Sunnudagurinn 28. maí 2004

HITT OG ÞETTA

Þá er leikur Grindavíkur og Fylkis lokið og að sjálfsögðu unnum við þetta með stæl. Baddi var ekki par hrifinn yfir leiknum en lét sig þó hafa það að fara í vinnuna í Grindavíkurpeysunni sinni.

Hér er maður aðeins farinn að finna fyrir því að það er farið að kólna, enda nánast kominn vetur. Hér er tiltölulega kalt á nóttunni og húsin eru ekki upphituð né vel einangruð. Hitastigið er þetta um 6-8 gráður á nóttunni en 15-18 gráður á daginn. Það hitastig er þó ekki nema rétt yfir hádaginn, svona á milli 10 og 15. Þetta er nú reyndar samt ansi gott miðað við það að þetta er sama tímabil og nóvemer heima á klaka.

Núna erum við búnir að komast að því að praktíkin okkar er búin viku fyrr en við reiknuðum með, en hún er einungis 9 vikur í þetta skiftir. Við eigum því að klára hana 18. júní og höfum því viku til að drolla áður en við byrjum í skólanum.

Komnar eru myndir inn á netið frá helginni, en okkur var boðið í opnun nýrrar Maorita kirkju og er sú athöfn ansi sérstök. Einnig eru myndir úr matarboði sem við fórum í til vinnufélaga Gústa töfra auk þess sem ég uppfærði myndir frá vinnustaðnum og þróuninni þar.

 

Fimtudagurinn 18. maí 2004

GRINDAVÍK-FYLKIR

Þá er ég loksins búinn að fá tölvuna aftur og var það harði diskurinn sem hrundi. Verið er að reyna að fá Nýherja til að taka þessa tölvu úr umferð og láta mig fá nýja í staðinn. Við sjáum hvað setur.

En að öðru. Í kvöld er leikur Grindavíkur og Fylkis í deildinni og bíðum við spenntir hérna niðurfrá. Við vissum að Grindavíkingar voru að reyna að koma fyrir vef myndavél í stúkunni hjá sér þannig að við gætum horft á leikinn hérna beint en því miður tókst það ekki í þetta skiftið. Reyndar tekur því varla úr þessu þar sem flestir Grindvíkingar búa í Grindavík og halda sig þar, sem betur fer. Það væri frekar að stórveldið Fylkir myndi taka upp þessa nýbreytni, enda aðdáendur þess úbreyddir um allan heim, svo sem  í USA, Nýja Sjálandi, Fiji, Ítalíu og Danmörku. Reyndar er núna Fimtudagskvöld hjá okkur og því ætti leikurinn að vera búinn ef að tímasetningunni væri fylgt.  Ég held að leikurinn hafi farið 1-3, að sjálfsögðu fyrir Fylkir. Allavega þá munum við Baddi sitja hérna við útvarpið kl. 07.15 í fyrramálið og hlusta á leikinn í beinni, þökk sé hinn frábæru uppfinningu, internetinu. Að sjálfsögðu uppáklæddir í okkar uppáhaldsbúninga. Núna er komin á myndasíðuna hjá mér myndasyrpa um Hina fallegu sérprjónuðu FYLKISPEYSU sem er á leiðinni umhverfis hnöttinn á 365 dögum. Myndirnar er að finna hér.

 

Þriðudagurinn 18. maí 2004

VIÐGERÐ Í VÆNDUM

Eftir nokkra maila og skoðanaksifti má reikna með að harði diskurinn sé að gefa sig eða eitthvað í þeim dúrnum og er því tölvan á leið í viðgerð. Það verður því enn bið á að ég uppfæri heimasíðuna, en ég fæ tölvuna aftur seint í næstu viku. Þangað til bendi ég á heimasíðuna hjá Badda, en þar verða myndir og fleira sett inn.

 

Mánudagurinn 17. maí 2004

OG ENN EINU SINNI HRUNDI TÖLVAN MÍN

Þetta er að verða svona einn af þessu daglegu viðburðum hjá mér að tölvan hrynji. Allavega gerðist það sama og þegar við komum hingað að stýrikerfið eða eitthvað annað gaf sig og ég þurfti því að formata tölvuna enn einn ganginn. Ég var búinn að útbúa 3 myndasíður til að setja inn um leið og ADSL tengingin kæmi í hús hjá okkur en því miður verður einhver bið á því þar sem allt sem ég var búinn að gera sl. 4 vikur tapaðist. Það verður því ekki mikið um uppfærslur hjá mér fyrr en síðar í vikunni eða undir helgina en núna er allavega komin alvöru tenging í húsið. Ég vona að við finnum eitthvað út úr þessu í samvinnu við Nýherja, umboðsaðila hinna frábæru IBM tölva á allra næstu dögum þannig að ég geti farið að treysta tölvunni, eða vonandi fá nýja fyrir þessa verulega gölluðu. Þangað til þetta leysist eru myndir helgarinnar og síðustu viku á heimasíðunni hjá Badda.

 

Sunnudagurinn 8. maí 2004

3. HEIMSÁLFAN VARÐANDI INTERNET

Þá er enn ein vikan að líða án þess að við fáum alvöru internet tengt í húsið hjá okkur. Eins mikið og maður hefur fallið fyrir þessu landi og sérstaklega þeim stað sem við núna búum á þá verður að segjast að þjónusta Telecom, sem er eina fyrirtækið hérna sem getur boðið ADSL internet er fyrir neðan allar hellur. Hingað til hefur allt sem okkur hefur verið sagt ein stór lygi og í hverju einasta símtali er eins og allir séu að kaupa sér lengri tíma.  Fyrst var okkur lofað tengingu hingað inn 4. maí sem var þriðjudagur í síðustu viku. Engin lét sjá sig og þegar hringt var lofuðu þeir öllu fögru og ætluðu að koma í dag, sunnudag. Þegar hins vegar enginn kom og við hringdum kom kom í ljós að þeir vinna ekki á sunnudögum þrátt fyrir þetta loforð. Eins og staðan er í dag er fyrsti lausi tími til að tengja okkur þann 18. maí, eftir tæpar 2 vikur. Að sjálfsögðu erum við búnir að vera brjálaðir við þetta einokunarfyritæki í dag og eigum von á símtali frá einhverju yfirmanni upp á að koma okkur fram fyrir í röðinni. Við sjáum hvað gerist en enn þá erum við sem sagt með 56,6 K upphringilínu sem er að skila okkur um 40 K upplýsingaflæði. Ég er búinn að útbúa 3 myndssíður með um 500 myndum sem eiga eftir að koma inn og ætla ég að sjá hvort að við fáum tenginguna á morgun. Annars kemur þetta inn í skömtum í vikunni, kanski ein síða á kvöldi.

Aftur á forsíðu