GIN SÍÐAN

Hér er það ætlum mín að vera með ýmsan fróðleik um uppáhaldsdrykkinn minn, GIN. Reyndar er það fjölskylduhefð hjá mér að setjast niður fyrir mat um helgar á fá sér 1-2 GT fyrir matinn. Hér verða líka jafnvel birtar niðurstöður smökkunar hins fræga Gin Klúbbs okkar, Dillons Lávarðar þegar fram líða stundir. Bætt verður inn á þessa síðu jafnt og þétt.
     

Hér er eitt það merkilegasta sem ég hef séð til þessa. Ég hélt nú að maður hefði upplifað flest en þegar við rákumst á þessa heimasíðu þá rak okkur í rogastans. Hér er ég að tala um körfuboltaklúbbinn GORDON'S GIN. JÁ, ótrúlegt en satt.

  Í mínum uppáhalds Roundtable klúbbi sem er númer 8 á Íslandi þá höfum við þá sérstöku hefð að hittast og halda BEMBEL annað slagið. Þessi hefð kom til okkar frá RT 8 í Frankfurt og var það Mannfred Kalb sem sá um að afhenda okkur pakkann á samnúmeramóti RT 8 í Reykjavík árið 1995. Í pakkanum var kanna ásamt GIN flösku sem drekka átti í góðum félagsskap. Reglur eru þær að menn skuli hittast, helst með nýliðum, til að kynnast hverjir öðrum á annan hátt en með hefðbundu fundarastarfi. Tekist hefur að útvega myndaband sem lýsir þessum átburði nokkuð vel og hvernig drykkurinn er blandaður.
     

 

     
     
     
Nokkrir linkar með GIN uppskriftum   Og svo að sjálfsögðu Gordon's GINgarðurinn
Drink Street    
Bar.tv    
Tall glass    
500 koctails    
Ginfizz