|
WHAAASSSUUUP
 |
|
Til baka á
aðalsíðu |
|
|
|
Fimtudagurinn 28. apríl 2005
SMIRTING (SMOKING AND FLIRTING) = REÐUR (REYKUR OG
DAÐUR) |
|
Hérna
á Nýja Sjálandi hefur verið bannað að reykja á veitinga og
skemmtistöðum síðan 10. desember í fyrra. Í byrjun voru
um 57% með og 43% á móti banninu en núna 4 mánðum síðar
hefur þetta breyst þannig að um 73% eru meðfylgjandi og
27% andvígir. Þetta virðist því vera vel heppnað og
mikill meirihluti er ánægður, sérstaklega ég og aðrir
reyklausir.
Þar sem erfiðara og erfiðara er fyrir reykingafólk að
blandast reyklausum, meðal annars á stefnumótalínum þar
sem spurt er sérstaklega um það hvort að þú reykir eða
reykir ekki, þá hefur reykingafólk fundið upp nýja
tegund stefnumóta í þeim löndum þar sem þetta bann hefur
náð fram að ganga. Er það nokkuð sem kallar er
SMIRTING og er samsett af orðunum Smoking og Flirting. Ef þetta
yrði yfirfært yfir á Íslensku þá gæti þetta staðið fyrir
REYKUR OG DAÐUR og styttingin gæti verið REYÐUR eða það
sem jafnvel er betra, REÐUR.
Sé ég þetta orð alveg geta passað við stelpur þar sem
þær geta þá talað um að hittast til að fara á REÐUR en
ég myndi reyndar passa mig á strákum sem vildu gera
slíkt hið
sama. Ég sé fyrir mér fólk hittast á gamla
hallærisplaninu (gamlir og góðir tímar) og stunda REÐUR
þar sem byrjað er á fleygum setningum eins og áttu eld,
má eg kveikja í þér, hverrar tegundar ertu, geturðu
blásið hringjum, ertu engill, nei afhverju, það eru svo
mikið ský í kringum þig og eflaust margar aðrar. Ef
einhver hefur fleygar pick up línur fyrir reykingafólk
sem vill fara á REÐUR þá endilega skrifiði þær hérna í
commentin. |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 24. apríl 2005
LOKSINS KOMST ÉG AÐ KÆTA AFTUR |
|
 Loksins komst
ég í kennslu í kæti aftur. Þegar ég kom hingað niðreftir
aftur þá ákvað ég að kaupa stærra flugdreka en ég átti.
Sá litli sem ég á er 13 m2 en sá stóri eru heilir 17 m2
og er hægt að nota í nokkuð litlum vindi. Það hefur hins
vegar ekki verið einn dagur með vindi hérna síðan ég kom
þann 24. febrúar, eða í heilar 9 vikur. Loksins á
fimmtudag og föstudag koma kjör vindur en þá komst ég
ekki sökum vinnnu. Maður er víst ekki í skóla lengur þar
sem maður ræður eigin tíma. Núna í dag gerðist það svo
loksins að það var nægur vindur, það mikill að litli 13
m2 flugdrekinn var alltof stór. Ég endaði á því að
leigja mér flugdreka hjá kennaranum sem er ekki nema 6
m2 og dugði hann mér vel í dag. Ætlunin er að fara
aftur í kenslu á morgun og vonandi get ég þá notað annan
af flugdrekunum mínum. Ef allt gengur að óskum ætti að
maður að vera farinn að kitesurfa innan fárra vikna. |
|
|
|
|
|
|
Fimtudagurinn 22. apríl 2005
KOMIÐ SOKKATÍMABIL OG LÖGGUKLÁM |
|

LÖGGUKLÁM
Löggan hérna á Nýja Sjálandi er í miklum vandræðum vegna klámfengni. Gerð var
rassía í tölvum lögreglumanna og kom í ljós að 20% af
tölvukerfi lögreglunnar innihélt klámmyndir og
klámvideo.
Mikil fjölmiðlaumræða er um þetta núna og
hefur 1 lögregluþjónn þegar sagt af sér. Um er að ræða
um 330 lögreglumenn og verða einhverjir þeirra sennilega
sóttir til saka og dæmdir til fangavistar og þeir sem
minna hafa geymt af slíku efni verði dæmdir til
meðferðar hjá sálfræðingi til að greiða úr
sálarvandræðum sínum. Sumt af þessu efni er þess eðlis
að lögreglumenn hafa þurft sálfræðiaðstoð ef þeir hafa komist
yfir slíkt efni í einhverju af sínum málum. Hmmmm. Hvað
skyldi mikið af tölvupósti lögreglumanna á Íslandi
innihalda klám. Ég hef allavega fengið þá nokkra og ekki
orð um það meira.
SOKKARNIR
Við skruppum
í bíó áðan til að sjá Sahara sem er svo sem ekki í
frásögur færandi, enda mikil hetjumynd. Það sem ég hins
vegar gerði mér ljóst á leiðinni er að hérna er komið
SOKKA og SÍÐBUXNATÍMABIL. Það er orðið kallt á kvöldin
og stuttbuxurnar eru orðnar of kalldar fyrir
kvöldgönguna og gæsahúðin myndast ef sokkarnir eru ekki
á fótunum.
Hitastig er komið niður í þetta 10-14 °C á kvöldin
og nóttunni en helst ennþá þetta 18-20 °C á daginn. Það
er ekki langt í það að maður þurfi að fara að kynda
íbúðina á kvöldin.
|
|
|
|
|
|
|
Laugardagurinn 16. apríl 2005
HEIMSÓKNIR Á GINFAN.COM VORU 17.562 Í FEBRÚAR |
|
Núna
á síðustu mánuðum hefur heimsóknum á heimasíðuna mína
stóraukist. Í fyrra var ég með að meðaltali 41 heimsókn
á dag þar sem 18. ágúst var með flestar heimsóknir eða
886. Það sem af er þessu ári hef ég hins vegar fengið að
meðaltali 368 heimsóknir á dag þar sem Febrúar var
stæðstur með 17.562 heimsóknir og stæðsti dagur var 7.
febrúar með 4.357 heimsóknir.
En hvernig stendur á því að teljarinn hjá
mér er þá ekki að telja meira en raun ber vitni. hmmmm.
Það er reyndar mjög einföld ástæða fyrir
því. Við höfum á veru okkar hérna á NZ verið að gera
ýmis video og myndasíður sem hafa komist inn á
batman,
tilveruna,
humor
og fleiri afþreyingarsíður. Ein mynd sem fór inn hjá
B2.is í Febrúar var t.d. skoðuð 7.939 sinnum.
Þegar maður nær tengingu inn á þessar
síður á Íslandi þá eru fljótir að myndast tenglar í
öðrum löndum. Þeir sem standa að síðum sem þessum vita
greinilega af flestum síðum í flestum löndum og eru
fljótir að bæta tenglum inn. Það eykur flóruna og fékk
ég t.d. heimsóknir frá 101 landi í febrúar einum saman.
Hérna eru nokkar afþreyingarsíður í hinum
ýmsu löndum sem hafa linkað inn á síðuna mína .
http://search.singingfish.com
http://www.readcn.com
http://www.coolios.net
http://www.forpsi.com
http://www.win.it/musica/h/haka.html
http://funnyray.web-log.nl/
http://www.tctv.ne.jp/uoainii/
Svona gæti ég haldi áfram en ætla að láta
staðar numið að sinni. Á mörgum þessara síðna er ekki
einu sinni hægt að sjá hvað það er sem er linkað inn, en
gaman að þessu samt.
Hægt er að skoða meðaltölin með því að
smella
hérna eða á myndina hér til hliðar.
Það væri gaman að sjá svipaðar tölur af
síðunni
hjá Badda, en hann er að ég held með mun fleiri
tengla linkaða inn á sig en ég. |
|
|
|
|
|
|
Mánudagurinn 11. apríl 2005
VIÐ Í ÚTVARPSVIÐTALI Á FM 106,8 |
|
 Við skelltum okkur til Hamilton á
Laugardaginn til að sjá Rugby leik í Super 12 deildinni
þar sem Chiefs, sem er okkar lið, var að keppa við
Sharks, sem eru frá Suður Afríku. Við erum greinilega
lukkunnar pamfílar þar sem þetta var fyrsti leikurinn í
langan tíma sem Chiefs unnu og bara sá annar á
tímabilinu. Leikurinn endaði 40-5 og var hin besta
skemtun.
Þegar heim á gistiheimilið var komið til
að skifta um föt áður en á djammið væri farið voru þar 2
eldri menn sem við fórum að spjalla við. Talið barst um
Ísland, Nýja Sjáland og ferðina umhverfis hnöttinn og
virtust þeir vera mjög áhugasamir um þessi málefni.
Eftir nokkuð spjall kom í ljós að þarna voru á ferð
útvarpþáttagerðarmenn og voru þeir með þætti á
Sunnudögum á milli kl.12-14. Það endaði með því að við
vorum beðnir að koma í viðtal til þeirra daginn eftir og
þáðum við það boð, enda hvorugur okkar náð slíkri frægð
fyrr.
Þó að heilsan hafi ekki verið upp á marga
fiska um morgunin (enda næturlífið í Hamilton kannað á
Laugradagkvöldinu) þá rættist vel úr þessu og vorum við
í viðtali í um hálftíma þegar upp var staðið. Spjallað
var um Ísland og söguna, Þorskastríðið, landfundi og
hver það var sem fann Ameríku, hversvegna við værum á
NZ, heimsferðina og margt annað. Þetta var ansi
áhugavert og gaman að taka þátt í slíku, enda nýtt í
huga manns. Ekki var þetta reyndar útvarpstöð með mikla
hlustun en hver þarf að vita af því. |
|
|
|
|
|
|
Laugardagurinn 9. apríl 2005
NÝTT VEDEO Á SÍÐUNNI HJÁ BADDA |
|
Baddi eyddi öllu gærkeldinu í að gera
nýtt video af ferðinni okkar til Bay of Islands.
Snilldar video þar sem stutt brot af flestöllu eru
klippt saman.
Videoið er hérna og er 6 Mb þannig að það þarf
þokkalega tengingu. |
|
|
|
|
|
|
Þriðjudagurinn 5. apríl 2005
VIDEO AF FERÐINNI TIL BAY OF ISLANDS |
|
 Ég settist niður í gær og setti saman video frá helginni
okkar upp í Bay of Islands um páskana. Ég ætlaði alltaf
að setja saman smá grein um þetta líka og hún er hérna í
stuttu máli.
Aksturinn upp eftir tekur um 6 tíma þannig að það var
ekkert gert á fimtudagskvölidnu. Hérna á NZ er ekki
gefið frí á Skírdag eins og á Íslandi þannig að þetta er
bara 4ja daga helgi. Föstudagurinn byrjaði vel enda var
ætlunin að fara að Kæta rétt hjá Kerikeri, bænum sem við
bjuggum í. Þetta er staður þar sem aðrir
flugdrekabrettarar koma saman. Hérna átti svo sannarlega
að sýna hæfileika sína fyrir hinum og var mikil lagt upp
úr undirbúningi. Eftir um hálftíma undirbúning var
drekinn settur á loft mjög varlega. Þegar allt klárt var
honum dýft hressilega til að ná togi en þar sem það var
þó nokkur vindur þá missti ég stjórn á honum með þeim
afleiðingum að hann dróg mig eftir sjávarbotninum sem
var mjög grunnur enda fjara þá stundina. Það verður því
ekki farið að flugdrekast aftur nema í fylgd með
kennara, en hérna í Tauranga hefur ekki verið
nægjanlegur vindur síðan ég kom niðreftir, eða í um 6
vikur.
Ferðin upp til Norðurhluta norðureyjarinnar á
Sunnudeginum var snilld. Maður hefur stundum lesið
um að það sé verið að sandsurfa í eyðimörkunum. Nyrðst á
norðureyjunni eru miklir sandhólar og sandauðnir við
ströndina. Þetta er nyrðst á stað sem heitri 90 mile
beach og er eins og nafnið ber með sér strönd sem er um
90 mílna lögn. Notuð err venjulega body surf bretti og
kann ég ekki frekari þýðingu á því orði. Það er ótrúlegt
hversu mikilli ferð er hægt að ná í þessu, enda var
þetta mjög hátt fjall sem við renndum okkur niður. Hægt
er að sjá þetta
snilldar
ævintýri á videoi sem ég bjó.
Einnig fékk ég að taka í mótorcrosshjól sem er nokkuð
sem ég hef ekki gert síðan ég viðbeinsbrotnaði í
Rauðhólunum fyrir um 20 árum síðan. Þetta var bara
snilld og var ég sá eini sem tókst að festa hjólið í
drullupytti í fyrstu tilraun eins og sést á myndunum með
tilheyrandi drulluaustri yfir mig allan. hehe
Myndirnar eru eftir
sem áður á
síðunni hjá Badda.
Næstu helgi förum við síðan til Hamilton á leik í Super
12 Rugby deildinni sem er keppni á milli liða frá NZ,
Ástralíu og Suður afríku.
NÝJAR HEIMSÍÐUR
Ég vil benda á nýja linka sem ég hef sett inn undir
heimasíður en það er hjá frændum mínum
Bigga og
Viktori. Þeir eru báðir miklir tónlistarmenn og eru
að kynna nýju tónlistina sína á þessum síðum. Ég hvet
ykkur til að skoða síðurnar og hlusta á frumsamda
músikina þeirra. |
|
|
|
|
|
|
Fimtudagurinn 31. mars 2005
TÖLVAN LOKSINS KOMIN ÚR VIÐGERÐ |
|
Sælt
veri fólkið. Loksins er tölvan mín komin úr viðgerð
eftir rúmlega 3ja vikna fjarveru. Síðasta helgi,
páskahelgin var ein sú skemtilegasta sem ég hef upplifað
til þessa. Það var margt prufað eins og að Kæta og slasa
sig, Sand surfa á sandfjalli, veiða á snekkju og fleira.
Ég mun setja grein inn um þetta á Sunnudaginn komandi
þar sem ég er að fara núna í útilega með Round Table og
hef ekki meiri tíma. Einnig mun ég setja inn video frá
Sand surfinu og fleiru góðu.
Vinnan gengur
ennþá vel. Það er allavega ekki búið að reka mig.
Ég hvet ykkur
í millitíðinni til að skoða greinina um þetta á
heimasíðunni hjá Badda og síðan eru 4 nýjar
myndasíður á
myndasíðunni hjá honum frá síðustu helgi. |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 20. marsr 2005
ÉG VAR Í FANGAKLEFA OG ER GÓÐKUNNINGI LÖGGUNNAR Í DAG |
|
Þá er ég aftur kominn í tölvuna hans
Badda að skrifa nokkrar línur. Eins og að neðan greinir
þá var ég í fangaklefa í síðustu viku en því miður þá
bilaði kommentakerfið þannig að ég veit ekki hvort að
fólk hefur trúað þessu eða ekki.
Þetta var engin lýgi að ég sat læstur
inni í fangaklefa og er orðinn góðkunningi lögreglunnar.
Ég var meira að segja settur inn í klefa með öðrum
fanga. Ástæðan var reyndar ekki glæpamennska að neinum
toga heldur var Mainzeal að skila af sér verkefni sem
var endurnýjun fangaklefanna. Það voru nokkrir hlutir
eftir svo sem að mála á nokkrum stöðum í nokkrum klefum
og þar sem þetta var svo lítið þá fannst mér ekki taka
því að fá málara í þetta og gerði þetta bara sjálfur.
Þetta var soldið sérstök reynsla þar sem
fangaklefarnir voru í fullri notkun og það þurfti að
vera að færa fanga á milli eftir því sem ég málaði.
Allan þann tíma sem ég eyddi í fangelsi
sá ég ekki einn einasta hvítan mann þarna inni. Allir
sem inni sátu voru Maorítar, enda eru um 90% fanga hérna
í landi af þeim kynstofni. Yfirleitt var mikill órói í
þeim sem þarna voru og stanslaus köll og bönk og
lítilskonar spörk til að reyna að ná athygli fangavarða.
Í eitt skiftið þurfti ég að fara inn í
fangaklefa þar sem annar fangi var í. Þegar vöðurinn
opnaði dyrnar þá kallaði hann hárri og hvassri röddu að
fangunum "STAY, I DON'T HAVE TIME FOR YOUR BULLSHIT" en
fanginn hafði verið að reyna að ná athygli varðarins í
nokkur tíma. Fanginn þorði að sjálfsögðu ekki öðru og
sat grafkyrr á meðan ég var þarna inni. Þetta var svona
eins og að heyra eigandann ala upp hundinn sinn þar sem
hvöss rödd er notuð til að banna þeim einhverja hluti.
Allavega, það var gaman að taka þátt í
þessu eins og öðru sem er í gangi hérna.
Vinnan gengur annars fínt og ég er að
komast inn í þetta og er farinn að taka meir þátt í
stjórnun en í byrjun. Það er reyndar skrítið að venja
sig við þá hugsun að í dag er maður yfirmaðurinn á
staðnum og þarf þar af leiðandi að skipa fyrir verkum.
Þetta hlýtur að venjast. |
|
|
|
|
|
|
þriðjudagurinn 15. mars 2005
TÖLVULAUS OG ALLSLAUS |
|
Hej alle sammen. Enn einu sinni er tölvan mín í viðgerð
vegna smávægilegra bilana. Í þetta skiftið er það
skjákortið og er það ekki til hér á Nýja Sjálandi. Það
er því í pöntun frá Evrópu og kemur ekki hingað fyrr en
undir lok næstu viku. Ég verð því tölvulaus í minnsta
kosti 10 daga í viðbót. Sýnið mér því biðlund með nýjar
greinar. Ég mun reyndar senda inn grein mjög fljótlega
af því þegar ég var settur í fangaklefa hérna í Tauranga
og varð góðkunningi lögreglunnar fyrir vikið. Hver gæti
ástæðan verið. Reyniði að segja mér. |
|
|
|
|
|
|
Sunnudagurinn 6. mars 2005
ÍSLENDINGAMÓT Á NÝJA SJÁLANDI |
|
 Það
breyttust öll plön hjá okkur Badda varðandi helgina
þegar við fréttum af Íslendingum búsettum hérna sem
ætluðu að hittast um helgina í um klukkustundar akstri
frá Tauranga. Það var að sjálfsögðu pakkað í töskur og
farið eftir vinnu á föstudeginum. Kom í ljós að þeir
íslendingar sem vitað er um hérna hittast einu sinni á
ári og hafa gert í mörg ár. Langflestir hafa búið hérna
í 10-25 ár þó að einnig séu 2 stelpur sem komu hingað
fyrir 1 og 3 árum að mig minnir. Margir eru búnir að
vera hérna svo lengi að það er orðið þægilegra að tala
esnku hver við annan, enda eru allir hér með
nýsjálenskar fjölskyldur. Flestir komu eftir að hafa
kynnst NZ stelpum sem komu að vinna í fiski út á landi
og var ég t.d. eini íslendingurinn frá Reykjavík á
föstudagskvöldinu. Eftir því sem við best vitum erum við
því einu íslendingarnir hérna sem komu bara til að vinna
en ekki vegna kynna við NZ stelpur.
Þetta var frábær hópur sem hefur hist í
að mér skilst 19 ár. Ætlunin er að Baddi setji upp
heimsíðu fyrir íslendinga í NZ á næstunni og munum við
kaupa sérstakt domain til þess.
Á laugardeginum fórum við öll á ströndina
og náði ég að taka fram Kætinn minn. Í þeirri tilraun
minni til að fljúga honum komst ég að því hersu
skelfilega lélegur ég er í þessu ennþá og næsta verk að
panta sér kenslustund. Baddi tók 2 stutt byndbönd af
þessu og eru þau
hérna.
Annars hefur gegnið vel í nýju vinnunni
þó að hún fari verulega rólega af stað. Ég er aðalega í
að ganga frá smáviðgerðum á verkum sem verið er að skila
af sér eins og ráðuhúsinu og fangaklefunum. Einnig hef
ég verið á byggingastað þar sem verið er að reisa
steypueiningar og stálgrind til að kynnast
skriffinskukerfinu hjá þeim en það er mjög mikið til að
tryggja hagsmuni fyrirtækisins.
Myndir af helginni er að finna á
myndasíðunni hans Badda. |
|
|
|
|
|
|
Til baka á
aðalsíðu |
|
©
GINFAN.COM - STOFNAÐ 23. OKTÓBER 2003 - ALLUR RÉTTUR
ÁSKILINN |