustu viku í vinnunni sem var
verulega slæm, ennda mikið klúður í gangi hjá mér. Það
fór allt í baklás á föstudaginn þar það sprakk vatnsæð
við Dælustöð 2 sem orsakaði það að festingarnar sem
halda stálþilunum gáfu sig að hluta. það var því allt
sett á stopp á meðan athugað var hvað hefði farið
úrskeiðis. Líklega er það þó sú staðsetning sem við
dældum vatninu á úr grunninum sjálfum en það lak niður í
jörðin og veikti þar af leiðandi festigetu ankeranna en
í staðinn fyrir að styrkja þilið með stálbitum á eru
festingar boraðar allt að 6 metra inn í jörðina með
sérstök ankeri á endanum sem halda öllu í skorðum.
Þessi mistök eða sprungna vaatnsleiðsla hefur hins vegar
orsakað að við þurfum að sjóða stálbiða inn á þilin til
stryktar auk þess að setja vatnsdælur utan um þilin sem
kosta okkur um 25.000 kr á dag. Ég allavega set myndir
af þessu inn á netið síðar í vikunni. |
|
|
|
|
|
|
Fimtudagurinn 25. júlí 2006
ÞVÍLÍKUR DAGUR - STRESS STRESS STRESS |
 Það
er órúlegt hversu fljótt veður skipast í lofti. Fyrir 2
mánuðum var lítið að gera í vinunni hjá mér en þetta
hefur farið svona stigmagnandi. Núna eru fleiri og
fleiri svæði að komast í gang hjá mér og því að verða
meira og meira að halda utanum. Dagurinn í dag var sá
laaang versti til þessa, enda er ég að sjá núna um 3
svæði og það 4ða bætist við á mánudaginn. Á milli
þessara svæða eru um 12 km þannig að þetta er þónokkur
akstur alla daga.
Nýjasta svæðið er dælustöð 2 sem er stsaðsett niður við
sjóinn og því að mestu leyti undir sjávarmáli. Eftir að
hafa merkt vatnsæðar og rafmagn í byrjun vikunnar þá var
byrjað að reka niður stálþilin í morgun og það byrjaði
svo sannaralega ekki vel. Þeir settu eitt þeirra í
gegnum vatnsæð sem endilega þurfti að vera þar sem hún
átti ekki að vera samkvæmt teikningum. Það fóru því um 4
tímar að redda þessu sem kostuðu $300 á klst í biðtíma (
það eru laun um 20 verkamanna á klukkutímann hérna
niðurfrá).
Á sama tíma var verið að steypa 4 botnplötur í
aðaldælustöðinni þannig að ég missta af því að taka
verki út og varð að treysta því að verktakarnir hafi
staðið við gæðastaðalinn og gert þetta almennilega. Að
því loknu var haldið í millidælustöðina þar sem við
þurftum að steypa sökkla undir forsteyptar
einingar sem vega 22 tonn hvor. Á staðnum er 80 tonna
krani sem mun verða gjörsamlega á nippinu við að að hýfa
þær í staðsetningu. Venjulega er miðað við 80% sem
öryggisamark á krönum en hann mun verða í 100% getu
þegar þetta á sér stað.
Allavega þá var þetta allt saman að mestu yfirstaðið
undir 3 en þá tók við fundur og fundir fram yfir kl 5
þangað til nóg var komið og ég hélt í búðina að kaupa
bjór og snakk en við fáum okkar alltaf nokkra eftir
vinnu, í vinnunni á fimtudagskvöldum. Það er svo sem
ekki í frásögur færandi nema að þegar ég er að keyra inn
á svæðiskrifstofurnar hringir síminn og það er stálþilja
verkstjórinn. Og hvað haldiði. HANN GRÓF Í SUNDUR SÖMU
VATNSÆÐIN AFTUR. JÁ AFTUR. Ótrúlegt en satt. Þeir vour
reyndar að hjálpa okkur við að færa rafmagnlínu sem var
fyrir okkur en mér er alveg sama. Það tók því um 2 tíma
að fá samam fyrirtækið og kom í morgun til að gera við
leiðsluna og tók það í þetta skiftið 5 mínútur eftir 2ja
tíma bið og mikið vatnsflóð. Það vildi mér þó til happs
að strákarnir voru ennþá á skristofunn að drekka bjór
þegar þetta var allt afstaðið um 7 leytið í kvöld. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 18. júlí 2006
MOUNT COOK OG FERÐALAG Á SUÐUREYJUNA |
Um helgina skellti ég mér í afmæli til Stu
Jackson sem er varaforseti RTNZ á Suðureyjunni. Hann býr
í
Timaru sem er um 2 tíma fyrir sunnan Christchurch,
stæðstu borg suðureyjarinnar. Þetta varð hin
skemmtilegasta ferð, enda dagskráin ákveðin eftir
hendinni. Perla kom með mér niðreftir og ákvaðum við að
taqka bílaleigubíl á Laugardeginum til að skoða
umhverfið. Ákveðið var að skella sér inn í landið og
skoða
Mount Cook, sem er hæðsta fjall þeirra
NýSjálendinga, 3.754 metrar, og hefur það tekið mörg líf
og limi þeirra sem reynt hafa að klífa það. Þessi ferð
inn í landið var í einu orði sagt frábær og NýSjálenskt
landslag kemur manni stanslaust á óvart. Ég var mjög
hrifinn af landslaginu í kringum Queenstown og Milford
Sound þegar gömlu hjónin komu hingað í heimsókn en þetta
var ekki síðra. Á leiðinni til baka skoðuðum við svo
nokkrar raforkuvirkjanir en það er mikil keðja þeirra
frá hæðsta vatni og niður í það lægsta. Ég held að það
hafi verið 6-8 virkjanir á leiðinni til baka. Ekki
skemmdi fyrir að í einni
aðrensluánni var laxeldistöð og
gat ég keypt mér graflax þar. Ekki var um neitt annað að
ræða en að kaupa pakkann og var afgreiðslukonan mest
hissa á því að ég vissi hvað graflax var, enda ekki
algeng vara utan skandianvíu.
Um kvðldið var svo skellt sér í afmælið og var það með
algerum KIWI stæl. Varðeldur úti, grillað dádýrakjöt,
nóg af bjór og víni, hrátt umhverfi og mjög lítið af
stólum. Að sjálfsögðu hitt maður nokkra RT menn og
endaði svo á djamminu fram eftir morgni (að ég held),
enda lokuðu allavega 2 staðir á eftir mér.
Sunnudagurinn var sov frekar langur og byrjaði á
rútuferð til Christchurch en það er um 2 1/2 tíma ferð í
slíku farartæki. Rútan var þröng og frekar lítil en það
bjargaði málinu að í henni var DVD og sjónvarp. Það var
því horft á Wil Wild West á leiðinni með Will Smith
ásamt einverju öðru. Vi ðskelltum okkur svo í miðbæ
Christchurch, enda var 3ja tíma bið eftir fluginu okkar.
Ekki varð það þó svo gott að við kæmust heim á réttum
tíma enda klukkutíma seinkun á fluginu og var það til
þess að Perla missti af sínu flugi frá Wellington til
Nelson. Um leið og við komun að hliðunu var vélin að
keyra í burtu. Tæpara gat það ekki verið. Það var þó
flug 1 1/2 tíma seinna enda er þetta eins og loftbrú til
Suðureyjarinnar. Við vorum því komin á heimilin okkar á
sinnhvorri eyjunni um 8leytið á Sunndagskvöldinu eftir
rúmlega 9 tíma ferðalag. Þetta er bara eins og að fara
frá Íslandi til USA. |
|
|
|
|
|
|
Miðvikudagurinn 12. júlí 2006
ROCKSTAR SUPERNOVA - MAGNI ER MÁLIÐ |
Hérna
á Nýja Sjálandi var byrjað að sýna í síðustu viku þátt
sem heitir
RockStar Supernova. Er þetta ný sería af þættinum
frá því í fyrra þar sem INXS var að leyta að nýjum
söngvara. Vegna velgengi þess þáttar hafa þeir ákveðið
að skella saman nýrri hljómsveit sem heitir Supernova,
þar sem meðal annara er Tommy Lee, fyrrverandi hennar
Pamelu fullorðinsmyndastjörnu.
Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að
í upphafi fyrsta þáttar var mynnst á Reykjvavík. Ég
taldi mig hafa misskilið þetta eitthvað og eyddi ekki
frekari hugsun í málið. En viti menn. Í miðjum þætti var
kynntur söngvari nokkur til sögunnar að nafni
MAGNI og var hann sagður frá Íslandi. Já ef eitthvað
er MAGNAÐ þá er þetta MAGNAÐ eins og Baddi segir. Ég trúði þessu
ekki en þetta reyndist satt, enda var hann beðinn um
þýðingu á ensku orði yfir á íslensku og kláraði hann sig
af því með mikilli snilld. Hann var beðinn að þýða enska
orðið Hello yfir á Íslensku og svaraði hann rétt að það
væri Halló. Já svo sannarlega Íslendingur hér á ferð.
Allavega til að gera langa sögu stutta þá varð hann í
neðstu 3 sætunum en náði að sanna sig og náði því að
halda sér inni. Núna er ég að horfa á þátt nr. 2 og eru
hljómsveitarmeðlimir búnir að jarða langflesta sem eru
að syngja nema Magna Hinn Íslenska. Ég held að hann fari
áfram í þessari annar um ferð. ÁFRAM ÍSLAND. ÁFRAM
MAGNI, JÁ MAGNAÐ. (Sorry Baddi, Ég ætla ekkert að stela
þessu orði frá þér. Það er bara þetta eina skifti) |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 8. júlí 2006
HÁKARL, ÓPAL, HARÐFISKUR, KONÍAK, ÓPALSNAFS OG
TÓPASSNAFS. SLLRRRRPPPPP. |
Því
er ekki að neita að maður hefur verið sakaður um
alvarlega blogleti á síðustu dögum, end eru núna 13
dagar síðan eitthvað kom inn í síðuna. Ekki hafa
ásakanir minnkað eftir að hann
Stebbi bróðir minn fór að blogga á hverjum einasta
degi um lífið sitt í Kaliforníu, enda erfitt líf að vera
í barnsburðarleyfi í 6 mánuði í sólaríkinu þar og þeim
39 stiga hita sem einkennir héraðið. Meira að segja
sundlaugin er orðin yfir 39 stiga heit og því mjög
þægileg. Ég get ekki sagt að ég öfundi menn sem þurfa að
eiga þetta erfiða líf að drekka bjór, leggjast við
sundlaugina og stunda graðrækt í eigin garði. JEHHH
RIIIGHT. Kíkið endilega á
bloggið hans og kynnst hans erfiða lífi.
Fyrir um viku síðan komu hingað í heimsókn miklir
víkingar frá Íslandi. Farskjóti þeirra er ekki
víkingaskip að eldri gerðinni heldur flugvél af stærri
gerðinni. Þetta eru þeir Ásgeir og Alli sem fljúga á
Boing 747 fyrir Carcolux um lönd heimsins. Þeir voru í
þetta skiftið í heimsferð sem tekur þá 17 daga og er
flogið um ýmsa staði allt frá Evrópu til Asíu, Ástralíu,
Nýja Sjálands og USA. Þeir ákváðu að stoppa við hérna í
Tauranga til að skjóta Fasana og aðra Páfugla til að ná
fjöðrum til að hnýta flugur úr. Gistu þeir hérna hjá mér
í 2 nætur til að ná sér niður eftir mikið vinnuálag í
fyrri hluta ferðarinnar, enda ekki eðlilegt hversu
erfitt líf það er að vera flugmaður í þessum heimi í
dag. Ég held að ég myndi ekki þola allt þetta vinnuálag,
enda valdi ég mér annan starfsframa.
Þeir buðu okkur síðan að koma til Auckland til að hitta
þá, enda með hótelherbergi þar í borg. Það var því
skellt sér uppeftir í eina nótt og farið út að borða. Ég
tók nokkrar myndir um kvöldið sem
eru hérna.
Ég vil bera þeim miklar þakkir fyrir að hafa leyft mér
að upplifa hið íslenska líf í nokkrara daga þar sem hægt
var að borða hákarl, harðfisk, Ópal, Appelsín og Malt og
meira að segja koníak. Einnig skildu þeir eftir mikið
magn af spægipysu sem gerð var úr Bambi Kjöti sem Geiri
veiddi hérna í síðust ferð sinni. Einnig skildu þeir
eftir Ópal og Tópas Snafs sem enn er eftir að
prufukeyra. Ég kann þeim félögum miklar þakkir fyrir
þessa miklu gestrisni og vonast til að sjá þá reglulega
með slíkar guðaveigar. |
|
|
|
|
|
|
Mánudagurinn 26. júní 2006
VIÐ ERUM BANKI |
Þetta er með ólíkindum hérna með
bankakerfið og það er sama hversu oft ég verð fyrir
þessu þá verð ég alltaf jafn hissa. Ég labbaði inn í
bankann minn í morgun með 2 reikninga og spurði hvort að
ég gæti ekki borgað þá hjá þeim og vitiði hvað svarið
var. NEI, við erum banki. JÁ ég er að segja satt. Svarið
var orðrétt "VIÐ ERUM BANKI". ÉG bara spyr, hvað gerir
maður í banka. Borgar maður ekki reikninga í banka. Nei
greinilega ekki hérna á Nýja Sjálandi. Allavega þá var
mér bent á pósthúsið sem var ekki svo fjarri og dreif ég
mig því þangað og viti menn, ég gat borgað annan
reikninginn minn en ekki hinn. Ástæðan var sú að hinn
reikningurinn
var sekt fyrir að leggja bílnum í almenningstæði á meðan
hann var óskráður, GRRR. 200 NZ$ fyrir það. Ekki nóg með
það heldur er ég loksins búinn að selja bílinn minn og
fékk ég heilar 300 NZ$ fyrir hann og því á ég 100 $
eftir að ég er búinn að borga sektina. Allavega þá
þurfti ég að fara niður í ráðhus til að borga þessa
þessa sekt þar sem borgin er ekki með samning við neinn
banka og því ekki hægt að borga nema hjá þeim einum. Á
hvaða öld lifum við eiginlega hérna í Nýja Sjálandi.
PS. Þetta er fysta kvöldið í mjög langan tíma sem ég
þarf ekki að kveikja á gashitaranum, enda var þessi
dagur 12 sekúndum lengri en sá í gær og morgundagurinn
verður 15 sekúndum lengri en þessi í dag. Fann þessa
snilldarsíðu með veðri hvar sem er í heiminum og segir
hún nákævmlega hversu lengir eða styttri næsti dagur
verður. Einnig er hægt að fletta upp veðri í langan tíma
afturábak og skoða spádóma fram í tímann.
Þetta er síðan. og prufði svo að slá inn Reykjavík
og sjá hvða kemur upp. |
|
|
|
|
|
|
Laugardagurinn 24. júní 2006
HITT OG ÞETTA |
Jæja, loksins sest maður niður aftur til
að skrifa. Það hefur reyndar ekki verið mikið í gangi
sem slíkt og þó. Maður er búinn að ná því að liggja
veikur heima síðan á miðvikudag með flensu og kvef. Ekki
oft sem ég næ því að verða veikur í meira en hálfan dag
en það tókst mér núna. Það hefur því verið algerlega
ótruflaður fótbolti hjá mér þessa vikuna og hefur maður
oftast verið vaknaður kl. 4 án vekjaraklukku, (Hversu
sorglegt er það) og þá horft á endursýningu á einum
leiknum. Síðan er það 7 leikurinn sem tekur við og
endursýning kl 9 á hinum 7 leiknum og þar á eftir
endursýning á hinum 2 leiknum. Það hafa því verið um 8
klst af fótbolta hjá mér þessa síðust daga og hef ég
aldrei náð að horfa meira á nokkra HM keppni áður.
Ástæðan er sú að ég keypti mér SKY um daginn til að geta
séð eitthvað að keppninni en bjóst reyndar ekki við að
geta horft svona mikið. Ég veit ekki hvort að ég á að
segja þetta en ég held að það sé hægt að fá of mikið af
fótbolta. Ja, allavega of mikið af því að liggja fyrir
fram sjónvarpið. Það finnst mér betri skýring. Bara
bakverkir og hálrígur en þetta er nú bara á 4ra ára
fresti.
Annars er þessi vetur að komast í sögubækurnar fyrir það
að vera sá versti í manna minnum. Ennþá eru þúsundir
manna rafmagnslausir í strjálbyli á Suðureyjunni vegna
vandræðagangs stjórnvalda. Engar rafmagnslínur eru
byggðar með snjóálag í huga upp að vissri hæð en í þetta
skiftið snjóaði mjög mikið alveg niður að sjávarmáli og
því hrundi mjög mikið af rafmagnsstólpum. Í fyrradag fór
síðan það sama að gerast hérna á Noðureyjunni og lokuðu
allir vegir nema strandvegir á miðri eyjunni vegna
mikillar snjókomu. Það meira að segja snjóaði hérna upp
á Coromandel skaganum sem er fyrir norðan okkur og hefur
slíkt ekki gerst í áratugi.
Þegar við Baddi bjuggum við Fjallið þá notuðum við 2-3
gaskúta fyrir veturinn en í þetta skiftið er ég búinn að
nota 2 kúta á 3 vikum. reynar er húsið soldið stærra í
þetta skiftið en mér er alveg sama.
Allavega, Ég tók saman nokkrar myndir af því sem hefur
verið að gerast síðustu 2 vikurnar
og eru þær hérna. |
|
|
|
|
|
|
Mánudagurinn 12. júní 2006
RAFMAGNSLEYSI OG BRJÁLAÐ VEÐUR |
Hérna
er búið að vera allt viltlaust í dag vegna veður. Á
suðurheyjunni hefur ekki komið svona mikill snjór í 60
ár og var hann mittisdjúpur niður í Timarú þar sem ég
var fyrir um 4 vikurm síðan.
Rafmagnslaust var í allan dag á Canterbury svæðinu
en Christchurch er í því héraði. Sum svæði þar eru ennþá
rafmagnslaus og verða fram á morgun dag hið minnsta. Í
Auckland var líka rafmangslaust og umferðarteppan meiri
en nokkru sinni áður þar sem engin umferðaljós voru
virk. Menn fóru á bensínastöðvar á síðustu dropunum en
gátu ekki fengið bensín þar sem dælurnar gengu fyrir
rafmagni. Slökkviliðið fór á milli háýsa með
lyftusérfræingum til að losa fólk sem var fast í lyftum.
Samtals voru 352 útköll hjá slökkviliðunu á 4
klukkutímum. Talað er um að verslun og viðskiftaaðilar
hafi tapað sem svara 50-100 miljónum NZ $ á þeim tíma
sem rafmagnsleysi varði eða um 2,5-5 miljarða íslenskra
króna. Hér er talað um að NZ sé ekkert annað en 3ja
heimshluta land þegar ekki er hægt að tryggja ramfmagn
allar stundir.
En yfir í annað. Ég fór til Hamilton um helgina til að
sjá All Blacks spila við Írland í Rugby. Þetta var mikið
spennandi leikur þar sem Írland var yfir mest allan
tímann og manni var ekki farið að standa á sama. En af
miklu harðfylgi tókst okkur að sigra þá á siðustu 15
mínútum leiksins. Mikil stemming var í bænum þar sem
flestir vour klæddir annað hvort í grænt eða svart.
Pöbbar voru troðfullir og sérstaklega þeir írsku.
Setti
saman nokkrar myndir af þessu sem eru hérna.
Og svo rétt undir lokin þá var ég að klára átak númer 2
í Body for life áksorununni. Ekki var þetta nú tekið
eins alvarlega og síðast en ég tapaði nú samt 10,5 kg í
þessu átaki. Sumir gætu kanskihugsað hvernig er það hægt
eftir síðasta átak. Það var reyndar ekki mikið mál þar
sem ég bætti á mig tæpum 11 kg eftir síðastsa átak.
Áastæða var tvíþætt og varönnur sú að við ákváðum að
taka annað átak go því þurfti maður að hafa af
einvhermju að taka í því, Einnig voru gestir hérna hjá
manni eins og foreldrarnir þannig að það var margt leyft
sér á meðan og sú heimsókn var notuð sem mikil afsökun
fyrir allskonar sukki og svindli. Allavega þá náði ég að
fara úr um 24% fitulagi niður í 14,6% og fór úr 88,7 kg
níður í 78,2 kg. Ég er því búinn að vinna mér inn
flugfar til baka frá Ástralíu á kostnað Badda, svona
rétt einu sinni enn. Það viurðist vera alveg sama í
hverju ég keppi við Badda, ég vinn hann alltaf. Hef
allavega aldrei tapað ennþá fyrir honum. Núna er því
bara að fara að reyna að finna tíma til að fara til
Ástralíu á kostnað Badda.dk.
Skellti saman fyrir og eftir myndum hérn ef einhver
hefur áhuga. |
|
|
|
|
|
|
Fimtudagurinn 8. júní 2006
LOKSINS KOMINN MEÐ NETIÐ AFTUR. |
Þetta er búið að vera eintómt vesen eins
og mér er einumlagið. Þeir sem mig þekkja sjá
migörugglega fyrir mér kvartandi og keinandi, öskrandi
og æpandi og er það alls ekki fjarri lagi. Svo ég setji
þetta upp í "Badda Stíl" þá er sagan svona.
Bið um flutning á númerinu mínu og internetinu á nýja
staðinn.
Tekur 10 daga að fá það í gegn.
Numerið er tengt en netið virkar ekki.
1 1/2 tími að ná í gegn 3 kvöld í röð til að reyna að fá
lausna mála minna.
Eftir 3 kvöld kom í ljós að Telecom tengdi vitlaust
númer inn í húsið mitt. Uppgötvaðist þegar ökunnugir
fóru að reyna að ná eigendur þess númers.
Hringdi mikið þegar það uppgötvaðist að ég var að nota
númer einvhers annars.
Var settur síðastur í röðina aftur og skammaðist mikið
og kvartaði við telecom.
Tók viku að tengja interntið eftir að þetta
uppgötvaðist.
Pantaði Sky TV til að geta horft á HM í fótbolta.
Bað um að hringj aí mig með klukkutíma fyrirvara til að
geta verið heima þegar það væri tengt.
Sky kemur heim án þess að hringja og setu rmig líka
aftast í röðin aftur.
Missi þar af leiðandi af fyrstu 4 dögunum af keppninni.
GRRRRR.
Öskra og æpi en það tekur enginn mark á mér. GRRRRR
Allavega þá er ég að far atil Hamilton
nún a um helgina að horfa á rugby leik með ALL BLACKS á
móti Írlandi og er mikli spenn ahérna í NZ út af þeim
leik. nyjir leikmenn í hópnum þar sem TANA er hættur.
Hlakka mikið til að sjá þennan einstak viðburð. SEt
myndir af þessu eftir helgi og þá verður engin afsökun
fyrir því að uppfæria ekki. |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 18. maí 2006
AUKNAR SKYLDUR Í VINNUNNI OG FLEIRA |
Vinnan
Loksins náðum við að steypa fyrstu botnplötuna í
aðaldælustöðinni. Þetta er búið að vera erfitt verkefni
þar sem hér eru búnar að vera miklar rigningar síðustu
vikur og grunnurinn er 6 metra neðanjarðar. Sem lægsti
punktur á svæðinu leiðir það til þess að allt vatn á
svæðinu rennur þarna niður og höfum við verið með dælur
stanslaust í gangi til að halda grunninum þokkalega
þurrum. Á miðvikudaginn þurftum við svo að fá tvær 20
tonna gröfur til að byggja stíflu og grafa skurði til að
leiða vatnið í burtu frá svæðinu,enda rigni gríðarlega
þann daginn. Vonandi er betri tíð í vændum, það er
allavega sól í dag og 20 stiga hiti og ekki nema 4
vikur í styðsta sólargang.
Á fimtudaginn kom svo Verkefnastjórinn að máli við mig
og spurði mig hvort að ég hefði mikið að gera. Ég tjáði
honum að svo væri ekki, enda hef ég haft frekar lítið að
gera sem slíkt. Hann spurði mig þá hvort að ég væri ekki
tilbúinn að taka að mér að byggja hinar 10
dælustövðarnar sem eru út um alla skagann. Þetta er
safndælustöðvar til að koma skólpinu upp á næstu hæðir
þar sem þyngaraflið tekur við aftur. Ég var ekki lengi
aðhugsa mig um og sagði strax já við þessu,enda sá ég
fram á það að mér myndi allavega ekki leiðast í vinnunni
á meðan ég hefði þetta. Þetta er þá komið upp í 12
dælustöðvar sem ég byggi, þær mynstu frá því að vera
mannop 1 meter þvermáli og upp í aðaldælustöðina sem er
6 metra djúpt steypuvirki með botnplötu sem er 1/2 metri
að þykkt og veggi sem eru 400 mm þykkir. Auk þess
bættist líka á mig lífræn sía, (biofilter) sem er
steyptur kassi við endann á þrýstilínunni. Auk þess
munég hafa umsjón með að tengja allar pípur, lokur og
dælur í öllum stöðvum.
Einnig hef ég verið aðeins með fingurna í þrýstilínunni
þar sem hún er boruð undir flóa um 30 metra breiðan.
Búið að vera að vinna í því að bora undir flóann í um 4
vikur og loksins á fimtudaginn var byrjað að draga
pípuna í gegn. Það gekk allt saman vel í fyrstu en að
eftir að vindan gaf sig þá festist pípan þegar um
helmingurinn var kominn í gegn. Stærri vinda var fengi
til að hjálapa en ekki tók betra við þar sem trén sem
hún var bundin við gáðu sig undan álaginu. Núna eru
getgátur um að göngin sem voru borðu hefðu átti að vera
um 100 mm breiðari og er næsta mál að reyna að ná
pípunni til baka til að geta borað breiðari göng. Allt
þetta er á kostnað undirverktakans enda var það hans
ákvörðun að bora þá stærð sem allt stoppaði í.
Það skemmtilegasta við þetta allt saman er að ég hef
aldrei gert neitt líkt þessu áður. Maður situr sveittur
núna við að koma sér inn í hvernig dælustöðvarnar virka.
herslur á lögnum og svo framvegis. Skemmtilegt verkefni
framundan.
Ég tók saman nokkrar
myndir úr vinnunni frá síðustu vikum sem eru hérna.
Fluttur
Þar sem Baddi yfirgaf mig um daginn þá flutti ég um
síðustu helgi til Mike, sem vann með mér hjá Mainzeal.
Hann er hættur þar líka og fluttur til Morrinsville sem
er í áttina að Hamilton, honum megin við KaiMais. Hann
er að reyna að selja húsið sitt og leigi ég herbergi þar
á meðan það er óselt á mjög góðu verði. Þetta er gott
fyrir báða aðila enda borga ég reksturinn á húsinu á
meðan. Hann kemur svo aðra hverja helgi til Tauranga
þannig að ég er einn í húsinu mest allan tímann. Ég var
loksins að klára að taka til hérna í gömlu íbúðinni og
er það búið að taka mig um viku, enda fór Baddi án þess
að nokkur hreingernir ætti sér stað. Þetta kom því
algerlega í minn hlut og fer ég fram á nokkur GIN glös á
barnum þegar ég hitti hann næst á Íslandi.
Nýjasta samgöngubótin í Tauranga
Það var loksins verið að opna brú mikla sem hérna er
kallað "Flyover". Hún átti að bæta samgöngur frá bænum
og yfir á Mount hverfið nálægt Bayfair, þar sem ég bý
núna. En hvað haldið að þessir asnar hafi gert. Flott
brú sem átti að auka burðargetu þessara gatnamóta og
þeir setja umferðaljós við endann á henni. Hvaða
fíflagangur er þetta eiginlega. Til hvers fara menn í
skóla í 5 ár til að læra gatnaværkfræði (Road
Engineering) og setja svo umferðarljós til að hægja á
flutningsgetunni. Ég hlakka mikið til að sjá hvernig
þetta verður á föstudaginn á aðal umferðatímanum. Ég
held að þetta verði ekki nein samgöngubót. GRRRRRRRR. |
|
|
|
|
|
|
Mánudagurinn 12. maí 2006
HELGIN VAR ERFIÐ |
Þessi
helgi var soldið erfið líkamlega fyrir mig. Ég ætlað að
vera mjög rólegur alla helgina enda ætlaði ég að flytja
og ganga frá gömlu í búðinni. Þetta byrjaði allt á
Fimtudegi þar sem ég fór í fertugsafmæli hjá Linga
(Andrew Ling). Reyndar var ég góður strákur og var á
bílnum þannig að það voru bara svolgraðir 2 öllarar. Í
heimsókn var fransk par úr Round Table þar í landi. Þau
eru að ferðast um heiminn og er búin að vera að því í 8
mánuði og eiga 4 mánuði eftir
Síðan átti að sjálfsögðu að vera rólegur á
föstudagkvöldinu og bauð ég Rob Eaton, vinnufélaga mínum
sem býr hérna á horninu að koma í mat. Við skelltum
okkur í búðina og eins go svöngum mönnum sæmir var keypt
stæðsta steikin sem fannst um 470 grömm hvor. V'A'A'A.
þetta var soldið mikið og endaði kvöldið snemma
morgunns, eða um 4.30 að mig minnir.
Á laugardeginum vorum við svo boðnir í boð til Rob
Connell sem er einn af undirverktökum hjá Works. Í
ofanálag við þetta bættist svo að ég ætlaði að flytja
þennan sama dag. Það var því ekki um annað að ræða en að
fara fram úr þegar pabbi hringdi kl. 8.30 að morgni til
að segj amér að við höfum unnið Grindavík sanngjarnt í
leik fyrr um kvöldið. Þetta segja allavega allir nema
Grindvíkingar.
Jæja, allavega þá var flutt og tók það mig um 3 tíma að
græja þetta. Ég naði að gera þetta í einni ferð og eru
það allar veraldlega eigur mínar, eða allavega hérna
niðurfrá, Reyndar komst grillið og skrifborðið ekki
fyrir en það munaði ekki miklu.Partýiuð var gott og
skemmtilegt, góður matur enn og aftur en þreytan náði
yfirhöndinn um 11 leytið og gisti ég hjá Bob þá nótt,
enda partýið í Te Puke sem er um 20 km frá fjallinu.
Ég neyddist síðan til að fara að kaupa mér rúm á
sunnudeginum og eftir nokkra leyt fann ég gott nýtt rúm
á 599 dollara eða tæar 30.000 kr. Amerísk dýna í queen
size stærð. Svaf allavega vel fyrstu nóttina í því.
Jæja, Farinn að taka meira til hérna og ganga frá gömlu
íbúðinni.
Setti saman myndaseríu af helginni sem er hérna.
PARTY WEEKEND
This was a rather difficult weekend with partys 3 days
in a row. 40th birtday party on thursday, Rob Eaton came
for a small dinner on Friday which ended with 470 grams
steak and koniac untill 4.30 in the morning. On Saturday
we went to party at Bob Connell's place in Te Puke where
some where more tired than others and even others drank
more than some. I also moved houses this weekend, but
Baddi moved to Iceland so I got a room / house about 7
km from the Mount. I gathered some
pictures of the weekend which are here. |
|
|
|
|
|
|
Mánudagurinn 15. maí 2006
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR RTNZ Í TIMARU |
Einveran hefur gegnið mjög vel, enda það
mikið að gera að ekki tími til að láta sér leiðast. Ég
er að flytja núna um helgina í einbýlishús 7 km héðan í
burtu en það tilheyrir eftir sem áður Mt. Maunganui, en
algerlega á hinum endanum þó. Ekki hefur mér tekist að
byrjað pakka þrátt fyrir viku tilraunir en eins og pabbi
sagði við mig rétt áðan þá set ég í kassa um leið og ég
flyt ef hann þekkir mig rétt. Ég held að hann þekki mig
rétt.
Annars fór ég á ráðstefnu með Round Table um helgina í
Timaru, sem er á suðureyjunni til að ræða málefni RTNZ
og flokka gamlar eignir RT. Þetta varð hin sekmtilegasta
helgi þar sem föstudagurinn var rólegur, laugardagurinn
vinnusæll og laugardagskvöldið skemmtilegt djamm kvöld.
Reyndar var skítakulldir þarna á laugardeginum og hélt
ég að það myndi frjósa undan mér þegar ég þurfti að ná
mér í morgunamatinn, enda ekki nema 3ja stiga hit.
Brrrrr.held bara að þetta sé það kaldast sem ég hef
upplifað hérna megin hnattarins.
Næsta skref hjá mér í kvöld er svo að setja videovél,
myndavél og bíl á trademe og sjá hvort að ég get selt
þetta á lítinn pening, enda var ég að kaupa mér nýja
myndavél um helgina. Alltaf sama kaupgleðin í manni. Ég
setti inn myndir af helginnni og
eru þær hérna.
MUSTER IN TIMARU
I went to Timaru down south on a RTNZ Muster. This
turned out to be a good weekend where we had good
discussions about Round Table as well as sort out our
archives. I have added some pictures of this event and
they are here. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 9.. maí 2006
BADDI FARINN OG ÉG ORÐINN "HOME ALONE" |
JÆJA,
ÞAÐ KOM AÐ ÞVÍ. Baddi farinn heim og ég orðinn einn
hérna á Nýja Sjálandi. Ég keryði kallinn til
Auckland í gær eftirmiðdag og lögðum við af stað
fraOmokoroa, vinnustaðnum mínum, um 12. 30 um hádegi í
gær. Síðan eru liðnium 34 tímar og ég er búinn að horfa
á bíomyndir, sofa, fara í vinnuna og vinna lengi. koma
heim og horfa á TV og borða og fleira og ennþá er
kallinn í flugvél á leiðinni heim. Og fyrir utan það að
þegar ég skrifa þetta þá eru ennþá 14 tímar í að hann
lendi á Íslandi. Þetta er langt ferðalag já og eitthavð
sem ég er ekki að leggja upp í lengi.
Annars er ég búinn að segja upp íbúðinni okkar hérna og
er að flytja til Mike's, sem var að vinna með mér hjá
Mainzeal. Hann hætti og er fluttur itl Morrinville sem
er hérna hinum megin við hæðina og er að reyna að selja
húsið. Fékk góðan díl hjá honum þangað til húsið selst.
Núna er svo orðið brjálað að gera í vinnunni.
Byggingaverktakinn sýndi andlitið á sér 2 vikum of
fljótt go við vorum ekki alveg tilbúnir það, enda ennþá
að grafa. svo í dag þa´sýndi sig 80 tonna krani á
staðinn sem á að reysa einingarnar og á morgun eða hinn
koma forsteypar einingar á staðinn sem eru hvorki meira
né minna en um 22 tonn hvor um sig. ekki nema von að það
þurfi svona stóran krana.
Síðan á að lyfta brúnni í stöðu í fyrramálið og var
fenginn í það líka 80 tonna krani. Þesi brú er yfir
járnbrautarteina og það er ekkert smá mál að fá leyfi
til að vinna við járnbrautarland, semliggur um 20 metra
í hvora átt frá teinunum. Við þurfum meira að segja að
fá fylgdarmann f´ra járnbrautarfélaginu til að meiga
lyfta brúnni fyrir teinana. Það verður gaman að takast á
við restina af vikunni þó að einn sé orðinn.
PS. Baddi, ég hef ekki ennþá flutt inn í svítunu, þ.e.
stóra herbergi þitt sem ég hef ekki fengið að koma inn í
síðan þú flutir hingað. Finnst bara rétt að búa í mínu
herbergi þangað til ég flyt. hehe
PPS. búin nað bæta inn link á Stebba bróðir sem fór í
barnsburðarleyfi til kaliforníu í 6 mánuði. Þetta kalla
ég að njóta lífisins. Frábært hjá ykkur Eyjafjölskylda.
síðan hjá honum er hérna. |
|
|
|
|
|
|
ELDRI GREINAR:
Mars - April 2006
Desember 2005 / Febrúar 2006
Ágúst/November 2005
Júlí/Ágúst 2005
Maí
Mars/April
Janúar/Febrúar
Desember
Oktober/November
September
Ágúst
Júni/Júlí
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar
Desember
Nóvember
Október
Janko í Fylkir |
|
©
GINFAN.COM - STOFNAÐ 23. OKTÓBER 2003 - ALLUR RÉTTUR
ÁSKILINN |