WHAAASSSUUUP
 

Þriðjudagurinn 29 nóvember 2005

NÝJAR MYNDIR

Vinnan
Ég var búinn að lofa því að fyrir nokkru að setja inn myndir af verkefninu sem ég er að vinna í þessa stundina. Loksins lét ég verða af því. Ég er búinn að safna saman myndum sem hafa verið teknar á síðust 3 vikum. Fyrstu myndirnar eru frá því að fyrstu burðarstólparnir voru settir niður og þær síðust frá því á mánudaginn síðasta. Verkið gengur ekki sem best þessa stundina og það eru fullt af klúðri sem er búið að vera í gangi. Yfirleitt endar þetta á mínum herðum, rétt eða rangt, enda sá lægst setti á staðnum. En nóg um það í bili. Myndirnar eru hérna (Pictures REEC).
Jólaboð Mainzeal
Um siðust helgi var haldið lokahóf Mainzeal fyrir Centar area en við erum með skrifstour bæði í Hamilton og Tauranga. Þarna voru um 60 manns saman komin með mökum og gerðu sér mjög glaðan dag. Við þurftum að borga heila $15 fyrir matinn en þetta var svona svipaður veitingastaður og Holtið heima, einn af topp 3 veitingastöðum hérna. Boðið var upp á forrétt, aðalarétt og eftirrétt og voru allir drykkir innifaldið, GT á undan, rauðvín í massavís og koníak á eftir. Og ekki nóg með það, heldur fékk ég líka ávísun frá fyrirtækinu fyrir leigubíl heim um nóttina, sem ég reyndar gleymdi að nota, slíkt var ástandið.
Þetta var allvega frábært kvöld og allir skemmtu sér vel og vandlega. Myndir af þessu eru hérna (Pictures Mainzeal Xmas do).
 
 

Fimtudagurinn 17. nóvember 2005

HÚÐKRABBAMEIN Á NÝJA SJÁLANDI

Það var einn morguninn í vikunni að ég var sem oftar að hluta á útvarpið á leiðinni í mínum klukkastundar akstri í vinnuna til Rotorua, að sagt var frá því í fréttum að Húðkrabbamein væri á mjög háu stigi hérna á Nýja Sjálandi. Ekki nóg með það heldur er Bay of Plenty þar sem við búum með hæðstu tíðnina í öllu landinu, enda sólarstundir hérna um 2.100 á ári.
Hér í landi deyja hvorki meira né minna en 250 manns úr húðkrabba á ári, Jamms 250 manns. Ég var ekkert smá hissa.
Sólin hérna er reyndar mjög sterk þar sem við erum það nálægt suðurhvelinu að ósongatið í himinhvolfinu er tiltölulega stórt. Hér eru til dæmis reglulega gefnar út viðvaranir til fólks að vera ekki úti í beinni sól á milli klukkan 11 á morgnana og 2 á daginn vegna styrkleikans. Enginn hérna með viti notar sólarvörn með minni styrkleika en 30, nema vitleysingar eins og við Íslendingarnir.
Maður er reyndar farinn að hugsa aðeins betur um þetta og fékk ég því framgengt að það var keypt sterk sólarvörn í vinnuna hjá mér þar sem ég er úti við meiri hluta dagsins. Sem sagt, passa sig hérna niður frá og tékka á öllum dökkum húðpunktum strax, og hana nú.
 
 

Sunnudagurinn 13. nóvember 2005

KITE SURFING OG FLEIRA

Það kom loksins að því að ég gæti farið aftur að kæta hérna. Það eru búnar að vera margar helgar þar sem vindur hefur verið annað hvort of lítill eða of mikill. Ég var orðinn svo leiður á þessu að ég keypri mér enn einn flugdrekann í vikunni á netinu. Þetta er lítill dreki, 9,5 m2 og dugar vel í miklum vindi. Ég hef þvi ekki lengur afsökun fyrir því að það séu ekki aðstæður til að ná tökum á þessu.
Ég reyndi vel í dag að komast upp á brettið en tókst ekki vegna tæknilegra örðugleika. Sennilega vegna þess að ég vissi ekkert hvað ég var að gera þó að ég vilji kenna litlum vindi um þegar ég var á sjónum. Reyndar fór ég svo aftur út án brettisins og gekk mjög vel í body draging eða líkama dragi og er ekki spurning að í næsta skifti mun ég komast upp á brettið.
Þar sem Baddi mætti til að fyljgast með mér þá tók hann vídeo af þessu athæfi mínu og annara þarna á svæðinu og þeim aðstæðum sem við erum að kætast við. Sækja Video hér.
Vinnan gengur annars vel og mun ég setja inn myndir af því sem ég er að gera í næstu viku. Þar verður hægt að sjá hvernig svæðið var í byrjun og hvernig það er orðið í dag eftir að við erum búnir að setja alla þessa burðarstólpa niður. Upphaflega var planað að setja niður 75 stólpa sem hver er 250 mm í þvermál og 6 metra langir. Við hins vegar enduðum í  125 stólpum og vorum komnir í 325 mm og 9 metra langa. Það er dæmi um lélegt burðþor jarðarinn þarna. Á þessu svæði var t.d. 39° heitt vatn á 1 metra dýpi og á 6 metrum var það komið í um 59° C og munaði ekki mörgum gráðum um að það væri ekki hægt að nota neins konar burðarstólpa eða byggja á þeim hluta lóðarinnar. Næsta skref er að steypa sökklana og síðan verður haldið áfram eftir um 2 vikur að reka niður um 60 burðarstólpa í viðbót við enda byggingarinnar.
Meira fljótlega.
 
 

Fimtudagurinn 3. nóvember 2005

MYNDIR OG VIDEO FRÁ AÐALFUNDI RTNZ

Þá tóks mér að setja saman myndasyrpu um Aðalfund Landtjórnar RTNZ. Myndirnar eru hérna. Einnig skellti ég saman smá vídeoi af þessu sem reyndar er 7 mínútur og 7 Mb. Það gæti því tekið smá tíma að dowloada því. Videoið er hér.
 
 

Fimtudagurinn 27. október 2005

VARAFORSETI OG IRO ROUND TABLE NÝJA SJÁLANDS, JÁ ÞAÐ ER ÉG.

Eins og að neðan greinir þá lét ég mig hafa mikið ferðalag niður til hins fjarlæga suðurs á suðureyjunni til að sitja aðalfund Round Table Nýja Sjálands.
Það er nú svo sem ekki í frásögur færandi sem slíkt nema kanski fyrir það að ég gaf kost á mér til setu í landstjórn og var kjörinn til þeirra verka sem ég ætlaði mér.
Annað þeirra embætta er Varaforseti landstjórnar RTNZ. Hérna eru hinsvegar kostnir 2 varaforsetar, einn fyrir suðureyjun og annar fyrir norðueyjun þar sem ég bý. Það er því ekki sjálfgefið að ég verð forseti hreyfingarinnar á næsta ári eins og venjan er á Íslandi, enda getur forseti hér boðið sig fram til endurkjörs, en ég mun gera mitt besta til að ná fram vilja mínum.
Hitt embættið sem ég mun gegna er IRO landstjórnar en hann sér um alþjóðleg samskifti hreyfingarinnar. Við hérna á  NZ höfum ekki verið mikið í samskiftum við erlendar hreyfingar síðustu árin vegna þrenginga og fjárhagsskorts en ætlunun er að reyna að bæta úr því. Ég mun því setja mig í samband við Eggert IRO á Íslandi og fá góð ráð.
Annars gerðist það helst að við fórum í fjallferð á slyddu jeppum um fjalllendið og strandirnar, ég lenti í návígi miklu við sæljón og átti fótum mínum fjör að launa þegar það þótti ég nálgast heldur mikið, ég var keyrður um í Pontíak fornbíl af árgerð 1937, ég sá spíttbáttakeppni (jetboats) þar sem bátarnir innihalda nitroknúna V8 vél sem skilar um 1.000 hestöflum, stórfengleg sjón, ég fór á eina pöbbin sem í bænum Balclutha er og hitti hina unglingana, ég var klæddur sem gangster á grímufataballinu og varð í 2. sæti ásamt félögunum, ég smakkað Gin og Tónik, ég smakkað geitakjöt. (mmmmm). Það var ekki margt sem ég prufaði ekki um helgina.
Að sjálfsögðu tók ég helling af myndum og videoum sem ég mun setja inn um eða eftir helgina.
 
 

Föstudagurinn 21. október 2005

LETI ER ÞETTA

Mikið helvíti er maður orðinn latur að uppfæra síðuna hjá sér. Reyndar svo sem ekki mikið nýtt að gerast. Allt að komast í fullan gang í Rotorua og loksins að myndast eitthvað fyrir mig annað að gera en pappírsvinna.

Við erum búnir að vera að reka niður burðarstólpa undir bygginguna sem ég mun sjá um og ætla ég að setja myndir inn af því í næstu viku ásamt myndum af verkinu í heild sinni og hvernig það er statt í dag. Það er talað um að við séum núna komnir 18 vikur inn í verkefnið og strax orðnir rúmum 10 vikum á eftir áætlun. Ekki slæmt það. Ég segi nánar frá þessu eftir helgi.

Annars er ég að fljúga niður á suðureyjuna núna í dag og verð fram á Mánudag, enda er löng helgi hjá okkur. Flugið tekur um 5 klst, eða svipað og Ísland-New York. Ástæðan er sú að þetta er mjög sunnarlega og ég þarf fyrst að fljúga til Wellington, höfuðborgarinnar, þaðan til Christchurch og svo áfram til Dunedeen. Þaðan tekur svo við 1 klst akstur til Balkutha. Þetta er því um 8 klst. ferðalag hús í hús.

Round Table er að halda Aðalfund landstjórnar og að sjálfsögðu ætla ég að mæta og taka þátt. Haldinn er fundur í um 2 klst og restin er bara fjör, ekki það að mér líki svoleiðist og það áfengi sem þar er haft um hönd en maður lætur til leiðast. Ég verð með myndir og fleira af þessu eftir helgi.

 
 

Þriðjudagurinn 4. október 2005

MYNDIR ÚR ROUND TABLE SKÍÐAFERÐ

Fyrir um 3 vikum fór ég á skíði til Whakapapa með 3 Round Table félögum. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að skíðasvæðið var lokað þegar niðreftir var komið. Lagt var af stað klukkan 5 um morguninn og keyrt í þá rúmu 3 tíma sem þurfti. Þegar í fjallið var komið biðum við til rúmlega 10 til að vita hvort að ekki ætti nú að fara að opna. En allt kom fyrir ekki. Það var snjóbilur í fjallinu og nokkuð mikið rok þannig að ekki var stigið á skíðin í þetta skiftið. Í staðinn var spilaður Snoker og farið í Inni Fjallaklifur. Það var mikil snilld og puttarnir náðu varla að halda á Gin glasinu um kvöldið vegna þjálfunarleysis, sem er ótrulegt miðað við alla þá æfignu sem þeir hafa fengið í glasalyftingum.

Þegar ég svo k0om heim til mín eftir helgina frétti ég að Íslenska skíðlandsliðið hafi verið við æfingar í sama fjalli, sömu helgi, bara hinum megin við hrygginn. Hvað voru þeir eiginlega að bralla hérna hinum megin á hnettinum.

Allavega, hérna eru myndir frá helginni.

 
 

Fimtudagurinn 29. september 2005

ÉG VAR KLUKKAÐUR

Jamms, ég var klukkaður. Þetta er búið að ganga hratt um netið síðust vikur þetta klukk og verði maður fyrir því þarf maður að segja frá 5 useless hlutum um sjálfan sig sem engu máli skifta. Hérna eru mínir.

 

1. Þegar ég var lítill krakki spilaði ég fótbolta sem senter í Fylki í 6. flokki og á fyrsta ári í 5. flokki. Þar sem þetta var á bernskuárum Fylkis vorum við ekki sem bestir. Ég sat því alltaf á miðjulíunni og beið eftir að boltinn kæmi til mín. Í 5. flokki einhvern tímann ákvað ég að skifta um stöðu. Ég var Orin leiður á því að sitja frammi og gera ekki neitt. Ég gerðist því markvörður og var hinn liprasti. Ég var valinn í úrtak fyrir unglingalandsliðið þegar ég var af augljósum ástæðum unglingur. Þar keppti ég við þekkta menn eins og Gumma markvörð Þróttar, Birki landsliðsmarkvörð og Baldur sem lengi spilaði með Val og KA. Þetta var undir foristu Lalla Lofts. Ég náði ekki í endalega hópinn.

2. Ég hef tekið þátt í að ferma 2 unglinga í fyrri sambúð en hef aldrei skift á bleiu á ungabarni.

3. Ég var mótorhjólatöffari á yngri árum og átti bæði Suzuki 50 og Hondu SS 50. Góðir tímar það. Ég meira að segja vann á mótorhjólaverkstæði á timabili. Af þessum sökum var ég ekki hinn vinsælasti hjá kvenþjóðinni á þeim tíma þar sem stundum voru smá olíublettir undir nöglunum á mér. Olíublettirnir eru reyndar horfnir en aðdráttaraflið hjá kvenþjóðinni hefur samt ekkert aukist. Hmmmmmm.

4. Ég fæddist tæpum 2 mánuðum fyrir tímann.

5. Ég hef aldrei orðið eins hræddur á æfinni og niðrí gullnámu í Suður Afríku. Þar var ég staddur um 1.200 metra undir yfirborði jarðar í þröngri sprungu (um 50-100 cm) sem búið var að grafa gullsandinn úr. Jarðveginum var haldið uppi með timbur trjábolum og voru margir þeirra klofnir í tvennt sökum þungans af 1,2 km af jarðlagi fyrir ofan þá. Þegar jörðin byrjaði að titra í kringum okkur litum við félagarnir hvor á annan og töldum þetta endalokin. Þetta var hins vegar háþrýstidæla sem dældi restinni af þeim litla sandi sem eftir var til botnins þar sem honum var dælt upp aftur. Ég held að ég hafi aldrei pissað jafn gulu og eftir þetta adrenalín kikk.

 

Og þar hafiði 5 tilgangslausa hluti um sjálfan mig.

 

Ég klukka Beggu og Kúrbítinn

 

Annars er allt við það sama hérna. Ég átti bara að vera 3 vikur hérna í sundlauginni í Tauranga og fara síðan aftur til Rotorua. Núna er sama baráttan að byrja og var í Hamilton og verð ég eitthvað lengur í sundlauginn en áætlað var. Ég er verulega svekktur yfir þessu þar sem þar er ekkert að gera og telst ég heppin ef ég næ 1-2 klukkutímum í virkri vinnu á dag. Hinn tíminn fer í það að ganga um svæðið með teikniborð og þykjast hafa eitthvað að gera. Mikið er þetta leiðinlegt. Ekki nema vona að iðnaðarmennirnir séu farnir að gera grín að manni og kalla mann orðið "The man with the clipboard"

 
 

Laugardagurinn 24. september 2005

HIN FULLKOMNA KONA ÓSKAST

Fékk þetta sent frá Andrew Ling sem er forseti Round Table New Zealand. Ef einhver þekkir konu sem þessi lýsing á við þá vinsamlega látið mig við hið fyrsta.

 

 
 

Laugardagurinn 10. september 2005

HMMMMM - NÝR VINNUSTAÐUR -AFTUR - HVAÐ ER Í GA NGI

Þetta er nú að verða heldur ótrúlegt. Ég var rétt að komast í gang í Rotorua, búinn að setja upp allt gæðastjórnunarkerfið og farinn að kynnast teikningunum þegar ég fékk það verkenfi að verða office bitchin sem sér um að flokka allan pappírinn. Ég var meira að segja settur í það að flokka teikningar og gera ritara störfin á staðnum við mikla óánægju mína.

En viti menn. Eins og pressan var mikil að flytja mig frá Hamilton til Rotorua þá náði ég bara að vera þar 4 daga, nákvæmlega, áður en mér var sagt að ég yrði fluttur á enn einn vinnustaðinn.

Núna á mánudaginn verð ég sendur til Taranga Aquatic center, sem er svona sundlaugargarður eins og Árbæjarlaugin, í hinu eina sanna Fylkishverfi. Þar á ég að vera í 3 vikur en mér var lofað í þetta skiftið að ég yrði þar einungis í 3 vikur og síðan fær ég aftur til Rotorua.

Ég hef 2 kenningar um þessa flutninga alla. Önnur er sú að enginn vill vinna með mér og þeir senda mig því í burtu um leið og þeir fara að kynnast mér og hin er sú að ég hafi staðið mig það vel að allir vilja fá mig til að klára ófrágengin mál og heimta mig því á aðra staði en þá sem ég er á á þeim tíma.

Hvað haldið þið??????

Allavega, Það verður gaman að fá að kynnast enn einu verkefninu á þessum skamma tíma vegna þess að það gefur mér einn eina reynsluna, á enn einu sviðinu í byggingageiranum.

ÉG VERÐ SNILLINGUR INNAN SKAMMS.

 
 

Miðvikudagurinn 7. september 2005

NÝR VINNUSTAÐUR - LAAAAANGUR VINNUDAGUR

Jæja, þá er maður fluttur alfarið til Tauranga aftur og ég á BARA 1 heimili aftur. Verð nú að segja eins og er að það er voða gott að vera kominn til baka og þurfa ekki alltaf að vera að bera á milli staða fatnað, tölvubúnað og annað. Verkefnið sem ég er byrjaður í núna heitir Rotorua Energy Event Center og er íþrótta og ráðstefnuhöll sem kostar um 1 miljarð ÍSK. Að vísu verður að taka tillit til þess að byggingakostnaður hérna er mun lægri en heima í Íslandi og þetta gæti því jafnast á við um 1,5-2 miljarða í bygginu á klakanum.

Rotorua er jarðhitasvæði Nýsjálendinga og lyktin er eftir því, Kýsil sulfat eða hvað það nú er. Allir skurðir sem á lóðinni eru grafnir eru taldir til aðþrengra eða lokaðra svæða vegna gasmyndunar. Enginn má fara þar niður nema með sérstaka þjálfun í vinnu í lokuðum rýmum og er ég að fara á slíkt námskeið bráðlega. Gastegundirnar sitja niður við botninn í um 50 cm lagi og drepa mann strax. Það er enginn lykt og og enginn fyrirvari, þú bara dettur niður, lamast og deyrð samstundis. Ég verð að setja nafnið á þessum gastegundum inn næst þegar ég skrifa þar sem ég man ekki nafnið ennþá.

Eins og þið heyrið þá er þetta mjög spennandi verkefni (jaaaa, kanski svona fyrir utan gasið) nema að einu leiti. Það er fjarlægðin. Þar sem þetta er í Roorua sem er í um 90 km fjarlægð frá Tauranga þá tekur það mig um 1 klst og 20 mínútur að keyra hvora leið og það geri ég á hverjum degi. Vinnudagurinn er því um 12 klst, ég fer að heiman kl. 06.15 og kem heim aftur undir kl 18.30. ÚFFFF, og þetta verður vinnan mín næstu 2 árin.

 

PS. Byggingin sem við erum að byggja er bakvið húsið hérna til hliðar. Það er heitt í kolunum eins og sést.

 
 

Miðvikudagurinn 31. ágúst 2005

DÝR DAGUR Í NZ

Það er ekki öll vitleysan eins. Áður en ég fór að keyra reglulega á milli Hamilton og Tauranga tók ég eftir því að hjöruliðskrossinn, sem hér er kallaður CV joint, í hægra framhjólinu var farinn að slappast hjá mér. Hann hefur síðan farið síversnandi viku eftir viku. Var ástandið orðið þannig að ég þurfti stundum að stoppa til að losa um spennu sem hafði myndast og gerði bílinn íllkeyranlegan. Núna á mánudaginn keyrði hins vegar um þverbak þar sem ég þurfti að stoppa 6 sinnum til að losa um titring og spennu. Ég sá því fram á það að komst ekki aftur til Tauranga nema með viðeigandi ráðstöfunum. Ég tók mig því til og pantaði tíma á verkstæði, því fyrsta sem á vegi mínum varð á leiðinni í vinnuna. Þessi viðgerð tók 2 daga og kostaði mig heila 260 NZ$.

Á sama tímapunkti eða á mánudaginn varð mér á að fá mér Risa Kit Kat Chunky, eins og mörg önnur kvöld. Þetta kvöld var reynar öðruvísi þar sem það brotnaði upp úr einni tönninni á mér. GRRRRRRRRR. ÉG tók mið því til í dago og fór í gulu síðurnar og fann tannlækni sem mér leist nokkuð vel á. Þeir birtu myndir af sér og meðal annara var kvenmaður þarna, ívið yngri en ég og taldi ég mig nú í góðum málum. Ég hringi og vonast til að fá tíma hjá þessar fallegu stúlku. Tími var laus núna áðan og skellti ég mér, glaður í bragði og bjóst við hinu besta. En viti menn, að sjálfsögðu lenti ég á einum af karlmönnunum, mér til mikilla vonbrigða. Þetta er allavega fyrsti erlendi tannlæknirinn minn og kostaði þessi stutta heimsókn mín 220 NZ$.

Samtals kostaði þessi dagur mig því rúmar 20.000 kr.

 
 

Þriðjudagurinn 30. ágúst 2005

VATNASKIL Í NZ

Það hefur soldið verið rætt um skil vatns í hús nérna á vinnustaðnum sem ég er á núna. Tilefnið er að sjálfsögðu það að verið að byggja vatnshreinsistöð framtíðarinnar fyrir Hamilton og 2 af stæðstu tönkunum á staðnum í dag mígleka og kostuðu okkur mikil vandræði í einum að þeim tanki sem ég sá um að byggja.

Hérna í Hamilton og mörgum öðrum bæjum í NZ er talið að um 60% af því vatni sem dælt er út úr stöðinn komist ekki til skila. Í Christchurch á suðureyjunni er talið að um 80% af því vatni sem dælt er út úr samksonar stöð komist ekki til skila. Ástæðan eru gamlar og lekar leiðslur út um alla borgir og kostnaður við endurnýjum yrðu  borgunum ofviða.

 Þetta vekur mann til umhugsunar um verðmyndum á vatni og hvað maður þyrfti í raun að borga lítið fyrir það ef að skil væru  betri. Skildi þetta vera sama vandamálið á Íslandi???

 
 

Fimtudagurinn 25. ágúst 2005

TWIN TOWERS Í KÚALA LÚMPUR

Er ekki skrýtið hvernig hlutirnir þróast í kringum mann. Þegar ég byrjaði að vinna hérna í Hamilton þá leiddist mér óheyrilega fyrir utan vinnuna þar sem ég þekkti engann. Núna tæpum 3 mánuðum síðar hef ég varla tíma til hitta alla sem ég er búinn að kynnast og hvert kvöld er planað.

Ég fór t.d. út á þriðjudagskvöldið með Steve Geusenbroek sem og flesta aðra þriðjudaga. Ég leigði herbergi hjá honum þegar ég kom hingað fyrst og þegar Lions voru að spila rugby hérna þá byrjuðum við að fara og fá okkur öl og mat ásamt því að horfa á Rugby á hverfispöbbnum. Við höfum haldið í þá hefð og í þessari viku mætti hann með félaga sinn sem er fæddur og uppalinn í Indonesíu.

Það sem var áhugavert við þennan mann var að að hann starfaði sem Safety Manager eða öryggistjóri (öryggi á vinnustað) við byggingu tvíbura turnanna í Kuala Lumpur. Þessir Turnar eru einir af þekktustu háhýsum heimsins. Ég fékk að vita meðal annars að það dóu 8 manns við byggingu turnanna.

Það merkilegasta var þó það að það voru 2 fyrirtæki sem byggðu þá. Samsung byggði annan turninn og Japansk verktakafyrirtæki hinn. Þeir byrjuðu á sama tíma og það var keppni allan tímann um það hvort fyrirtækið kláraði sinn turn fyrst. Byggingatíminn var mjög jafn allt upp að 60. hæð en þá gerði japanska fyrirtækið mistök sem leiddi til skekkju í kjarnavegg byggingarinnar og tafði þetta þá í um 2 vikur.

Þessar 2 vikur urðu til þess að þeir töpuðu baráttunni, enda var byggingahraðinn ótrúlegur eða 1 hæð á 3 dögum. Samsung reisti því um 6 hæðir á þessum 2 vikum sem japanarnir töfðust. ÓTRÚLEGT. 1 hæð á 3 dögum. Prufiði að fylgjast með byggingahraða háhýsa á Íslandi svo sem hjá BYGG. Þeir teljast mjög góðir að reisa 1 hæð á 7-10 dögum og flatarmálið er mun minna.

Þetta var líka hæðsta steypta bygginga í heimi á þessum tíma en burðarvirki þess er uppsteypt upp að 80. hæð en þar fyrir ofan tekur við stálgrind. Fyrir þetta kvöld hélt ég að steypa hefði ekki þann sveiganleika sem þarf við bygginu háhýsa en það er greinilega ekki rétt. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.

Það sem ég þó aðalega græddi á þessu kvöldi var samband við mann sem þekkir til í einu stæðsta byggingaverktaka fyrirtæki í heimi og þeir eru alltaf að leita að góðum mönnum. Það er draumur minn að taka þátt í bygginu skýjakljúfs í náinni framtíð (veit ekki afhverju en hef langað þetta lengi) og þetta gæti gert þann draum að einhverju öðru en draum.

 
 

Miðvikudagurinn 16. ágúst 2005

ÞEGAR ÉG FÓR ÚT AÐ BORÐA UM DAGINN

Í síðustu viku fórum við með nokkrum vinum út að borða á vinsælum veitingastað. Ég tók eftir því að þjónninn sem tók pöntunina okkar var með skeið í skyrtuvasanum. Þetta var nú frekar óvenjulegt en ég leiddi það hjá mér. Þegar "glasabarnið" kom með vatnið til okkar, tók ég eftir því að hann var einnig með skeið í skyrtuvasanum og þegar ég leit í kringum mig tók ég eftir því að allt starfsfólkið var með skeiðar í vösunum sínum. Þegar þjónninn kom aftur með súpuna til okkar spurði ég hann: "Hvað er með skeiðina?"
"Sko...", útskýrði hann, "eigendur veitingastaðarins réðu ráðgjafafyrirtækið Greiningavinnsluna, sem eru sérfræðingar í skilvirkni og afköstum, til að endurskipuleggja alla verkferlana okkar. Eftir margra mánaða greiningu og tölfræðilegar rannsóknir komust þeir að þeirri niðurstöðu að skeiðin væri það áhald sem oftast dettur í gólfið. Gera má ráð fyrir að tíðnin sé 3 skeiðar á hvert borð á klukkustund. Ef starfsfólkið okkar er tilbúið til að mæta þessu vandamáli, þá getum við fækkað óþarfa ferðum í eldhúsið og sparað sem svarar 15 mannstundum á hverri vakt."

Eins og örlögin kusu þá missti ég skeiðina í gólfið og hann gat skipt henni út fyrir þá sem hann hafði í vasanum. "Ég næ í aðra skeið næst þegar ég fer inn í eldhús í stað þess að gera mér auka ferð þangað núna."
Ég var nú frekar "impressed" af þessu öllu saman.

Ég tók eftir því að það var lítill spotti hangandi út úr buxnaklaufinni hjá þjóninum. Þegar ég leit betur í kringum mig tók ég eftir að allir þjónarnir höfðu svona bönd hangandi út úr buxnaklaufunum. Þetta vakti forvitni mína á ný og áður en hann komst í burtu spurði ég þjóninn:

"Afsakið, en geturðu sagt mér af hverju þið hafið þessa spotta hangandi þarna...".
"Já, það...", sagði hann vandræðalega og lækkaði röddina "það eru ekki allir eins athugulir og þú. Þeir hjá ráðgjafafyrirtækinu sem ég nefndi áðan, fundu einnig út að við gætum sparað tíma sem eytt er á klósettinu."
"Hvernig þá?"
"Sko", hélt hann áfram, "með því að binda þennan spotta á þú veist ..., getum við togað hann út án þess að snerta hann og með því móti eytt þörfinni fyrir að þvo okkur um hendurnar og þar með stytt tímann á klósettinu um 76.39%."
"En eftir að þú nærð honum út, hvernig seturðu hann þá inn aftur?"
"Ja...", hvíslaði hann jafnvel enn lægra, "ég veit ekki um hina, en ég nota nú bara skeiðina."

 
 

Mánudagurinn 8. ágúst 2005

ÍSLENSKUR TEXTI Á DVD MYND HÉRNA Á NZ

Við félagarnir tökum okkur DVD á leigu í gær sem er svo sem ekki í frásögur færandi. Þetta var myndin The pacifier me van diesel þar sem hann fer í sérsveitarverkefni hjá fjölskyldu einni. Þetta er týpisk Walt disney mynd þar sem þrjótarnir fá að sjálfsögðu að kenna á því undir lokin. Þegar við settum myndina í og ætluðum að byrja að spila hana rákum við hins vegar upp stór augu. Haldiði ekki að þarna hafi verið hægt að velja íslenskan texta. Ótrúlegt. Af öllum tungumálum í heiminum velja þeir íslenskan texta hérna down under.. Við horfðum því á myndina með íslenskum texta og komumst að því að hún heitir Snuddan á Íslensku.

Annars ligg ég heima hjá mér í dag venga veikinda. Lagðist í einhverja skítaflensu á föstudaginn og var ekkert að skána í gær. Ég ákvað því að notfæra mér einn af fáum veikindadögum sem ég á og mæta tvíefldur til vinni á morgun.

 
 

Sunnudagurinn 31. júlí 2005

ÖRSTUTT FÆRSLA

Rétt svona í lok helgarinnar. Var að koma úr bíó. Sáum The Island sem er nokkurs konar framtíðarmynd um klónun manna og afleiðingar þess þegar klónin fara að hugsa. Nokkuð góð mynd með frábærum tæknibrellum.

Ég kom ekki hingað til Tauranga fyrr en á Laugardaginn þar sem ég þurfti að vinna. Ætlaði að vinna í pappírsmálunum mínum en tókst ekki þar sem það voru endalausir hlutir á staðnum að redda.

Mér var líka sagt á laugardaginn að ég myndi ekki ílengjast í Hamilton nema út Ágúst. Hamilton varð undir í þeirri baráttu sem hefur verið um að hafa mig í vinnu og flyt ég því aftur hérna til Tauranga alfarið aftur og mun verða í Ráðstefnuhúsinu í Rotorua sem á að kosta rúman Miljarð í byggingu og tekur um 15 mánuði. Ég er mjög sáttur við þetta, enda verð ég búinn að  byggja 3 af þessum 4 tönkum sem ég er að sjá um og öll vandamál sem slík leyst.

Jæja, svefninn bíður enda þarf maður að vakna klukkan 5.30 í fyrramálið til að keyra til Hamilton.

Já, og by the way. Ég bakaði Rúgbrauð aftur um helgina og það heppnaðist bara eins og hjá útlærðum bakara. mmmmmmm

Meira siðar.

 
 

Til baka á forsíðu

 

© GINFAN.COM - STOFNAÐ 23. OKTÓBER 2003 - ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN