|
Mánudagurinn 26. apríl 2004 PRAKTÍKIN MÍN Þá er maður byrjaður á praktíkinni hérna niður frá. Ég verð að teljast einstaklega heppin þó að ekki hafi gengið upp með þá praktík sem mér var lofað í byrjun. Ég er hjá verktakafyrirtæki sem heitir Belvedere Construction og er millistór verktaki sem er á þröskuldi þess að verða stórverktaki. Veltan í dag hjá honum er þetta á milli 600-800 miljónir á ári og verkefnin streyma inn þannig að hún fer stöðugt stækkandi. Ég er á byggingastað þar sem verið er að byggja 5 hæða "turn" með 32 íbúðum. Búið er að reisa bílakjallarann en það var gert af öðrum verkataka sem fékk ekki áframhaldandi samning, en búið er að reisa þarna 4 hæða "turn". Manni er hent þarna beint í djúpu laugina og var ég m.a. gerður ábyrgur fyrir öryggi á vinnustað á fyrsta degi og þurfti að halda fund með starfsmönnum án mikils undirbúnings. Síðan er ég þessa dagana að sjóða saman byggingaáætlun fyrir verkið,en það á að vera búið 30. nóvember n.k. Byggingastíllin er soldið sérstakur en það er staðsteypt í miðjunni í kringum stigaganginn og síðan er annað burðarvirki stálgrind og forsteyptar steypueiningar utaná. Þetta er mjög spennandi þar sem ég mun vinna mjög náið með verkefnistjórnandanum og í mörgum til fellum verð ég einn á byggingastað sem stjórnandi. Ég hef sett nokkrar myndir af verkinu á síðuna eins og það er í dag og mun ég bæta við eftir því sem það þokast áfram. |
|
Þriðjukudagurinn 18. apríl 2004 KOMNIR MEÐ HÚSNÆÐI Við vorum einstaklega heppnir með húsnæði en við erum búnir að leigja stórt einbýlishús á 3 hæðum með innahúss lyftu. Húsið er staðsett á aðalströndinni hérna við Mt. Maunganui. Þaðer nánar um þetta á síðunni hjá Badda en ég er í svolitlum vandræðum þar sem tölvan mín hrundi einu sinni enn. Að þessu sinni var það ekki móðurborðið eins og hin 2 skiftin heldur hugbúnarfeill einhver og gat ég bara ekki með neinu móti kveikt á henni. Sem betur fer var ég búinn að skrifa hjá mér allar myndir og skólaverkefni en ég tapaði öllu öðru, svo sem heimasíðunni minni, favorites listanum og mörgu meiru. Ég þarf því að komast í internet samband með tölvuna mína til að ná í síðurnar aftur til að geta uppfært annað en aðalsíðuna. Við erum búnir að panta internetið heim og vonumst til að það komist í samband öðru hvoru megin við næstu helgi þannig að hægt verður að uppæra alla síðuna um leið og það gerist. Þangið til bið ég alla vel að lifa. |
|
Miðvikudagurinn 13. apríl 2004 KOMNIR TIL NÝJA SJÁLANDS Loksins erum við komnir til Nýja Sjálands eftir 3ja vikna ferðalag. Þetta er búið að vera einstaklega skemtilegur tími þó að þreytan hafi gert vart við sig síðustu dagana og maður er feginn að geta farið að taka upp úr ferðatöskunni og setja inn í skápa. Við komum hingað í Jakaranca House um kvöldmat í gær eftir 3ja tíma veiðiferð fyrir utan Fiji, 3ja tíma flug og svo 3ja tíma keyrslu. Samtals tók þetta um 13 klst. Rod fór svo með okkur að borða en þreytan var of mikil til að gera eitthvað meira þannig að farið var beint í rúmið að því loknu. Þessi heimavist sem við lentum á stendur ekki alveg undir nafni. Herbergið er lítið og langt í WC og sturtu þar sem ég er fremst á ganginum og aðstaðan er allra innst. Við munum allavega fara að leita okkur fljótt að framtíðarhúsnæði hér, og það helst við ströndina. Hér á eftir fara nokkrar greinar um ferðina frá því að frá var horfið þann 5. apríl. Þar sem við erum enn ekki komnir í gott internet samband er ég með linkað á myndirnar hjá Badda hérna og ef einhver vill lesa nánari lýsingar af ferðalaginu þá eru þær á dagbókinn hans Badda. Mín dagbók er í gamla forminu, þ.e. handskrifuðu. |
|
Mivikudagurinn 13. apríl 2004 BEACHCOMBER ISLAND, FIJI Föstudaginn 9. apríl var lagt af stað til Beachcomber. Þetta er lítil eyja, um 25 mínútna sigling frá meginlandi Fiji. Svo fólk geti gert sér grein fyrir stærðinni þá tók samtals um 7 mínútur að ganga í kringum hana. Við höfðum farið á Sverðfiskveiðar þá um morguninn og hitt strák um borð frá Nýja Sjálandi sem var kallaður Pedro. Hann kom þarna yfir að hitta okkur og var í 3 nætur. Við kyntumst líka þarna 4 stelpum héðan og eyddum nokkrum tíma með þessum nýju kunningjum okkar. Þarna lágum við að mestu í leti þó að farið hafi veriðað snorkla inn á milli, þó að það hafi ekki gengið sem best hjá mér. Einnig fór ég í Parasailing þar sem maður sá vel yfir eyjarnar og kóralrifin í kringum þær. Þetta er að mestu leyti partí eyja þar sem mikið af ungu fólki er þó að inn á milli megi sjá þroskað og fallegt fólk eins og mig, og jafnvel þaðan af eldra. Ferðinni lauk svo í gær, þriðjudag, með sverðfiskveiðum aftur þó að enn og aftur hafi enginn sverðfiskur komið um borð. Að vísu veiddi Thomas einn góðan á spún sem bjargaði deginum. EFtir þetta var flogið til NZ eins og að ofan greinir. |
|
Mivikudagurinn 13. apríl 2004 L.A. OG NADI, FIJI Mánudeginum 5. apríl eyddum við í LA með Palla Gríms sem er sonur vinarfólks foreldra minna. Hann keyrði um með okkur og syndi okkur ýmsar byggingar í bænum meðal annar nýja tónleikahúsið þeirra. Þetta hús hefur ekki eina einustu beina línu á efri hlutanum og er klætt með rústríu stáli. Einni gkeyrðum við um hæðarnar þar sem við sáum hin ótrúlegustu hús byggð á eingu öðru en stólpum. Snertiflötur sumra húsann við jörð var ekki meiri en 10% og restin var byggð á súlum. Ég hef nú ekki verið talinn mjög loftræddur maður en enginn fengi mig til að búa í sumum þessara húsa. Einnig skoðuðum við Beverly Hills og Hollywood. Þegar nálgaðist kvöldið fórum við út á flugvöll þar sem átti að fljúga til Fiji. Ég hafði keypt mér mildar svefnpillur fyrir þetta flug þar sem það var rúmir 11 tímar og aldrei þessu vant þá virkaði það og ég svaf um 7 tíma af leiðinni. Hótelið var frábært í Nadi en borgin ótruleg. Þetta var eins og að koma 30 ár aftur í tímann hvað útlit húsa og bíla varðar. Sölumennskan á götunum er rosaleg og þú ert hvergi látinn í friði. Allir að reyna að fá þig inn í sína búð og vara við að versla við aðra. Einnig var þarna ávaxtamarkaður nokkur alveg ótrúlegur eins og hægt er að sjá á myndunum. Slæma veðrið fylgdi okkur og gekk hvirfil bylur yfir eyjuna á meðan við vorum þar þar sem m.a. 8 manns létu lífið. Þetta var þó að mestu á austurluta eyjarinnar þó að mjög vel hafi rignt og blásið hjá okkur. Vatn á götum höfuðborgarinnar Suva, var um 120 cm þegar mest var. |
|
Mánudagurinn 5. apríl 2004 OG ÞÁ ER ÞAÐ FIJI Eins og að neðan greinir erum við búnir að vera að ferðast um Vegas og LA síðustu 5 daga. Ýmislegt hefur á dagana drifið. Meðal annars tókum við upp puttaling á leiðinni til Vegas. Þannig var að það stóð trukkur mikill í vegarkantinum og vélarhúddið var opið. Viuð vegarkantinn stóð svo maður á bol og í jogging buxum og áætlaði ég að um trukkadræverinn væri að ræða og tók hann upp í. Þegar við byrjuðum að tala við hann kom hins vegar í ljós að hann var hvergi tengdur þessum trukk heldur var hann að losna úr fangelsi þá um nóttina. Ekki neita ég því að það fór smá hrollur um okkur þegar þetta kom í ljós en ekki var nú hægt að bakka út úr þessu með að skutla grey kallinum til síns heims, enda hafði hann verið að labba í 13 klst þar sem einginn vildi stoppa fyrir honum og hendurnar voru orðnar hvítar af kulda. Þegar við byrjuðum að tala við hann kom í ljós að um miskilning hafði verið að ræða og snérist málið um skuld til ríkisins sem hann hafði verið búinn að borga. Hann fékk hins vegar ekki leyfi til að leita að kvittuninni og var bara handjárnaður og tekinn. Annars var hann mjög hreykinn af því að hafa ekki setið í fangelsi síðustu 4 árin og þá einnig vegna skuldar. Þetta reyndist sem sagt saklausasta grey og engin ástæða til að hræðast nokkuð. Þetta er sennilega síðasta uppfærsla þangað til við komum til Nýja Sjálands en við fljúgum til Fiji í kvöld. (11 klst 45 mín) Ég linka hérna inn á myndirnar hjá Badda þar sem eru nýjar myndir frá LA. Einnig er hann búinn að setja inn dagbók af ferðinni þar sem eru nánari lýsingar á ferðinni til þessa. |
|
Sunnudagurinn 4. apríl 2004 STUTT SKILABOÐ Hef stutta stund tilað setja smá skrif inn. Erum búnir að fara til Las Vegas og vorum þar í 2 sólahringa. Var reyndar verulega þreyttur fyrra kvöldið en á seinni deginum náði ég að græða eina 110 dollara eða nálægt 8.000 kr. Það er allavega nóg til að borga upp hótelið sem við bjuggum á. Maður var náttúrlega búinn að reikna með því að tapa peningum þarna og ætlaði maður sér um 10.000 kall í það (ÍSK). Það ótrúlega gerðist á meðan við vorum í Vegas að það rigndi. Það hafði ekki rignt þar í 4-5 mánuði þannig að fyrir þá sem búa þar var þetta kærkomið en ekki fyrir okkur. Það fer allt í mínus við svona og meðal annars komst ég ekki í rússibana góðan sem ég vildi gjarnan hafa fengið að upplifa. Ég fékk þó nokkra uppreisn æru í dag í dag þar sem við fórum í rússibana garð í dag við lítinn fögnuð Badda þar sem hann er mikið "chicken" á því sviði. Náði ekki að prufa allta saman en þeir sem ég fór í voru geggjaðir. Égmun senda myndir af því á netið á morgun en á meðan mun ég linka inn á myndasíðuna hans Badda þar sem eru myndir frá síðustu dögum. Við erum hvort eð er að nota sömu myndir. Í fyrramálið munum við svo setja inn myndir frá deginum í dag og kvöldinu. Á morgun förum við svo með Palla Gríms sem er kuningi minn hérna að skoða Hollywood og allt þar um kring. Nánar á morgun. MYNDIR HÉR |
|
Fimtudagurinn 1. apríl 2004 BORG ENGLANNA Erum núna staddir í borg englanna, Los Angeles. Lentum í sotlum vandræðum þar sem ferðaráðstafinir gengu ekki upp og þurftum við þurftum að ljúga til um heimilsfang til að komast aftur inn til USA. Það gekk þó og þegar lent var í LA stóðum við eins og illagerðir hlutir á flugvellinum og vissum ekkert hvað ætti að gera. Eins og alltaf reddast hlutirnir þó undir lokin. Við vorum búnir að fá símanúmerið hjá Einari Þorsteins fylkismanni sem er einn af þremur sem er með fylkistattú. Hann reddaði okkur hóteli og fór með okkur á skemmtistað. Núna erum við svo að leigja okkur bíl og ætlum að keyra í gegnum eyðimörkina til Las Vegas í staðinn fyrir að fljúga eins og áður var ráðgert. Við munum vera þar í 3 nætur og koma svo aftur til LA þar sem Einar Þorsteins Fylkismaður ætlar að halda grillveislu fyrir okkur ásamt fleira góðu fólki. Biðjum að heilsa í bili. |
| Aftur á forsíðu |