WHAAASSSUUUP

 

Föstudagurinn 31. desember 2004

BRRRRRRRRR - MIKIÐ ER KALT Á ÍSLANDI

Loksins kemst ég til að láta heyra frá mér. Það breyttist allt saman verulega snögglega þarna niðurfrá en eftir að ég skrifaði undir samninginn við Mainzeal var ekki mikið þar að gera. Ég ákvað því að koma mér heim sem fyrst þó að ég hafi nú ekki ætlað að koma fyrr en eftir áramótin. Ég flaug því til Tailands á jóladag og eyddi rúmlega 4 dögum þar í Bangkok. Margir hringdu í foreldra mína eftir flóðin í Tailandi til að vita af ferðum mínum en ég var hvergi nærri þó að það hafi komið til tals að ég færi þangað niðreftir.

Ég taldi mig hins vegar ekki þurfa á ströndum að halda þar sem ég hafði búið á einni slíkri í rúma 8 mánuði á Nýja Sjálandi. Það eina sem ég varð var við þessi ósköp voru raðir sjúkrabíla að flytja slasaða á sjúkrahús í Bangkok og síðan í flugvélinni á leiðinni heim en þar voru ansi margir tugir skandinava á leið heim með allt frá slæmum sárum og mörum á líkama og upp í beinbrot og fótbrot. Að sjálfsögðu var mikill viðbúnaður í Kaupmannahöfn þegar þangað var komið og tugir sjúkraflutingamanna, lögreglumanna, presta, sálfræðinga og að sjálfsögðu blaðamanna voru við innganginn þegar þangað var komið.

Ég er með geysilega mikið að skemtilegu efni og myndum sem ég mun setja inn á næstu dögum og sennilega þær fyrstu á morgun, nýársdag. Þangað til vona ég að þið munið öll eiga ánægjuleg og brennulaus áramót :(

 
 

Þriðjudagurinn 21. desember 2004

SORGARDAGUR GRACELENDINGA

GRACELAND YFIRGEFIÐ

Gærdagurinn var mikill sorgardagur hjá okkur Gracelendingum en þá þurftum við að flytja út úr húsinu okkar góða. Síðustu dagar hafa farið að nokkru leyti í að þrífa og gera klárt þannig að ekki hefur frítíminn verið mikill. Reyndar skiftir það ekki megin máli þar sem veðrið hérna ætlar ekkert að lagast, endalaust skýjað og annað hvort alltof mikill vindur eða enginn vindur. Þetta þýðir að ég hef ekki getað leikið mér mikið með flugdrekann og flestir dagar verið langir og leiðinlegir.

 

VINNAN

Nú er allt klárt varðandi vinnuna og bara eftir að fara í fyrramálið og skrifa undir. Reyndar er vinnutíminn ansi langur en maður kanski vinnur í því þegar verður endurasamið eftir 3 mánuði. Aðalmálið eins og er að klára þetta þannig að hægt verði að fara að sækja um atvinnuleyfi. Reyndar hefur þetta allt tekið mun meiri tíma en ég ætlaði og það er því enginn séns lengur að ég nái að klára málið áður en ég fer héðan. Ég mun því endurskoða málið eftir fundinn í fyrramálið en það gæti verið að ég breytti miðanum mínum og færi héðan í næstu viku, enda ekki eftir neinu að bíða hérna. Ég myndi þá vera í Tailandi yfir áramótin og ætti það ekkert að vera leiðinlegt. Myndi ég þá fara til Pattaya sem er um 3 tíma frá Bangkok. Ég yrði svo á Íslandi 3-6 janúar eftir því hvenær flugfar yrði laust.

 

JÓLIN OG JESÚS KRISTUR

Hérna á Nýja Sjálandi er varla nokkuð sem minnir á jólin. Hér eru engin hús skreytt, engin ljós í bænum, engar verslunarmiðstöðvar jólalegar og það er hending ef maður heyrir jólalag í útvarpinu. Ég var t.d. að keyra frá Auckland til Tauranga í gær sem er um 3ja tíma akstur  og alla leiðina heyrði ég 1 jólalag. Hins vegar voru miklar umræður í útvarpi um það hvernig heimurinn væri í dag ef Jesús Kristur hefði aldrei fæðst. Værum við t.d. múhameðstrúar eða værum við ennþá heiðinnar trúar. Hefði verið eins mikill stríðsrekstur í heiminum ef það væri ekki fyrir kristna trú en flest stríð eru tilkomin vegna trúarágreinings. Hefði t.d. verið ráðist á Twin Towers í NY ef Kristur hefði ekki fæðst. Ef stríðin hefðu ekki verið svona mörg væri tæknin þá á því stigi sem hún er í dag en mikið af tækninýjungum hefur þróast í kringum stríð, meðal annars internetið, en það var fundið upp til að senda gögn á milli herstöðva. Ég held að þetta sé verðugt viðfangsefni fyrir heimsspekideildir háskólanna og ef þið hafið skoðun á þessu þá skrifið í commentin.

Að öðru leyti  óska ég öllum gleðilegra jóla og vona að ég komist í netsamband sem fyrst til að setja inn meira efni.

 
 

Fimtudagurinn 16. desember 2004

KOMINN MEÐ VINNU HÉRNA Á NÝJA SJÁLANDI

Loksins fékk ég svar um vinnuna sem ég vildi og varð það úr að ég fékk hana. Þetta er hjá einu af stærsta verktakafyrirtæki hér á Nýja Sjálandi og heitir það Mainzeal. (www.mainzeal.co.nz) Þeir vinna mest sem verkstjórnendur þannig að þeir bjóða í verkin og sjá um öryggi og gæðastjórnum á byggingastaðnum ásamt allri yfirstjórnun og ráða síðan undirverktaka í að framkvæma verkið. Ég mun byrja sem verkstjóri á  byggingastað á meðan ég næ í reynslu í steypu og mótavinnu en verð síðar settur sem staðarstjóri yfir einhverju verki sem er víst nóg af. Velta þeirra er um 20 miljarðar íslenskra króna á ári. Byrjunarlaun eru mjóg góð miðað við laun almennt hérna eða svipuð og byrjunarlaun á teiknistofu á íslandi. Hér borga ég hins vegar ekki nema 19% tekjuskatt auk þess sem almennt verðlag er um helmingur af verðlagi á íslandi. Næsta verk er að komast í gegnum innflytjendaeftirlitið en það tekur slatta tíma og efast ég um að ég nái því aður en ég fer héðan. Ég gæti því þurft að sækja um það frá Evrópu en það skýrist á næstu vikum.

 
 

Miðvikudagurinn 15. desember 2004

KIWI PARTY, INNBROTSTILRAUN OG FLEIRA

Það hefur ýmislegt verið í gangi þó að ekki hafi ég komið því á heimasíðuna fyrr en nú. Þetta er helst í fréttum;

 

INNBROTSTILRAUN

Ég og Gústi töfra fengum okkur aðeins í glas á föstudagskvöldinu. Þetta var svona eitt af þessum kvöldum þar sem ekkert átti að gera en endaði með fullt af drykkjum og bæjarferð. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema að þegar við komum heim um 4 um nóttina vorum við enn til í 1 fyrir svefninn. Við sitjum og spjöllum í nokkurn tíma og um 5 leytið allt í einu sprettur Gústi upp úr sófanum og öskrar "what the fock is going on here" og hleypur svo inn í garðskála og út á svalir. Þar sem ég snéri bakinu í garðskálann þá sá ég ekkert en það sem gerðist var að allt í einu sá Gústi mann vera að læðast um í garðskálanum og ætlaði sér greinilega að brjótast inn hjá okkur. Þegar Gústi hljóp á eftir honum varð hann svo hræddur að hann hljóp út og stökk fram af svölunum sem eru á 2. hæð. Við sáum hann aldrei meir enda niðamyrkur en svona in case að hann hafi slasað sig þá tókum við okkur til og pissuðum fram af svölunum og vonuðum að hann væri þarna ennþá. Ég held að þessi komi aldrei til okkar aftur.

Sem betur fer vorum við eitthvað þyrstir þetta kvöld og vorum því á fótum þegar þetta gerðist enda hefði ég annars ekki átt tölvu í dag þar sem hún stóð á stofuborðinu þá um nóttina.

 

PARTÝ KIWI STÆL

Einn úr Arkitektabekknum í skólanum bauð okkur í party út í sveit á laugardagskvöldinu. Búið var að leggja stórum sendibíl á lóðinni og stilla upp fyrir hljómsveit sem spilaði um kvöldið. Að sjálfsögðu endaði þetta allt með því að Gústi töfra fór upp á svið og sló rækilega í gegn að hætti íslendinga. Hægt er að sjá frá þessu kvöldi á myndasíðunni og einnig video sem ég setti saman.

 

KÆTIÐ

Kætið gengur hægt enda búið að vera hundleiðinlegt veður hérna sl 4 vikur. Það hefur verið meira og minna of mikið rok fyrir mig til að stunda þetta þar sem ég er byrjandi. Er búinn að fara ca 4 sinnum eftir að ég keypti kætinn og þar sem þetta hefur gengið svona hægt ákvað ég að fara í aukakennslu til að ná þessu fyrr. Vona að veðrið skáni og að ég komist á brettið sem fyrst.

 

Ég læt þetta duga í bili og reyni að bæta við meiru sem fyrst.

 
 

Mánudagurinn 6. desember 2004

INNFLUTNINGSPARTÝ HJÁ PEDRO

Ég fór til Auckland um helgina í innflutningsparty hjá Pedro, en hann var að flytja í nýtt húsnæði í sl. viku. Þetta var haldið í bílskúrnum hjá þeim og heppnaðist einstaklega vel. Að vísu var ég eitthvað óvenjurólegur og þurfti að fá mér bæði Red Bull og blanda vatni í glas inn á milli einfaldlega til að forða mér frá því að leggjast í rúmið og sofna. Það hafði að vísu ekkert með partýið að gera, ég var einfaldlega eitthvað þreyttur, þrátt fyrir 50 ltr. bjórkút og mikið magn annars áfengis.

Í næsta húsi búa nokkur ungmenni sem mættu snemma í partýið. Þau voru öll í Nýsjálenska Herflotanum, NZ Navy. Þau höfðu ný komið i land úr 3 1/2 mánaða siglingu. Ég fékk aðeins að heyra um agann um borð á skipinu. Einn af þeim hafði verið nappaður við að drekka um borð eftir að klukkan var 9.30 að kvöldi. Þetta er þannig að yfirmennirnir eru með eigin bar sem er opinn á meðan þeim hentar og eins lengi og þeim hentar.  Barinn sem undirmennirnir hafa er lokaður klukkan 9.30 og eftir það meiga þeir ekki drekka. Þau fóru hins vegar inn á herbergi og fengu sér meira og voru nöppuð fyrir vikið. Straffið var það að hann var lækkaður í tign samstundis og sektaður um 2.000 dollara (100.000 isk). Þegar menn eru lækkaðir í tigna þá lækka launin sem því nemur og fór hann úr NZ$ 55.000 á ári niður í NZ$ 44.000 á ári eða sem svarar 11.000 dollara árslækkun á tekjum sem er um 600.000 ISK. Það er dýrt að drekka eftir 9.30 um borð í herskipunum.

Reyndar sögðu þau mér líka að hér áður fyrr þá var alltaf eftir hádegismatinn um borð boðið upp á alvöru sterkt romm. Þetta var aflagt fyrir nokkrum árum þar sem það þótti ekki lengur forsvaranlegt að hafa hermennina meira og minna undir áhrifum á vakt, enda hafði annað hver skipsverji átt í vandræðum með drykkjuvenjur sínar eftir nokkrar sjóferðir. I wonder why ;)

Ég er búinn að bæta myndum af þessu á myndasíðuna mína og svo eru myndir frá heimsókn Badda til tailands myndsíðunni hans.

 
 

Miðvikudagurinn 1. desember 2004

MYNDIR FRÁ HELGINNI

Helgin var að sjálfsögðu verulega góð. mikið um partý, gott fólk og áfengi í kringum okkur. Annars er þetta voðalega skrýtið að vera búinn. Manni finst einhvern veginn eins og það vanti eitthvað í tilveruna þessa dagana enda er maður varla námsmaður lengur, þó að ekki sé komin einkun fyrir ritgerðina, heldur atvinnulaus byggingafræðingur. Það kemur í ljós eftir helgi hvort að ég fæ vinnu hérna niðurfrá en þá er eftir að ganga í gegnum þann feril að fá atvinuuleyfi sem er mjög erfitt. Við sjáum hvað setur. Allavega þá setti ég inn myndir á myndasíðuna mína frá helginn og einnig eru myndir á síðunni hans Badda.

 
 
Til baka á forsíðu
 
© GINFAN.COM - STOFNAÐ 23. OKTÓBER 2003 - ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN