|
Ég
sagði ykkur frá því í síðustu viku að hérna hafi komið
sú mesta rigning sem ég hafi nokkurn tíman séð. Sú
rignir var smámunir miðað við þá rigningu sem búin er að
vera hérna í dag.
Lýst var yfir neyðarástandi í Tauranga, enda hrundu
um 5 hús niður brekkur þar sem jarðvegurinn gaf sig og
fleiri fleiri garðar haf haft búferli þar sem þeir runnu
niður í nágrannagarðana. Mikil flóð mynduðust á götunum,
allt upp í meters djúp þar sem niðurföll höfðu engan
veginn undan úrkomunni og skapaði þetta eitt allsherja
umferðaröngþveit. Auk þess þurfti að loka vegtengingum á
milli hverfa vegna þessra flóða, t.d. hafnarbrúnni inn í
hverfið okkar, Mt. Maunganui. Brýr hrundu og lokuðu
aðkomu í bæinn og komst til að mynda einn af
skrifstofunni okkar ekki í vinnu vegna þessa.
Hræðilegt slys varð hérna rétt fyrir utan sem rekja
má til rigningarinnar og fórust 8 manns þar á einu
bretti, allt saman ferðamenn nema bílstjórinn.
Úrkoman varð230 mm á 10 klst og búist er við að það
rigni um 120 mm í viðbót sem gerir 350 mm á einum
sólahring. Þetta er því ekki búið. Ef farið er viku
aftur í tímann og því bætt við er úrkoman orðin yfir 500
mm á 9 dögum sem er rúmlega helmíngur af ársúrkomu á
Íslandi. Þetta er þvílíkt ótrulegt magn þegar hugsað er
til þess að þetta er hálfur meter af vatni sem myndi
liggja yfir bænum öllum.
Ég fletti upp á netinu hver rúmþyngd snjós væri í
samanburði við vatn og í því tilfelli sem ég las um, þá
er
snjór 0,28g/cm3 en vatn 1g/cm3 sem þýðir að snór er um
4x rúmmeiri en vatn. Þetta þýðir að sú vatnsúrkoma sem
hérna var í dag jafngildir 1,4 metrum af jafnföllnum
snjó og sl. 9 daga jafngildir þetta 2 metrum af
jafnföllnum snjó. Dágott það.
Baddi gerði stutt video af þesari miklu úrkomu áðan og
er hægt að
skoða það hérna. |