WHAAASSSUUUP
 |
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 21. Febrúar 2006
ENN AF ÞEIM GÖMLU |
Þá eru gömlu hjónin búin að vera hérna í heila viku og
þeim leist svona ljómandi vel á gamlingjamannaþorpið og
golfvellina að hérna vilja þau setjast að. Vinir og
vandamenn, farið að undirbúa ykkur undir löng ferðalög
og ég ætla að fara að minka við mig þannig að ég sitji
ekki uppi með þau. hehe.
Þau eru allavega búin að spila 3 bestu golfvelli hérna á
svæðinu og vilja panta tíma aftur þegar við komum að
sunnan. Við fórum í Hobbiton á Laugardaginn og var það
hin besta skemmtun að sjá svæðið og rifja upp sögur frá
kvikmyndatökunum. Ennig fórum við að skoða Maori þorp í
Rotorua, þar sem ég var að vinna, og var þar mikil
sýning á venjum Máríta á öldum áður. Síðan eru þau búin
að fá 2 daga núna í að gera ekkert annað en að liggja á
ströndinni og held ég að það sé það sem þau helst vilja.
Á morgun förum við svo til Auckland þar sem ég ætla að
hitta Round Table Mass túr sem er að fara hérna í gegn
og Kallinn ætlar að fara upp í hæðsta turna á suðurhveli
jarðar sem er Sky tower. Síðan á að fljuga til
Queenstown á Fimtudaginn þar sem við verðum fram á
Mánudag. Set inn meira af myndum þá.
Hérna eru myndir frá síðustu dögum. |
|
|
|
|
|
|
Fimtudagurinn 16. Febrúar 2006
GÖMLU Í HEIMSÓKN |
Þá eru gömlu hjónin komin í heimsókn og
virðast ekki leiðast mikið. Þau vilja helst fá að liggja
á ströndinni og spila golf allan tímann. 2 dagar eru
liðnir og ég er í fríi líka. Þvílík snilld. Ég verð í
ævarandi skuld við Mainzeal fyrir að hafa leyft mér að
hætta svona snemma, enda held ég að þeir hafi verið
fegnir að losan við mig.
Allavega, þá held ég að gömlu finnist ekkert leiðinlegt
hérna og eru þau strax búin að biðja mig að búa hérna
næstu 10 árin til að geta keypt sér
gamlingjamannaheimili þegar þau hætta að vinna. HMMM. Ég
veit ekki. Ég fer allvega með þau um helgina til að sýna
þeim slík þorp og við sjáum hvernig þeim lítist á.
Aldrei að vita nema að ég sitji upp með þau eftir allt
saman.
Ég fór með þau upp á fjallið og eins og sést þá komust
sumir upp en aðrir ekki. É ger samt hreykinn af
kallinum. Með sína lofthræðslu þá komst hann um 4/5
leiðarinnar í þetta skiftið áður en hæðin bugaði hann.
Þetta ver vel af sér vikið.
Allavega þá eru hérna myndir af fyrstu dögunum hérna og
frá Kuala Lumpur. Þetta voru löng flug hjá þeim og
tímamunurinn fór ekki vel í þau á 2. degi í KL. Þau
spiluðu golf í dag, Svo verður farið í Hobbiton á morgun og svo er það aftur golf á sunnudag
og mánudag og eru þau þá búin að spila 3 bestu velli
hérna í Tauranga og þar af einn sem er einn af bestu
völlum hérna á NZ.
Myndirnar sem þau hafa tekið eru hérna. |
|
|
|
|
|
|
Mánudagurinn 13. Febrúar 2006
GOTT AFMÆLIS PARTÝ |
Jæja, þá er afmælisdagurinn að baki og ég
með eina hrukku í viðbót. Eða bíddu aðeins. Ég
held að það hafi engi hrukka komið í þetta skiftið. Ég
verð yngri og yngri með aldrinum. Liður allvega alltaf
betur og betur. Samt skritið að vera atvinnulaus á
afmælisdeginum sínum. Ef talað er um dagsetningar þá
byrjaði ég mína fyrstu vinna 10. febrúar árið 1984 þegar
ég byrjaði að vinna hjá pabba. að sjálfsðgðu hafði ég
unnið áður en ekkert sem skilaði miklu í
minningarbankann. Það er svo skrýtið að núna er ég að
hætta minni fyrstu vinnu eftir námið þann 10 febrúar,
reyndar 2006. Skyldi þetta þyða eitthvað???
Allavega þá var grillveisla hjá Round table um helgina
sem "wind down" eftir blues, brews & barbeques.
heppnaðist þvílíkt vel og ég er ánægður með að RT hafi
boðið mér í eigin afmælisveislu. nóg að drekka og
þreyttur fór maður heim.
En að öðru. foreldrar mínir eru að koma í heimsókn
hingað á morgun þriðjudag. Hentar ágætlega að ég sé
atvinnulaus til að sýna þeim Nýja Sjáland. Fljúgum til
suðureyjarinnar í næstu viku ená eftir að ákveðna
nákvæmlega hvernig þetta verður. Mun skrifa og setja inn
myndir um leið og hlutirnir gerast.
þangið til næst, hafðiði það gott. Ég tók nokkrar myndir
um helgina og
eru þær hérna.
PS: við fóurm að borða á stað sem mig hefur legni langað
á einungis út af nafninu. Staðurinn heitir HORNY BULL.
hmmmmm Hér er margt furðulegt í kýrhausnumþ |
|
|
|
|
|
|
Laugardagurinn 11. Febrúar 2006
ÉG Á AFMÆLÍ DAG |
Ég
á afmæli dag
Ég á afmæli í dag
Ég á afmæli í daaag.
Ég er 42ja í dag.Og elska hvert
einasta þeirra.
Daskrá dagsins er eftirfarandi:
Nr. 1 Sleezy morgunamatur
Nr. 2 Taka til áður en foreldrarnir koma í heimsókn
Nr. 3 Leggjast í sófann og dotta
Nr. 4 Vakna og fá sér Öl
Nr. 5 Skoða 2 hús sem eru á söluskrá hérna
Nr. 6 Fara og hitta RT félagana og spila
fótbolta
Nr. 7 Fara í Grillveislu með RT félögunum og
fá sér GIN
Nr. 8 Fara í bæinn og fagna deginum fram
eftir morgni
Nr. 9 Skríða heim og dröslast í rúmið
Nr. 10 Vakna þunnur
Nr. 11 Fara og fá sér annan Sleezy morgunmat. |
|
|
|
|
|
|
Föstudagurinn 10. Febrúar 2006
ÉG ER ATVINNULAUS (AUMINGI) |
Hrykalega er þetta skrýtið. Mér líður
eins og daginn sem ég tók lokaprófið mitt. það var
hryyyykaleg tilhlökkun og maður hélt að endamarkinu væri
náð og þá yrðu svaaakaleg fagnaðarlæti. En viti menn,
það er ekkert. bara tómleiki og maður veit ekki alveg
hvað er framundan. Ekki miskilja mig. þetta er mjög
góður tómleiki. Þetta er bara svipað, tímamót í mínu
lífið og maður veit ekki hvernig tekst til með
framtíðarverkefnið.
Þessi dagur var skrýtinn í mesta lagi. Ég hafði sagt við
alla á staðnum sem voru að vinna fyrir okkur (ca. 40-50
manns) að ég myndi bjóða upp á bjór í lok dagsins, sem
er hjá undirverktökum kl. 3 á föstudögum. (Allavega
bauðst Mainzeal ekki til að bjóða eitt eða neitt) Svo
kom föstudagurinn og það var grenjandi rigning.. Works,
sem er það fyrirtæki sem ég er að fara að vinna hjá og
er undirverktaki hjá okkur í Rotorua hættu strax að
vinna eða um kl. 8.00 um morguninn.
Stálgrindarmennirninr hættu líka allir nema 2 um 10
leytið en þesir 2 uðru að taka á móti efni. Píparinn
dugði til kl. 2 og byggingameistarinn til um 1. Þetta
boð mitt varð því verulega ódýrt en ég hafði reiknað með
um 5 kössum af bjór sem kosta hérna um 5.000 kr heilar,
og þá í heildina, ekki hver og einn. Ég endaði á því að
gefa Jensen mönnum sem tóku á móti stálinu 8 bjóra til
að drekka á leiðinni heim til Tauranga. Restin er hérna
heima hjá mér.
Ætlunin var að vera í Rotorua og fara á djammið með
strákunum á staðnum en vegna veðurs voru allir farnir
heim og ég ákvað því að drífa mig heim líka. Djammið
átti að vera farið en viti menn. núna er klukka 9 á
föstudagskvöldi og ég er alveg að sofan. hmmmmm. koma
tímar koma ráð. |
|
|
|
|
|
|
Föstudagurinn 10. Febrúar 2006
ANNAÐ SÆTI Í TRIATHLON Í TAURANGA |
Ég tók upp á þeim ófögnuði að taka þátt í
Triathloni núna um síðust helgi. Þetta var reyndar í
styttra lagi í þetta skiftið, eða helmingur af desember
triathloninu sem við gerðum. Í þetta skiftið var þetta
300m sund í sjó, 9,5km hjólreiðar og 3 km hlaup. Ég fann
strax í sundinu að ég var ekki í sömu þol þjálfum og í
Desember . Þar sem það var fjara var
möguleiki á því að "hlaupa" í vatninu í staðinn fyrir
að synda. Ég reyndi mikið að synda í byrjun en var alveg
að gefast upp þar sem ég náði ekki til botns og færði
mig því aðeins nær landi. Þetta var eins og að svífa í
loftleysi að hlaup um í vatninu og náði ég að fara
framúr nokkrum sem létu sér það lynda að synda.
Hjólreiðarnar voru keppni við kvenmann, u.þ.b. 75 ára
gamla og tók hún fram úr mér jafnóðan og ég tók fram
úr henni. Við fylgdumst að mestallan tímann. Ég hins
vegar náði ég að vinna hana á hörkunni þegar kom að
hlaupinu. Ótrúlegt, að aðalkeppinauturinn skuli hafa
verið frú, eldir en foreldrar mínir. Hvað segir það um
mig..
Allavega, Ég varð númer 2 í röðinni af Mainzeal
starfsmönnum, líka númar 2 í flokknum 40+ , sem ég
er mjög hreykinn af og númer 31 af heildinni sem er
ekki slæmt af 84 keppendum í þessum flokki. Í næsta
mánuði verð ég í 30. sæti eða
neðar. Ég tók saman nokkarar myndir af þessu sem Baddi
tók og eru
þær hérna. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 31. Janúar 2006
AUCKLAND, ERFIÐ HELGI |
Ekki skal því neitað að þetta var stembin
helgi. Þegar lagt var af stað á Laugardagsmorgni átti að
stoppa þarna norður frá í eina nótt. Raunin varð hins
vegar önnur. Partýið drógst á langinn þegar fara átti af
stað til baka á sunnudeginum var ákveðið að vera næstu
nótt hjá Pedro í Orewa, sem er 30 mín fyrir norðar
Auckland. Það var því annað partý á Sunnudeginum sem
endaði með ferð til Kanadabúnna á ströndinni þar sem
synt var í sjónum klukkan 3 að nóttu. Það hlýtur
allavega að hafa verið á þeim tíma þar sem ég kom ekki
heim fyrr en klukkan 4 að því sem Baddi segir mér, enda
fylgist hann með hverri minni hreyfingu eins og
afbrýðisöm eiginkona. (myndir/pictures)
(
video)
Skoðuðum svo vinnuna hjá Pedro en það er hraðbraut sem
nær 9 km fram hjá Orewa. Þetta er ótrúleg framkvæmd og
er meðal annars verið að byggja um 300 metra brú yfir
eitt gilið einungis til að leyfa Kauri trjám að vaxa
undir henni. Dýrt það. Allavega framkvæmd upp á um 360
Milj NZ$ og eyðslan er um 300.000 NZ$ á dag.
Hér er annars farið að vera verulega heitt og rakinn
óbærilegur. Núna er klukkan t.d. að verða 9 að kvöldi og
maður situr á bolnum og bara svitnar og svitnar. Hitamet
var sett niður á suðureyjunni þar sem var 36°C í 3 daga
í röð og hefur það ekki gerst í marga áratugi. Hér hjá
okkur er þó ekki búið að vera nema þetta 28-32°C en
rakinn gerir það að verkum að maður bara svitnar og
svitnar. úfffff.
Já, svo er ég að fara á kynningarfund annað kvöld um
verkefnið sem ég er að fara að vinna að hjá Works næsta
árið eða svo. Ég skrifa meira um það síðar í vikunni þar
sem ég verð þá búinn að fá meiri upplýsingar um það
hvert mitt hlutverk verður. Ráðníngarsamningur segir
hins vegar að ég sé Svæða stjóri (Section Manager) og
sjáum við til hvað það þýðir. |
|
|
|
|
|
|
Fimtudagurinn 26. Janúar 2006
NÝ VINNA, GLEÐIDAGUR Í M ÍNU LÍFI |
Að sjálfsögðu lét ég vaða. Ég reyndar tók
sjéns sem ég sagði engum frá að tvennu leyti. Í fyrsta
lagi þá sagði ég upp í dag áður en ég var kominn með
skriflega samning í hendurnar en þar sem nýji
yfirmaðurinn minn hann Peter sagði mér að hann væri
búinn að kaupa nýja 4WD Hilux inn minn þá ákvað ég að
segja gamla yfirmanninum mínum honum Peter að ég ætlaði
að segja upp núna.
Eftir að hafa talið í sig kjark allan
morguninn og dregið þetta í nokkra tíma ákvað ég
loksins að láta vaða. Eftir smá úskýringar og fát og
fuml komst ég þó að því að þetta var ekkert mál og ég
teygði mig í vasann þar sem uppsagnar bréfið var og
rétti Peter það. Ég hélt að þetta yrði stórmál en komst
að því að þetta var skíííteinfalt. Bara að koma sér að
efninu.
Allavega, ég er búinn að fá saminginn sendann í pósti
þannig að ég gat treyst þessu máli. Þarf reyndar að lesa
yfir samninginn en þar sem Baddi las hann á meðan ég
eldaði þá sagði hann mér að ég þyrfti að fara í dóp próf
áður en allt yrði samþykkt. hnnmnn. skyldi ég standast,
jehhh right. Ég verð reyndar í mjög góðum málum þar nema
ef að áfengi er tekið inn í dæmið. þá er best að fara í
þetta próf á föstudegi en ekki á mánudegi.
Ég vil nú ekki hafa þetta of langt í þetta skiftið en
svona rétt smá upplysingar þá er
Works
soldið stærra en
Mainzeal. Works er með um 3.000 manns í vinnu en
mainzeal um 450. Velta Works er um 600 milj NZ$. Works
er í eigu fyrirtækis sem heitir
Downer og er eitt
stærsta vertakafyrirtæki hér á suðurhveli jarðar með
starfsemi um allt nýja sjáland, ástralíu, asíu og
eyjaálfuna. Velta þess er um 3,8 miljarðar NZ$ eða um
1600 miljarðar ISK sem eru tæplega 5 ára velta íslenska
ríkisins. Starsmenn eru um 15.000. Þetta kanski gefur möguleika á að
vinna í fleiri löndum en NZ. Aldrei að vita.
Allavega þá hlakkar mig mikið til að fá nýja 4WD Hilux inn
minn, og símann og tölvuna og feitu launahækkunina, svo ekki
sé talað um að vinna með mennsku fólki. hehe
Læti vita meira fljótlega |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 24. Janúar 2006
SENNILEGA NÝ VINNA |
HOWDI allir. Ég fór í þetta atvinnuviðtal
í gær og það gekk svona ljómandi vel. Ég var vel
undirbúinn og með lokaverkefnið mitt til að sýna hvað ég
nú hefðí í raun gert í skólanum en það kom aldrei til
þess að ég þyrfti að sýna það. Sá sem ég hitti lýsti
verkinu fyrir mér og er þetta verk upp á 25 milj NZ$,
sömu upphæð og verkið sem ég er í í dag. Þetta verk er
skift í 3 svæði og nær yfir um 14 km. Þetta eru
hreinsistöðvar svipaðar og hefur verið að byggja á
ströndinni í kringum Reykjavík síðustu árin og mitt verk
yrðir að byggja aðaldælustöðina. (sjá
upplysingar hér og
aðrar hér)
Bara er búið að ráða 2 verktaka og yrði ég því með í þvi
að velja restina. Ég þarf að gera alla skipulagningu og
öll tímaplön og samskifti við verktaka. Ég þarf að mæta
ákveðnum dagsetningum þar sem skila á verkinu, erfiðara
er þetta ekki. Ég verð sem sagt svona nokkurs konar
allsráðandi yfir mínu svæði og yfirmaður minn er
yfirmaður allra 3ja svæðanna. Þetta hljómar virkilega
spennandi verkefni og er ég 99% viss um að ég mun taka
þessu ef ég fæ skriflega samninginn á morgun í hendurnar
eins og lofað var.
Og ekki skemmir launahækkunin fyrir, en ég sagðist í
viðtalinu vera með mun hærri laun en ég er með þar sem
ég ætlaði svo sem ekkert aðskifta. Að sjálfsögðu má ég
ekki tala um laun hérna á NZ þó að ég muni eflaust gera
það til íslands. Kem kansi að því síðar ef af þessu
verður an allvega þá fæ ég splunkunýjan Toyota Hilux,
útgáfu sem ekki einu sinni er byrjað að selja í Evrópu,
til eigin ótakmarkaðra nota . Ekki skemmir fyrir að ég
fæ GSM síma í hendurar sem er nokkuð sem fyrirtækið mitt
í dag tímir ekki einu sinni að kaupa fyrir mig og
ferðatölvu til notkunar í vinnunni. HMMMMM.
Er þetta einhver spurning????? Hvað segið þið????? |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 22. Janúar 20056
SUMARVEÐUR HVAÐ. |
Hér er búð að vera sannkallað sumarveður um helinga.
Ströndin var troðfull af fólki og ekki skemmir fyrir
allar stelurnar sem eru á sínu litla bikiní fatnaði.
Helgin var annars frekar erfið þar sem Andy sem var
staðarstjóri í Hamilton þegar ég vann þar kom í
heimsókn ásamt Joselito frá Filipseyjum, en hann var
verkstjóri eins og ég á staðnum. Andi er að reyna að fá
mig til að vinna fyrir Works og kom hann á þessu
atvinnuviðtali sem ég fer í á mánudaginn. Hann lagði
mikið á sig við að sannfæra mig um gott starfsumhverfi
og hvað Works stendur fyrir. Þetta hlómar verulega
spennandi og gott fyrirtæki að vinna fyrir. Fórum að
heimsækja stæðsta byggingastað á Nýja Sjálandi í dag sem
er fangelsi um 2 tíma héðan. Mainzeal er aðalverktakinn
en Works er undirverktaki hjá þeim og sér um allar
skólplagnir og vegaframkvæmdir á staðnum. Works er líka
undirverktaki hjá mér í Rotorua og skrýtið með að að
segja að Verkenfa stjórinn þar er líka búinn að bjóða
mér vinnu. Það er soldin tilviljun ekki satt. Allavega,
það verður gaman að sjá hvað gerist í þessu
atvinnuviðtali á mánudagskvöldinu.
Labbaði á fjallið áðan sem tekur um klukkutíma. Frábært
útsýni og menn að hoppa fram af fjallinu á sínum
flugdrekum eða hvað það nú kallast.
Enginn vindur fyrir Kite sprtið eins og er. Hvernig er
hægt að hafa betra líf en þetta. Ströndin við hendurnar.
Hvað þarf meira???
OOHHhhhhhh. By the way. Hvað finnst ykkur. Á ég að
skifta um vinnu og þá hvers vegna??. Ég hef margar
ástæður til að velta vöngum. |
|
|
|
|
|
|
Fimtudagurinn 19. Janúar 2006
HMMMMMMMM |
Er ekki alveg að nenna þessu þessa dagana eins og sést.
Er með video af Blues Brews & Barbeques tilbúið til
klippingar. Verð að klára það til að setja á
www.roundtable.co.nz síðuna sem ég sé um. Vinnan að
ganga ágætlega en verkefnastjórinn alltaf í slæmu skapi.
Er kominn með breytt bak eftir allar skammirnar.
Staðarstórinn aðeins farinn að verða betri í að segja
manni til. Fer í atvinnuviðtal hjá öðru fyrirtæki sem er
enn stærra en það sem ég er hjá á mánudagskvöldinu
næsta. Af hverju ekki að spjalla. Það skaðar engann. Hef
ekki kætað í mánuð. Strandblak um síðust helgi þar sem
10. besta lið í heimi var að keppa. frábært og við komum
fram í sjónvarpinu. Verð að skrifa meira um helgina.
Svona leti gengur ekki. Myndir af þessu öllu á
www.baddi.dk
Heyrumst þá hressari. |
|
|
|
|
|
|
Miðvikudagurinn 4. Janúar 2006
ÁRAMÓTIN OG GIFTINGIN |
Smá
ferðasaga frá áramótunum:
27. des.
Keyrðum upp til Kerikeri í bay of Islands. Venjulega um
5 1/2 tími í akstri en 9 tímar í þetta skiftið vegna
mikillar umferðar. Piparsveinapartý Pedros um kvöldið. (sjá
myndir hér)
28. des.
Sigling um Bay of Island með Pedro og strákaunum. Veitt
og drukkið. Stoppað í Russel (fyrsta höfuðborg NZ) og
bundið við bryggju til að fara á barinn svona rétt eins
og ríka fólkið gerir. Grillaður fiskur og franskar um
kvölidð. alger snilld. (sjá
myndir hér)
29. des.
Gifting fór fram í Paihia, strandbæ um 20 mínútur frá
Kerikeri. Við BAddi gistum á Backpackers og klæddum
okkur í þjóðbúninginn og jakkaföt og vorum
langflottastir. Mættum á staðinn á Tuctuc sem er svona
mótorhjól með aftanívagni eins og notað er í Bangkok.
Brúðkauðið var á ströndinni, þvílíkt fallegur staður,
svona vill ég gera þegar ég gifti mig eftir ca 50 ár eða
svo. Party fram eftir nóttu og lengur hjá sumun en
öðrum. (sjá
myndir hér)
30. des.
Þynkudagur með stóru Þ-i en síðan hist hjá foreldrum
Tracyar (brúðarinnar) í eftirmiðdaginn í fjölskylduboð
sem stóð fram eftir kvöldi. Mikið fjör og það tók okkar
Félagana um 3 rauðvínsflöskur til að reyna að komast í
gang. Það tókst ekki og því sveftími snemma. (sjá
myndir hér)
31. des.
Farið til Charlies rock um hádegið til að hoppa fram af
klettunum. Alger snilldar staður. Farið til Pahia í
eftirmiðdaginn í heimahús og farið í marga
stórskemmtilega drykkjuleiki. Þegar skyggja tók var
farið á skemmtistað í bænum. Þegar líða tók á miðnætti
var farið niðrá höfn þar sem báturinn beið okkar.
Sigldum út á sjó og horðum á mjög góðu flugeldasýningu
og síðan siglt til Kerikeri aftur. Þegar heim var komið
var mikið partý á backpackers staðnum sem við gistum á
og tók ég aðsjálfsögðu þátt til klukkan 5 um morguninn.
Hitti íslending þar af algerri tilviljun. Hann býr í
Auckland en var í fríi þarna og lenti á sama stað og
við. Furðulegt hversu lítið ísland er. Alger snilldar
gamlársdagur sem sein mun gleymst. soldið mikið öðruvísi
en kuldinn heima, enda allir í stuttbuxum og sandölum. (Sjá
myndi hér)
1. des.
Aftur farið á charlies rock til að hrista þynkuna úr
sér. Annars leit dagur og það eina sem við gerðum var að
skreppa og skoða Kauri skóg, en þau tré geta orðið allt
að 4.000 ára gömul og það stæðsta inniheldur um 150
rúmmetra af timbri. Tré í mikilli útrýmingarhættu vegna
hægs vaxtar. (sjá myndir frá gamlárdegi)
2. des.
Keyrt heim kl. 6 um morguninn. Sluppum við mest alla
traffík þar sem við lögum af stað svona snemma.
Allur tíminn.
Við vourm duglegir á videovélinni og tók Baddi sig saman
og gerði brot af því besta þó að erfitt hafi verið. (sjá
video hér) |
|
|
|
|
|
|
Mánudagurinn 2. Janúar 2006
SKÁLDAHÆFILEIKAR MÍNIR PRÓFAÐIR |
|
GLEÐILEGT ÁR ALLIR HEIMA OG HEIMAN.
Önnur útgafa af klukki er farin að ganga
um netið núna og virkar hún þannig að þú setur inn
comment með nafni þinu og ég segi þér eftirfarandi
hluti:
1. Ég segi þér
eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir
mér um þig
7. Ef þú tekur þátt þá verður þú að setja þetta á
bloggið þitt!
Svo er bara að muna að þeir sem taka
þátt verða að setja þetta inn á bloggið hjá sér. Það er
alger skylda. Þar sem ég tók þátt í þessu hjá henni
Hrund Stuðboltastelpu, hressri stelpu sem ég hef gaman
að lesa bloggið hjá. Þetta sagði hún um mig:
1.Ég hef þá mynd af þér að þú sért
ævintýragjarn en staðfastur, hikir ekki við að njóta
lífsins en sért líka tilbúinn að leggja ýmislegt á þig
til að fá sem mest út úr því. Svo ertu FYLKISMAÐUR.
2.Fyrsta myndin sem kom upp í hugann var James Bond (he
he) og myndin sem mér dettur í hug er Lord of the Rings.
Varð oft hugsað til þess að ég kannaðist við einhvern á
Nýja Sjálandi þegar ég var að horfa á aukaefnið með
myndunum um daginn

3.Uhh...GIN !!!
4.Fyrsta ljósa minningin af þér er komment eftir að
síðan mín fékk tengil á tilverunni.is. Þá skyldirðu
eftir komment um að þú værir líka í próflestri (minnir
mig) en værir staddur á Nýja Sjálandi og ströndin væri
meira freystandi en bækurnar. Svo á ég auðvitað viðtalið
við þig og það er sterk minning að taka viðtal við
einhvern sem ég hef aldrei séð. Þetta var örugglega
fyrsta viðtalið sem ég skrifaði en nú eru þau orðin ansi
mörg á stuttum tíma

5.Hmm, það er nú það. Kannski þrjóskuHUNDUR miðað við
árangur þinn í líkamsræktarátakinu

6.Af hverju Nýja Sjáland?
Og þetta er svarið mitt.
1. Ég held að þú sért að vissu leyti
ofvirk, enda virðistu taka þátt í öllu félagslífi sem þú
getur, hvort sem er í skóla, íþróttum eða á djammi. Held
líka að þú eigir eftir að verða þekkt sjónvarspstjarna á
Íslandi.
2. Erin Brockovitch með Juliu Roberts. Held að þú sért
sami hörkunaglinn og hún var.
3. Gull Kiwi ávöxtur. Þeir eru frekar sjaldgæfir.
4. Þegar ég fékk spurningalistann fyrir viðtalið eftir
að þú óskaðir eftir hugmyndum um viðtal sem þú þurftir
að gera sem skólaverkefni. Reyndar var allra fyrsta
minningin eftir
að linkurinn á síðuna þína var inn á tilverunni og ég
setti í commentin hjá þér að við bæði vorum í lokaprófum
á svipuðum tíma, þú í snjónum á Íslandi og ég á ströndinni
á NZ í 25°c
hita.
5. Hvítan einhyrning. Þegar þeir sjást í bíomyndum er
það alltaf tákn um eitthvað gott.
6. Á ekkert að fara að ferðast lengra en til Köben?
Og svo þarf ég væntanlega að svara
hennar spurning um það af hverju ég valdi Nýja Sjáland:
Í fyrstu var þetta vegna fjarlægðarinnar og sérstaklega
þar sem NZ er á suðurhveli jarðar. Mig hafði alltaf
langað til að koma hingað eða til Ástralíu (hafði
reyndar farið til Suður Afríku áður) og ég vissi að ef
ég færi ekki sem skiftinemi þá myndi ég aldrei fara á
þessar slóðir á ævinni. Þegar ég kom hingað fyrst þá
óraði mig ekki fyrir því að ég ætti eftir að flytja
hingað og vinna eftir að námi lauk. Þetta er einfaldlega
land sem býður upp á allt sem hægt er að hugsa sér,
allavega allt sem ég vil þessa stundina fyrir utan
hangikjót, kæsta skötu, rjúpur, íslenskan lakkrís, Mills
kavíar, flatkökur, bernaissósu, sviðahausa og
þorramat.........DAMIT, ég er hættur að telja upp, þetta
kallar á heimþrá. hehe |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 25. desember 2005
AÐFANGADAGUR |
|
 Þá eru jólin hérna komin og næstum því
farin. Við reyndum að gera þetta eins íslenskt og hægt
var miðað við aðstæður.
Aðfangadagurinn byrjaði í ræktinni þar
sem við sóttum vinningana okkar en við vorum í 1. og 2.
sæti yfir bestan árangur á þessu ári . Að sjálfsögðu var
ég í því fyrsta og Baddi bara í því öðru.
Í hádeginu eldaði ég grjónagraut sem var
framreiddur með hlaupi í þar sem við fundum engar
möndlur. Meðlætið voru jarðarber að hætti Badda
fjölskyldu og rúsínur og kanelsykur að hætti minnar
fjölskyldu. Þar sem Baddi hefur tapað öllum
keppnum við mig til þessa var það sárabót fyrir hann að
vinna "hlaup" gjöfina.
Eftir hádegið fór ég svo að kæta og er ég
farinn að geta staðið stutta stundá brettinu sjálfu.
Þetta er alveg að koma allavega. Þar á eftir var tekinn
göngutúr á ströndinni og sumarstemmingin fönguð, enda um
25 stiga hiti og sól.
Við ákváðum að hafa eitthvað öðruvísi í
matinn og fundum önd hjá slátraranum. Öll matargerðin
var tilraunastarfsemi af hæðstu gráðu enda endur
eitthvað sem við höfum aldrei eldað áður. Allt
heppnaðist þetta með besta móti og Burger King var því
ekki notað sem back up eins og plan B gerði ráð fyrir.
Borðað var út í garði og gerði það jólin aðeins
öðruvísi.
Þegar pakkarnir voru opnaðir kom í ljós
að þeir höfðu verið sendir frá Íslandi áður en þær
fréttir bárust yfir netið að ræktin hafi verið stunduð
af mikilli alvöru síðastliðnar 12 vikur, enda nota ég
boli núna af stærðinni Small en ekki XL eins og áður.
Jæja, Í dag, jóladag á að hitta Pedro og
halda KIWI jól sem eru þannig að fjölskyldan hittist og
grillar saman og drekkur öl og vín. Sjáum hvernig það
gengur.
Ég setti myndir af þessu öllu og eru
þær hérna.
GLEÐILEG JÓL TIL ALLRA. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 20. desember 2005
HELGIN MEÐ ASMUND OG KING KONG |
|
 Ég
var að bæta inn
myndum frá helginni en ég fór með Asmund og Stien í
skoðunarferð um Coramandel Peninsuala. Keyrt var á
laugardagsmorgni og fyrsta stopp var á Hot Water Beach,
sem er í um 2 1/2 tíma keyrslu frá Tauranga. Vegirnir
eru mjög þröngir og hlykkjóttir, svo hlykkjóttir að það
varð sumum um megn. Þurfti t.d. Stien að skila
morgunmatnum í fyrsta stoppi eftir nokkurn svima og
ógleði á leiðinni.
Hotwater beach er sérstök fyrir það að það er
uppspretta heits vatns sem rennur undan kletti þar á
ströndinni. Uppsprettan er þannig staðsett að einingis
er hægt að njóta heita vatnsins þegar fjara er. Mætir þá
herskari fólks með skóflur og grefur holur í sandinn og
flatmagar þangað til að flæðir að aftur.
Að þessu loknu var farið í keyrslu um
skagann á ennþrengri malar vegum til að skoða Kauri tré.
Kauri tré voru mjög algeng hérna á öldum áður en í
dag er búið að höggva og eyða um 97% af
heildarfjöldanum. Í dag eru þau friðuð, sem betur fer.
Þetta eru ein af stæðstu lífverum jarðarinnar og það
stæðsta sem við sáum var t.d. um 60 metra hátt, 9 metrar
í ummál og 1200 ára gamalt. Það var því að verða 100 ára
gamalt þegar fyrstu menn komu til Íslands, samkvæmt
Íslandsögunni.
Að sjálfsögðu var farið á næturlífið í
Tauranga á föstudeginum og Auckland á laugardeginum.
mikið fjör og mikið gaman svona þegar maður fær frelsi
aftur frá ræktinni.
Sjá Blogg
hjá Badda. Spurning hvort að næsta veðmál verður
ekki hvor okkar getur bætt á sig aftur sömu þyngd á sem
skemmstum tíma.
Við enduðum síðan helgina í bíó og sáum
King Kong. Engin smá mynd. Ekki spurning að þetta verður
ein af myndum ársins eða áratugarins. Hryykalegar
tæknibrellur og ég verð bara að segja að ég var sepnntur
yfir myndinni nánast allan tímann. Mæli með henni við
all.
Setti inn soldið af myndum og reyndi að
velja aðrar en
Baddi setti inn hjá sér en það var reyndar ekki
alltaf hægt.
PS. ÉG VARÐ AÐ SETJA ÞESSA MYNDI
INN AF MÉR Í NÝJU FYLKIS HANDBOLTATREYJUNNI SEM INGA KA
FAN SENDI MÉR OG INGÓ HENNAR SPILAR Í. LOKSINS Á ÉG
STUTTERMA FYLKISTREYJU. TAKK TAKK BÆÐI TVÖ. (og ég meira
að segja passa í hana, eins og allar aðrar
Fylkistreyjurnar, svona allt í einu) |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 10. desember 2005
LÍKAMI FYRIR LÍFIÐ - BODY FOR LIFE - 12 VIKNA ÁSKORUN |
|
FOR ENGLISH VERSION
CKLICK HERE
ÁSKORUNIN
Það
var hérna um árið, svona ca 1985, að ég var fit og
flottur. Síðan þá hefur mér tekist að byrja að reykja,
hætta að reykja, ég var byrjaður að drekkað áður og er
ekki hættur, og ég hef náð á þessum 20 árum að bæta á
mig um 20 kg hið minnsta. Það var því ekki orðin fögur
sjón að líta á mig í prófíl og vel skiljanlegt að engin
hafi litið við mér af hinu kyninu.

Þegar ég kom hingað fyrst
þá var ég rétt um 100 kg þó að ekki hafi það verið í
langan tíma. Það þurfti því orðið að taka aðeins til í
kroppnum og hreinsa út áfengi, ruslmat og annað sem
niður hafði farið síðustu 2 áratugina, auk þess þurfti
lifrinni smá breik eftir háskólaárin. Við ákáðum því vininrnir
ég og Baddi að taka 12 vikna LÍKAMI FYRIR LÍFIÐ áskorun.
Til að halda sér við efnið gerðum við veðmál þar sem
sigurvegarinn í keppninni fengi flugfar til Ástralíu í
vinning. Tekið var samtala af töpuðum kíló prósentum og
tapaðri fitu prósentu.
Þar sem ég er að vinna í
Rotorua og þarf að vera mættur þar kl. 7.30 á morgnana
var ekki um neitt annað að ræða en að vakna fyrir
klukkan 5 á morgnana og vera mættur í ræktina kl. 5.30.
Jamms ég sagði 5.30 á morgnana. Þá er klukkutíma æfing
og svo er ég sóttur kl. 6.40 til að fara í vinnuna.
Þetta voru því langir dagar, enda ekki kominn heim fyrr
en um 6.30 á kvöldin til baka. Æft var 6x í viku og
missti ég einungis úr 2 skifti, annað þar sem ég svaf
yfir mig og hitt þar sem ég var “þreyttur” eftir fund
með Roger Taylor kvöldið áður.
Mataræðið var sérstaklega tekið í gegn og
var keypt inn og eldað fyrir alla vikuna á sunnudögum og
allur matur var viktaður og settur í dollur og síðan
frystur. Borðað var 5x á dag og mátti að sjálfsögðu ekki
drekka bjór né afengi. Það gekk svo langt að ég meira að
segja sleppti Gininu mínu nokkrar helgar til að ná betri
árangri. Bjór var bannorð og keyptum við t.d. kassa af
honum áður en við byrjuðum og hann var ennþá óopnaður
þegar foreldrar Baddia komu hingað í heímsókn. Ótrúlegt
en satt.
En til að gera langa sögu
stutta þá var þetta vel erfiðisins virði. Þetta var puð
og streð og alltaf jafn erfitt að vakna svona um miðja
nótt. En við héldum okkar striki, enda flugfar í veði.
Niðurstaðan varð sú að ég tapaði 16 kg á þessum 12 vikum
og hef sennilega aldrei verið jafn fit á ævinni,
allavega ekki sl. 2 áratugina. Hérna er árangurinn í
tölum:
|
|
Fyrir |
Eftir |
Mismunur |
|
Þyngd |
92,8 kg |
76,95 kg |
15,85 kg |
|
Líkamsfita |
24,83% |
14,34% |
10,49% |
|
Vöðvamassi þyngd |
69,76 kg |
65,92 kg |
3,84 kg |
|
Líkamsfita þyngd |
23,04 kg |
11.03 kg |
12.01 |
|
Mittismál |
109 cm |
88,5 cm |
20,5 cm |
|
Samtals tapaðir sentimetrar |
|
|
46 cm |
Þegar keppnin byrjaði
þótti mér ekki líklegt að ég næði að sigra hinn stóra
Badda enda var hann 121,4 kg í byrjun en önnur varð
raunin. Ég svoleiðist rústaði honum í þessu þegar á
heildina var litið, þrátt fyrir að hann hafi tapað
fleiri kílóum eða 21,5 (sjá síðuna hans)
TRIATHLON

Til að fá síðan smá auka
áskorun í þetta þá ákváðum við að skrá okkur í TINMAN
TRIATHLON hérna við fjallið þann 4. desember. Það fer
þannig fram að fyrst þarf að synda 750 metra í sjónum.
Síðan hjóla 20 km og þar á eftir að hlaupa 5,5 km. Ég
skal alveg viðurkenna að þetta var það laaang erfiðasta
líkamlega sem ég hef nokkurn tímann gert, enda aldrei
tekið þátt í nokkurri keppni af nokkru tagi síðan ég
hætti í fótboltaum um 18 ára aldurinn. Þetta hins vegar
tókst og lauk ég keppni á um 98 mínútum, ca 4 mínútum á
undan Badda, hinum unga. Því miður var ekkert veðmál í
boði þarna.
Ég held að ef ég bæti mig
í sundinu og læra að skynda skriðsund þá muni ég ná að
klára ólympíu vegalengdina á næsta ári sem er 1500 m
sund, 40 km hjólreiðar og 10 km hlaup. Það er allavega
markmiðið fyrir næsta ár.
Ég fann link með myndum teknum af
mótshöldurum af mér og er hægt að
sjá þær hérna.
ÁFRAMHALDIÐ
Núna er bara að reyna að
halda sér við efnið og þau 77 kg sem ég er í dag.
Jíbbbíííí. Ekki slæmt hjá kallinum á FIMTUGSALDRINUM. Ég
segi bara að finnst ég get þetta, þá geta þetta allir.
Ég gerði um þetta
video
sem er hérna og myndir af þessu öllu, auk þess sem ég
hef verið að bralla sl. 3 mánuði,
eru
hérna Videoið hans
Badda er hérna.
KEEP FIT |
|
|
|
|
|
|
Miðvikudagurinn 7. desember 2005
SVAF YFIR MIG |
Spáiði í því. Klukkan er núna 6.30 að
morgni og ég svaf yfir mig. Ég er vanur að vakna klukkan
6 til að koma mér í vinnuna. Þetta er öðruvísi en áður
þegar ég var að vinna á Íslandi og þurfti að mæta kl. 9
að morgni. Þá var klukkan stillt uppúr 8 að morgni,
farið framúr uppúr 8.30 og rétt náð að mæta um 9leytið.
Sumrið er deffinetly komið hérna með um 25 stiga
hita og sól. Helgin fór í það að liggja á ströndinnni og
horfa á fellga unga kvenmanslíkama. Reyndar fór ég að
kæta á laugardeginum og náði loksins og komast upp á
brettið sjálft. JÁ JIBBBÍÍÍÍÍÍ. Ég náði að sigla
sjálfur, þó að ekki hafi verið nema í um 10 sekúndur.
Næstu helgi mun þetta svo verða fullkomnað. Baddi mætti
og tók vídeo af þessu öllu þannig að ég mun birta það
við tækifæri og leyfa ykkur öllumj að hlæja að snilld
minni. |
|
|
|
|
|
|
Til baka á forsíðu
|
|
©
GINFAN.COM - STOFNAÐ 23. OKTÓBER 2003 - ALLUR RÉTTUR
ÁSKILINN |