WHAAASSSUUUP

 

Fimtudagurinn 25. nóvember 2004

HIMNARÍKI

Ég gerði nokkuð sem ég hef ekki gert í ein 15 ár um daginn en það var að fara í strípur. Ég gekk inn á klippihús við aðalgötuna í miðbænum þar sem ég sá að þar var einungis ungar fallegar stelpur að klippa. Ég fékk tíma daginn eftir og mætti tímanlega eins og alltaf. Allan þann tíma sem ég var þarna inni var ég eini karlmaðurinn auk þess sem þarna voru bara ungar stelpur. Ég lenti á spjalli við eina slíka sem er ættuð frá Ísrael á meðan við vorum bæði að bíða með álpappírinn í hausnum á meðan aflitunin fór að virka. Á tímabili hélt ég að ég væri kominn til himnaríkis.

Einnig fór ég í dag og keypti mér spariföt fyrir prófið í fyrramálið. Ég hef ekki gert slíkt síðan áður en ég fór í skóla fyrir tæpum 4 árum. Svo aðrir vita þá er BTH skólinn ekki ekki þektur fyrir tísku og jogging gallin er vel viðurkenndur. Þegar ég keypti mér skyrtu síðast fyrir þessum langa tíma þá notaði ég stærð 41. Þetta var á þeim tíma þegar ég reykti og áður en ég fékk á mig þessi 15 kg í fórnarkostnað fyrir að hætta að reykja. Ég var því mjög hissa þegar ég var mældur og það kom í ljós að ég þurfti að kaupa mér skyrtu í stærðinni 44. ÚFF. Jæja, það er allavega betra að vera feitur og fallegur en hóstandi og illa lyktandi af vindlum.

Tók myndir af lokaverkefninu upphengdu og eru þær á myndasíðunni.

 
 

Sunnudagurinn 21. nóvember 2004

NÁÐUGIR DAGAR - 5 DAGAR Í PRÓF

Þessir síðustu dagar eru búnir að vera einir af þeim náðugust sem ég hef átt hérna. Ég þurfti ekki á neinum hækjum að halda eftir þessa tognun þar sem við fundum staf á heimilinu sem var hægt að nota. Þar sem ég gat ekki klárað að hengja verkefnið upp er ég búinn að liggja niðrá strönd, bæði á föstudag og laugardag. Þar hefur maður dormað um eftirmiðdaginn í um 25 stiga hita og sól og rétt vaknað til að snúa sér. Reyndar hafa augun verið þjálfuð ínn á milli en eins og á góðum ströndum er mikið af lítið klæddu kvenfólki á staðnum. Maður skilur alveg hvers vegna ásókn húsnæði á svæðinu er eins mikil og raun ber vitni og afhverju verðin þar af leiðandi rjúka upp. Núna eru bara 4 vikur í að við þurfum að flytja út en þá hækkar leigan úr 25.000 kr á viku í 100.000 kr á viku.

Í gegnum annirnar í skólanum hef ég yfirleitt verið heppinn með grúbbur og höfum við því yfirleitt náð að klára verkefnið um 4-7 dögum fyrir próf og því haft góðan tíma til að hengja upp og undirbúa vörnina. Það hefur hins vegar aldrei verið eins mikill tími og akkúrat núna á 7. önn. Allt verkefnið búið 14 dögum fyrir próf og hefði ég ekki lenti í þessu smá kæt slysi þá væri ég búinn að hengja upp allt saman. Það klárast reyndar á mánudaginn og er því nægur tími til æfinga. Af þessum sökum hef ég ekki verið vinsæll í húsinu á meðal hinna strákanna þegar ég hef verið að fara niðrá strönd eða glápa á sjónvarpið á meðan þeir hafa ennþá verið að vinna.

Later

 
 

Fimtudagurinn 19. nóvember 2004

FYRSTA KITE SLYSIÐ MITT

Þá er maður búinn að lenda í sínu fyrsta KITE slysi. Það gerðist áðan þegar ég ætlaði aðeins að skreppa að æfa mig. Rétt eftir að ég kom drekanum á loft þá bætti verulega í vindinn og var þetta í fyrsta skiftið sem ég fann drekann hafa þann kraft sem til þurfti til að lyfta mér frá jörðu. Ég var að sjálfsögðu himinlifandi yfir þessari lukku minni. Ég var á leiðinni út í sjóinn, en þaðr sem það var fjara þá þurfti ég að labba soldi langt til að ná þangað. Á leiðinni lenti ég í einhverri verulegri vindbylgju og það var ekki við neitt ráðið nema að drekinn feykti mér eina 2-3 metra upp í loftið. Þegar þangað var komið var ekki við neitt ráðið og lenti ég frekar ílla á öklanum og dróst svo slatta leið áður en ég náði að toga í neyðarlosunina og losna undan togkraftinum. Þetta var reyndar opið svæði þannig að það var aldrei nein stórhætta á ferð en maður lærði smá lexíu um að vera ekki með drekann of hátt uppi fyrr en í sjóinn er komið. Þar er allavega ekki eins vont að lenda og á jörðinni. Ætli ég neyðist ekki til að ná mér í hækjur á morgun í annað skifti á mánuði en ég hef lent í svona tognun áður og veit að þetta lagast á 3-4 dögum. Verð aftur klár í slaginn á eftir helgi en kanski ekki alveg í svona miklum vindi. Þetta þýðir líka smá seinkun á því að hengja verkefnið upp en ég ætlaði að klára það á morgun. Jæja, það kemur dagur eftir þennan dag.

 
 

Sunnudagurinn 14. nóvember 2004

SÓLBRUNI OG BELVEDERE REISUGILLI

Loksins varð af því að ég fór og prófaði nýja Drekann minn sem ég keypti fyrir rúmum mánuði síðan. Þetta gekk  nú frekar illa en með hjálp reyndari Drekamanna þá náði ég að koma honum á loft. Reyndar náði ég ekki alltaf að halda honum uppi en þeir sem voru að hjálpa mér voru þolimæðin uppmáluð þannig að í 4 skiftið þá gekk þetta bara þokkalega vel. Ég er allavega með mikla strengi í dag og reyndar í gær líka. Ég hlakka mikið til þess þegar ég set undir mig brimbrettið en það ætti að vera kennsla í því kanski á næstu 2-3 vikum. Það verður örugglega gert video af því þegar að því kemur.

Þar sem ég var einn að þessu þá náði ég bara að setja á mig sólaráburð þar sem ég sjálfur náði. Það varð því eftir hluti af bakinu og var hann því óvarinn. Þar sem það var nú ekki alvöru sól heldur nokkuð skýjað þá hélt ég að þetta yrði í lagi en aldeilis ekki. Eins og myndunum sést þá er greinilegt að sólarvörn virkar.

Á föstudeginum var reisugilli hjá Belvedere, fyrirtækinu sem ég var í vinnureynslu hjá. Þar var boðið að sjálfsögðu öllum sem eru að vinna fyrir Belvedere og þetta er gert með stæl hérna í NZ. Þarna mættu á staðinn 3 stripparar og voru þær mjög ófeimnar við að láta taka myndir af sér í hinum ýmsustu stellingum þar sem ekkert var falið. Sumar myndanna eru allavega óbirtingarhæfar á netinu nema fyrir þá sem eru örugglega orðinir 18+. Ég setti hluta þessara mynda á myndasíðuna.

 
 

Föstudagurinn 12. nóvember 2004

BÚINN MEÐ LOKAVERKEFNIÐ

Þetta er mikill ánægjudagur hjá mér. Ég er formlega búinn með lokaverkefnið mitt og samt eru 2 vikur fram að prófi. Ég mun að sjálfsögðu nota þann tíma til að hengja upp og undirbúa Power Point Kynningu sem ég ætla að vera með en ég mun kynna allt verkefnið svoleiðis. Kennararnir geta því setið rólegir og sötrað kaffi á meðan. Samtals samanstendur verkefnið af 400 blaðsíðum af A4 blöðum, þar af tæplega 50 sem eru fylgiskjöl, 97 blaðsíðum af A3, þar af 13 teikningum sem fylgdu með útboðsgögnum og 2 stk af A1 teikningum sem er þá útgreftrarplan og Site plan. Ég er svona nokkurn veginn búinn að raða þessu niður á töflur og ætti þetta að vera nálægt 26 töflum þegar upp er staðið eða tæplega 47 metrar. Það er ótrúlegt hvað þetta safnast mikið saman. Það er allt komið á netið á skólasíðunni ef einhver hefur áhuga á að skoða. Að vísu er ekki quality controlið inni af ákveðinni ástæðu en það var sent beint til ráðgjafans í DK. Núna getur maður því notið helgarinnar án þess að þurfa að gera neitt annað en að leika sér og efast ég ekki um að ég mun fara út að Kæta ef veðurleyfir.

 
 

Þrijudagurinn 9. nóvember 2004

LETILÍF

Þessi dagur er búinn að vera alger leti. Gústi töfra átti afmæli í dag, varð þrítugur. Byrjaði strax í morgun með því að rafmagnið var tekið af húsinu vegna framkvæmda. Að venju gerir maður ekkert án tölvunnar þannig að ég fór upp á svalir að lesa kennslubók.í stuttubuxunum. Þar sem það var sól og 25 stiga hiti þá brann ég að sjálfsögðu. Strákarnir komu heim  í hádeginu og þá var öl á svölunum. Miðdegislúr eftir það og svo einhvern veginn komumst við ekki í gang. Grilluðum T-bone og svo lagst í video. Úff. Maður má víst ekki við þessu svona rétt fyrir prófin.

Annars var þetta kanski ágætt svona fyrir lokatörnina að hugsa aðeins um annað en skólann. Rúmlega 2 vikur í prófið.

By the way. Það eru komnar nýja rmyndir inn á myndasíðuna hjá Badda frá síðustu 2-3 vikum.

 
 

Sunnudagurinn 7. nóvember 2004

BRIMBRETTABRUN MITT

Þessi íslensku orð eru svakalega óþjál í mínum eyrum. Allavega þá fór ég að surfa í fyrsta skifti á ævinni með Berki hérna niður á strönd í gær. Þetta er ekki eins einfalt og það lítur út fyrir að vera og mjög erfiðlega gekk að komast út fyrir brimið enda var þó nokkur ölduhæð í gær. Við þurftum undir lokin að færa okkur aðeins afsíðis þar sem öldurnar voru aðeins minni.

Ekki náðist að sína verulega takta í þetta skiftið en aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni. Það var ekki fyrr en undir lokin alveg við strandlengjuna að ég náði að fleyta mér eitthvað á einni öldi (sjá video hér). Það er allavega nóg til að geta sagt að ég hafi farið að surfa og fæ ég því stig í sarpinn í keppninni okkar góðu.

Að sjálfsögðu er ég efstur í keppninni (sjá stigatöflu og þrautir hér) og er að stinga þessa ungu stráka af. Bráðum bætast svo enn fleiri stig við þegar ég mun setja brimbrettið undir mig í Kætinu.

PS. Ég var búinn að lofa að skrifa meira um Round Table helgina í Christchurch en held aðég svíkji það loforð. Bara 3 vikur í próf og íslenska aðferðin notðu. Allt gert á síðustu stundu.

Later

 
 

Sunnudagurinn 25. október 2004

VIÐBURÐARÍK HELGI

Þessi helgi sem var að líða er ein af þeim betri í langan tíma þrátt fyrir ýmis áföll. Ég fór ásamt 6 öðrum félögum á Aðalfund Round Table New Zealand sem haldið var í Christchurch á suðureyjunni. Ég ætla að lýsa þessu nánar síðar í vikunni þar sem ég er að fara með Attilla hinn Ungverska á Hotwater ströndina í Coramandel í fyrramálið og endum við síðan í Auckland þar sem hann ætlar að hoppa fram af Harbor bridge í teygjustökki og Skytower i freefall eins og ég gerði.

Einu verð ég þó að segja frá núna. Það er með sanni að þessi ferð hafi ekki byrjað vel. Á leiðinni út í bíl fyrir utan húsið hérna þá steig ég svo hrottalega vitlaust niður að hnéð fór í algeran keng. Að sjálfsögðu dofnaði ég strax upp en eftir um klukkustund þegar á Rotorua flugvöll var komið var sársaukinn farinn að vera ansi slæmur og það var við það að líða yfir mig. Hlutunum var hins vegar reddað þannig að pantaður var hjólastóll við komuna í Christchurch og beið hann mín við landganginn. Þar sem ég gat með illu móti stigið í löppina þá neyddist ég af þessum sökum til þess að sitja einn í hótelerberginu á föstudagkvöldinu á meðan aðrir RT félagar fóru á djammið. Ég sá þó Men in black í tíunda skiftið og Men in black 2 í fyrsta skiftið.

Þar sem það var óhugsandi að ég sæti heima aftur og myndi ekki sjá næturlífið í Christchurch þá fór ég á sjúkramóttöku í bænum og leigði mér hækjur. Það er aldrei neitt svo slæmt að ekki hljótist eitthvað gott af því og þegar á djammið var komið með hækjurnar var mjög auðvelt að hefja samræður við kvenþjóðina. Þegar þær spurðu hvað hafði gerst þá var hin opinbera saga sú að ég hafi fengið "once in a life time oppertunity" til að stökkva BASE JUMP fram af Skytower i Auckland. Ég hafði í stökkinu misreiknað mig aðeins og opnað fallhlífina um 2 sekúndum of seint og því varð lendingin mjög harkaleg. Ein vildi meira að segja að ég færi í mál við þá í Skytower en ég sagðist hafa þurft að skrifa undir samning að vera á eigin ábyrgð. Þetta allavega skapaði góðan umræðugrundvöll til frekari sóknar þó að nóttin hafi verið með sama hætti og allar aðrar þar sem maður fer einn að sofa og vaknar einn í rúminu :(

Ég er búinn að bæta við myndum á myndasíðuna frá helginni en mun skrifa meira um hana síðar í víkunni.

 
 

Fimtudagurinn 21. október 2004

ER KITE HÆTTULEGT SPORT !!!!!!!!!!

Soldið hefur verið skrifað í blöðin um slys sem varð hérna um síðustu helgi en þá fórst Kite surfari eftir að vindur hafði feykt honum í gegnum nokkur tré og um síðir lenti hann á húsbíl og fékk mikið högg. Hann var ekki með hjálm. Einnig er talið að það hafi 17 manns farist við að stunda Kite surfing í heiminum síðan árið 2000. (Sjá blaðagrein)

Það er ekki nema von að kennarinn minn leggi mikið upp úr öryggi í kennslunni. Meðal þess er að vera alltaf með hjálm, alltaf hafa einhvern vanann með sér og halda drekanum í lágri stellingu þegar verið er nálægt landi. Ég skildi ekki alveg afhverju hann lagði svona mikið uppúr þessu enda fanst mér þetta voða saklaust að vera með eitthvað svona bundið um mig. ÉG taldi mig nú geta haft fulla stjórn á þessu apparati. Hins vegar eftir svona atburð þá skilur maður þettta enda ótrúlegur kraftur sem hægt er að ná út úr drekanum.

Ég mun fara varlega í framtíðinni, no worries

 
 

Sunnudagurinn 17. október 2004

KITE KENNSLAN !!!!!!!!!!

Áfram heldur KITE kennslan hjá mér og er ég búinn að fara í 3 tíma núna af 4. Tíminn í gær fór í það að vera með 13 metra KITE í sjónum og fara í BODY DRAGING en þá leggst maður í sjóinn og lætur Kite inn draga sig áfram eftir sjónum. Það er ótrúlegt hvað er hægt að ná miklum krafti út úr svona Dreka en mér skilst að þetta sport sé kallað að BRIMDREKA á Íslandi. Jahérna. þvílíkt nafn. Ég held að ég fari bara milliveginn og kalli þetta að Kita.

Maður finnur aðeins fyrir því að vera kominn á þennan aldur og skrokkurinn er allur lurkum laminn eftir þetta enda orðinn mun eldri en sálin sem í honum er ;) Það væri mikið gefandi fyrir það að hafa þá reynslu sem maður hefur í dag og vera samt um 15 árum yngri. Allavega, ég fór eftir kenslutímann og keypti mér KITE, blautbúning, harness (mittisbelti) og hjálm. Brettið kemur svo síðar en maður þarf að æfa þetta body dragging í 2-3 vikur áður en á brettið verður stigið.

 
 

Sunnudagurinn 17. október 2004

ROUND TABLE COCTAIL KVÖLD !!!!!!!!!!

Í gærkvöldi var haldin mikil veisla hjá okkur hér í RT 34 í Tauranga. Efnt var til kokteil kvölds þar sem fenginn var faglærður þjónn til að laga hina ýmsu kokteila fyrir okkur. Þema kvöldsins var allt sem viðkemur sólríkum stöðum svo sem eins og blómum skreyttar Havaii skyrtur og einnig kom snorkl útbúnaður við sögu. Kvöldið var geysilega vel heppnað og til mikillar eftirbreitni fyrir aðra klúbba. Hver og einn kom með einhvern disk af mat sem boðið var upp á um kvöldið og þurfti það ekki að vera flókið. Ég var hinn hefðbundi piparsveinn og kom með frosna Havaii pizzu með mér. Allt fór að sjálfsögðu mjög faglega fram þangað til þjónninn hvarf af braut undir miðnætti en þá tóku sumir upp það að drekka hina ýmsu líkjöra beint af stút og blanda hina ótrúlegustu drykki. Myndir af þessu eru á myndasíðunni og video hér og til hliðar.

 
 

Sunnudagurinn 10. október 2004

FARINN AÐ LÆRA KITE SURFING !!!!!!!!!!

Ég er búinn að vera reyna að komast í kennslu í Kite surfing núna í nokkurn tíma og það var fyrst í gær sem ég komst í fyrsta tímann og skellti mér svo aftur núna í dag. Þetta fellst í 4 kennslustundum í þeesari tækni og er hann Thomas kennarinn minn ekkert að spá í það hversu lengi hver tími er. Ég var í 3 tíma í hvort skifti og verð ég að segja að þetta er geggjað sport. Það er reyndar ekki fyrr en í 4. tíma sem maður fer í vatnið með brettið en næsti tími fer í að vera í vatninu og leika sér með stóra kite-inn, bæði að setjann á loft án hjálpar og lenda honum án hjálpar. Ég fékk aðeins að æfa mig með hann núna í dag og hann getur togað verulega vel í. Ég vona að næsta helgi verði góð og ef vel gengur þá er ekki um neitt annað að ræða en að kaupa sér fullan búnað, en hann kostar um 100.000 kr. notaður og er það þá bæði Kite, bretti, blautbúningur og annað nauðsynlegt sem þarf. Síðan eftir svona 2-3 vikna æfingar þá fer maður í vatnið og ég hlakka mikið til þess. Ég setti nokkrar myndir af þessu á myndasíðuna svona til gamans. Einnig er hérna Kite video af einum þeim sem er að kite-a hérna og tengist kenslunni sem ég er í. Eins og þið sjáið þá er hægt að fljúga vel í þessu sporti. Ef það er einhver þarna heima sem veit hvað þetta heitir í Íslensku eða hvort að þetta er stundað heima þá væri gaman ef sá hinn sami myndi skrifa það í commentið hérna að neðan.

 
 

Miðvikudagurinn 6. október 2004

ÚTILITIÐ ÞEGAR MAÐUR VERÐUR GAMALL?

Hér í húsinu ríkir núna photoshop stríð eftir að Thomas setti það forrit inn í tölvuna hjá sér. Það keppist hver um það að gera hina sem allra ófrínilegasta með Photoshop sem er algert snilldar forrit.

Þessa mynd gerði Baddi og telur þetta verða útlit mitt þegar ég verð gamall. Dæmi nú hver fyrir sig.

Hina strákana má sjá á heimasíðunni hjá Badda.

 
 

Mánudagurinn 4. október 2004

ER FRAMTÍÐIN RÁÐIN?

Heimasíðan hefur verið lítið uppfærð síðustu vikuna vegna fréttaþurðar. Lítið hefur verið að gerast sem er spennandi eða áhugavert. Eitt hefur þó verið að gerast og það er ákvörðun um framtína hjá mér. Ég komst loks að niðurstöðu og hef ákveðið að setjast að hérna í Tauranga eða allavega á Nýja Sjálandi í svona 1-2 ár. Ekki er maður reyndar með neina vinnu í takinu en það er sagt að það eigi ekki að vera vandamál, enda eins gott, þar sem ég verð að vera kominn með atvinnuleyfi í landinum áður en ég fer heim. Í dag erum við ólöglegir hérna þar sem skólinn er ekki ennþá búinn að redda okkur studentavisa vegna einhverra lagaflækna. Það er því eins gott að vera ekki stoppaðir og sendir úr landi.

 

Ég mun koma til Íslands í millitíðinni og ljúka hringferðinni um hnöttinn. Svona er ferðaplanið svona:

14.01.2005 Auckland-Bankok - Ætlunin að vera 2 nætur í Bankok og ferðast síðan um Tailand í 4 daga.

20.01.2005 Bankok-Kaupmannahöfn - Er reyndar á biðlista hjá Tai air eins og er en á góða möguleika á að komast með.

20.01.2005 Kaupmannahöfn-Keflavík - Fer eftir fluginu frá Bankok. Gæti verið degi fyrr eða seinna

21.01.2005 Gravarvogur-Árbær - Herrakvöld Fylkis. Hef ekki verið þar síðan árið 2000, kominn tími til.

Óákveðið  Þorlákshöfn -Vestmanneyjar - Og núna tekur maður sjóveikispillur fyrir brottför.

11.02.2005 Reykjavík-Selfoss - Fulltrúaráðsfundur Rount Table Ísland. Alger nauðsyn finnst maður er á Íslandi.

16.02.2005 Keflavík-Kaupmannahöfn-Horsens - Hitta skólafélaga og eiga góðar stundir

22.02.2005 Arhus-London - Flugmiðinn kostaði heilar 19 Dkr. Ætla að hitta Birgir frænda sem er sestur að í London

24.02.2005 London-Honk Kong - Verð í Honk Kong í stuttan tíma en ætlunin er að taka lest til Sjanghæ í Kína

                   og ferðast eitthvað nánar um það svæði og sveitahéruðin. Kína er eflaust geggjað land að heimsækja.

08.03.2005 Hong Kong-Auckland - Þegar hingað verður komið þarf maður að fara að byrja venjulegt líf aftur og fara

                   að vinna, enda kanski kominn tími til eftir 3 1/2 árs leti líf í skóla. hmmmmm

 

Set meira inn fljótlega.

 

PS: Attilla er að koma í heimsókn frá Ungverjalandi á Fimtudaginn ásamt mömmu sinni. Reikna með að það verði frá meiru að segja á meðan þau verða hér ;)

 
 

Aftur á forsíðu

© GINFAN.COM - STOFNAÐ 23. OKTÓBER 2003 - ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN