WHAAASSSUUUP

 

Þriðjudagurinn 6. júlí 2004

LOKAVERKEFNIÐ

Þar sem ég er núna búinn að búa til síðu um lokaverkefnið mitt finst mér rétt að segja lítilega frá því hér. Þetta er sundlaug hérna við skólann, 25 mtr löng og 4 metra djúp sem er meðal annars notuð til kenslu við köfun. Á svæðinu er líka tækjageymsla fyrir köfunarfélgið þar sem geymdir eru bátar og fleira og tækjasalur þar sem ætlunum er að fara að brenna af sér spikinu á næstu dögum. HMMMM. Við skulum sjá hvað setur. Ég er nú ekki búinn að reikna fermetratöluna ennþá en er í því máli þessa dagana. Áætlaður kostnaður við bygginguna er um 1,5 milj. NZ$ sem er nálægt 75 milj. ISK. Það verður þó að hafa í huga að byggingakostnaður hérna niðurfrá er mun lægri en á Íslandi. Hér er t.d. byggingakostnaður á íbúðarhúsnæði á bilinu 40-60.000 ISK á fermeter sem er um helmingur miðað við heima. Hægt er að sjá það sem ég er búinn með af verkefninu á skólasíðunni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
 

Sunnudagurinn 4. júlí 2003

HELGARPARTÝIÐ

Þessa helgina héldum við partý enn og aftur og í þetta skiftið var ástæðan sú að Trína hin danska er að fara aftur til DK eftir árs dvöl hérna í NZ. Pedro mætti með sína fyrrverandi og systur sína. Thomas eldaði hið besta lasagna og eftirá var farið á Creme bar hérna við fjallið. Við Baddi fórum reyndar á smá rölt um svæðið og prufuðum snafsa á öðrum stöðum sem leiddi til meiri ölvunar en venja er til. Myndirnar frá kvöldinu er á myndasiðunni.

 
 

Sunnudagurinn 4. júlí 2004

HUNDUR AÐ NAFNI SEX

Usually people call their dog something like Fido or Rover.

I call mine Sex!

Now sex has caused me lots of problems. Last night, sex ran off again and I spent hours looking for him. A policeman came up to me and asked what I was doing loitering around at 4.a.m.!

I said I was looking for Sex. My case comes up next Monday. When I was arranging my marriage, I told the priest that I wanted to have sex at the wedding. He told me to wait until after. I said “but my whole life has come to revolve around Sex” He said he didn’t want, to hear about my solid life and would not marry us in his church. I told him that everyone coming to the wedding would enjoy having Sex there. He then changed his tune and said that we’d be very welcome in his church.

When we went on honeymoon, I took the dog with me. I told the receptionist that I wanted a double room for my wife and me, and a special room for sex. He said that every room in the hotel was for sex. I said “you don’t understand sex keeps me awake at night” The receptionist replied,  “ Me too” .

When my wife and I separated, we went to court to fight for custody of the dog. I said “ But your honor, I had sex before I was married”! The judge said  “me too”.  Then I told him that after I was married, sex left me. He said “me too”

 

The thing is........I still love sex.

 
 

Miðvikudagurinn 30. júní 2004

NÝTT ÚTLIT Á SÍÐUNNI

Eftir nokkurn dvala vegna tíðra bilana í fínu IBM tölvunni minni hefur ginfan vaknað til lífsins aftur. Núna er skólinn byrjaður þannig að það verður vonandi aðeins meiri tími til að skella inn greinum og myndum. Nóg er búið að taka af þmyndunum allavega og nokkur videoin hafa verið framleidd og eru þau á síðunni hjá Badda.

Byrjunin hjá mér er að breyta útlitinu og er það aðalega gert til að koma lokaverkefninu fyrir. Eins og síðan var uppsett var ekki nokkur möguleiki að setja þetta þannig upp að vel færi. Einnig þótti mér við hæfi að breyta bakgrunninum þrátt fyrir þau skelfilegu tíðindi að Fylkir hafi tapað í morgun. Ég vona að við séum ekki að byrja of fljótt á lélega kaflanum. hmmmmmm

 
 

Sunnudagurinn 6. júní 2004

SKÝRLAN UM PRAKTÍKINA

Það sem ég mun leggja allt 7. annar verkefnið mitt á netið þá er eins gott að fara aðeins að æfa sig. Þetta mun ég gera til að kennararnir geti sótt þetta jafnóðum og ekki þurfi að vera að senda stóra tölvupósta á milli. Með þessu móti er engin hætta að að neitt tapist í tölvupósti eða hafi ekki komið og svo framvegis. Þegar við byrjum í skólanum þann 28. júní mun ég setjast niður og skipuleggja semestrið og setja inn heimasíðu með því sem ég ætla að gera. Verkefnin verða síðan linkuð við eftir því sem ég næ að klára þau. Hérna er æfingin mín en það er skýrsla um Praktíkina sem við erum rétt að fara að ljúka. Klikkaðu á myndina vinstra megin til að lesa skýrsluna. 

 

Fimtudagurinn 3. júní 2004

FYLKISLIÐIÐ FREKAR GAMALT AÐ SÖGN BATMAN.IS

Ég rakst á link á Batman.is þar sem þessi fyrirsögn er viðhöfð og þaðan er linkur á MBL.IS með nöfnum á leikmönnum Fylkis ásamt aldri. Ég verð að vera algerlega ósammála þessari fullyrðingu og miðað við aldur sumra leikmanna þá virðist liðið eiga framtíðin fyrir sér. Ef við kíkjum aðeins á aldur leikmanna þá eru Albert B. Ingason, Björgvin Vilhjálmsson, Einar Pétursson, Guðjón Hauksson, Kjartan Ágúst Breiðdal, Ragnar Sigurðsson, Sigurjón M. Kevinsson og Þorbjörn Atli Sveinsson 74 ára. (sjá mbl) Þorbjörn Atli er í hörkuformi, búinn að skora 2 mörk fyrir okkur og því síður en svo of gamall. Þeir næst elstu í liðunu eru Finnur Gunni Þór og Tóti sem eru 32ja ára. Ég sé því fyrir mér mjög bjarta framtíð Fylkisliðsins næstu áratugina og hlakka til að sjá þrenninguna spila úrslitaleik Bikarkeppninnar árið 2046 og jafnvel síðar.  Tóti, þú þarft því ekki lengur að láta þér vaxa skegg. Þú munt bara verða yngri með árunum eins og myndi til hliðar ber með sér. Markmenn geta almennt spilað lengur en útispilarar og sé ég því Bjarna markmann, sem er 11 árum yngri en þrenningin spila leiki langt fram yfir árið 2060.  ÁFRAM FYLKIR UM ÓKOMNA FRAMTÍÐ.

 

Til baka á forsíðu

© GINFAN.COM - STOFNAÐ 27. OKTÓBER 2003 - ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN