|
Þriðjudagurinn 30. mars 2004 SJÓMANNASTÖRFIN Meðfylgjandi er video sem baddi gerði þegar við fórum í humarveiðiferðina í haugasjó. Það er hreint ótrúlegt að við skyldum ekki hafa fundið til sjóveiki í ferðinni. Sjá video |
|
Þriðjudagurinn 30. mars 2004 KANADA Þá virðist þetta vírusvandamál mitt vera nokkurn veginn leist. Allavega þá get ég sett inn myndir og greinar eins og áður og Kommentakerfið virkar. Þessi dvöl okkar í Kanada er búin að toppa allt sem toppað verður. Við erum búinir að vera í góðu yfirlæti Þóru, systur Badda og Jóni Þóri manni hennar. Mikið er búið að láta ofan í sig af góðum mat. Kíkt var á skemmtistað bæjarins og óhætt að segja að djammið hérna í Yarmouth sé aðeins öðruvísi, sérstaklega í klæðaburði. T.d. þá mætti maður með forláta leðurhatt á kollinum og ég var ekki neitt öðruvísi en nokkur annar. Við skárurm okkur allavega ekki úr hópnum. Í gær var svo farið á risahumar veiðar. Þetta var einstaklega skemtilegt upplifun og unnum við við hlið bræðranna (áhafnarinnar) á dekkinu við að koma humrinum í kassa og gera þá klára til sölu. Eins og sést að ofan eru þetta engir smá humrar sem um ræðir en þessi er síður en svo sá stæðsti. Síðan var fenginn hluti af aflanaum heim og settur í pott, að sjálfsögðu lifandi, og borðaður um kvöldið. Máltíðin var að sjálfsögðu helmingi ánægjulegri þar sem við höfðum séð um allt vinnuferlið við að veiða þessar lostætu skepnur. Núna er við í dag að fara til Halifax þar sem við fljúm mjög snemma í fyrramálið til Toronto og þaðan áfram til LA. Ekki er alveg vitað hvort að við förum beint yfir til Las Vegas við lendingu í LA eða 2 dögum seinna. Við reynum að koma inn sem fyrst með áframhaldandi ferðasögðu en vitum reyndar ekki hvort að við komumst í netsamband á næstunni. Bestu kveðjur þangað til. |
|
Þriðjudagurinn 30. mars 2004 VÍRUS Því miður virðist ég hafa fengið vírus í tölvuna mína og ýmsir hlutir virka ekki. Ég hef því ekki geta uppfært síðuna sem skildi. Meðal annars datt kommentakerfið út hjá mér en það virðist vera komið í lag. Ég er að vinna í þessu og vona að ég geti lagað þetta í dag. Á meðan eru allar myndir og greinar hjá Badda á www.baddi.dk |
|
Sunnudagurinn 28. mars 2004 NÝJA JÓRVÍK, NÝJA JÓRVÍK Það koma að því að fyrstu fréttir bærust af okkur. Við erum búnir að vera hálf handalausir þar sem við höfum verið í vandræðum með hleðslu á tölvunum okkar vegna þessa 110 volta kerfis. Þar af leiðandi gátum við ekki skrifað greinar til að setja inn. Allavega þá er fyrsta hluta ferðarinnar lokið en það er Nýja Jórvík í Nýju Jórvík USA. Þetta hefur verið mikil upplifun og borgin er mjög mikið breytt frá því ég var þar síðast í Nóvember 2000. Breytingin felst helst í GRÍÐARLEGRI öryggisgæslu á öllum stöðum. 2 þyrlur sveima stanslaust yfir Ground Zero svæðinu og Frelsistyttunni en Bandaríkjamenn eru mjög hræddir um að hún verði næsta skotmark. Við fórum að skoða þessa frægu styttu og annari eins öryggisgæslu höfum við aldrei lent í. Hún var t.d. mun meir en á hvaða flugvelli sem er og þurftum við næstum að berhátta til að komast í gegn. Í búðum er öryggisgæslan líka gríðarleg og á mörgum stöðum er leitað á þér þegar þú ferð inn, sérstaklega í þeim stóru. Til að gera langa sögu stutta þá var mikið þrammað um alla Nýju Jórvík og mikið skoðað af byggingum. Meðal annars sáum við Ground Zero svæðið eins og sést á myndunum. Miklar framkvæmdir eru þar hafnar við að reisa nýja turna. Það sem kom manni kanski mest á óvart þar (eins og sést á myndum) þá er stálgrindin reist fyrst (segir sig sjálft) og síðan er slegið utan um hana mótum og staðsteypt í. Þar á eftir eru útveggirnir staðsteyptir. Ekki höfum við neina skýringu á þessu en ef einhver hefur hana væri gott að sá hinn sami myndi tjá sig í komment hér undir. Að mörgu leyti erum við búnir að vekja mikla lukku og eftirtekt í Nýju Jórvík þar sem við höfum verið með bakpoka,tilbúnir að bregða okkur í sérprjónaðar lopapeysur í litum íþróttafélaganna okkar. Að sjálfsögðu þarf ekki að deila um það að Fylkispeysan er miklu flottari. Einnig hefur Eyjablikk, fyrirtæki Stebba bróðis í Eyjum fengið sinn skerf að myndum í borginni sem aldrei sefur. Við látum myndirnar tala sínu máli fyrir restina af ferðinni sem eru á síðunni hjá Badda. Linkur hér. |
|
Mánudagurinn 22. mars 2004 UMHVERFIS HNÖTTINN Á 365 DÖGUM Eins og menn hafa tekið eftir hefur síðan mín íslenska legið niðri núna í nokkra daga. Ástæðan er uppfærsla hérna á skólanetinu og þeir voru ekkert að flýta sér að koma þessu í lag, frekar en fyrri daginn. Allavega þá er loksins komið að því að leggja af stað í ferðina umhverfis hnöttinn. Við Baddi munum taka lestina í fyrramálið héðan frá Horsens til Kastrup og flugið fer síðan í loftið kl. 12.05 í hádeginu. Það má reikna með að við vínkum ykkur íslendingum úr 33.000 feta hæð mjög nálægt 2 leitinu þarna heima. Flugið tekur 8 klst og 45 mínútur og lendum við þar af leiðandi um 2 leitið líka í New York, sem er fyrsti áfangastaður í þessari næstum árs löngu ferð okkar um hnöttinn. Við munum birta myndir og pistla reglulega eftir því sem við komust í færi við tölvur þar sem hægt verður að uppfæra síðurnar í. |
|
Fimtudagurinn 18. mars 2004 PRÓFIN BÚIN Loksins kom að því að prófin kláruðust. Þetta var svona solidð fock up frá skólans hálfu þar sem við þurftum að fara 2x upp. Lögfræðingurinn komst ekki í aðalprófið okkar þannig að við þurftum að evulera hana sér. Allt saman gekk þetta nú mjög vel og varð úr að grúbban fékk öll 10 í einkunn. Núna er ginfan að reyna að koma sér að verki að pakka og flytja og mála og annað til að skila íbúðinni, enda verður lagt af staði í heimsreisuna á Þriðjudaginn. Að sjálfsögðu verður hægt að fylgjast með gangi mála hjá okkur, bæði í rituðu formi og myndaformi |
|
Þriðjudagurinn 16. mars 2004 Fundurm með kennurum Tækniháskólans
Til nemenda í Byggingafræði BTH
Horsens |
| | |
|
Þriðjudagurinn 16. mars 2004 KOMMENTAKERFI Þá er ginfan loksins búinn að koma því við að tengja greinarnar við komment. Þið getið þá loksins reynt að hakka mig í ykkur ef þið mögulega getið. Ginfan segir bara eins og Frímann, MÉR ER ALVEG SAMA. Við sjáum allavega hvernig þetta virkar svona í byrjun áður en ginfan fer að hreykja sér of hátt. |
|
Mánudagurinn 15. mars 2004 KANNAÐUR FLUTNINGSHRAÐA NETSINS HJÁ ÞÉR Ég rakst á þessa síðu í morgun þegar ég var að leita mér að Commenta kerfi en fann ekki. Þarna er hægt að kanna tengihraða interntsins hjá ykkur. Það kemur mikið á óvart hvað hann er yfileit mikið lægri en upp er gefið. Klikkið hérna til að kanna. |
|
Föstudagurinn 12. mars 2004 LÖND SEM ÉG HEF KOMIÐ TIL Við fundum síðu á netinu þar sem hægt er að merkja við þau lönd sem þú hefur komið til og fengið þau merkt á korti. É setti þetta að gamni mínu inn og hafði með þau lönd sem við munum heimsækja á ferðinni okkar kringum hnöttinn. Meðfylgjandi er niðurstaðan:
|
|
Miðvikudagurinn 10. mars 2004 VÍRUS Svo virðist sem einhvers konar vírus hafi verið settur inn á gestabókina mína og hef ég að því tilefni aftengt hana tímabundið. Um er að ræða einhverja pop up glugga sem opnast og er erfitt að losna við. Ekki veit ég meira um þetta að sinni, en veit að það er verið að reyna að finna út úr þessu. Ég vona að það hafi ekki verið margir sem lentu í þessu. |
|
Þriðjudagurinn 9. mars 2004 KVEÐJU GOLFMÓT ADDA OG BADDA Þá er komið að fyrsta móti “sumarsins” hjá Leit.is. Spilaður verður Texas scramble með blautu sniði. Addi og Baddi raða í hollin, Addi og Baddi telja stigin, Addi og Baddi ráða öllu og Addi og Baddi vinna mótið. Það er allavega rétt að taka þetta fram þannig að enginn fari sár heim útaf svindli mótshaldara. Þar sem þetta er nú kveðjumótið okkar munum við hafa þetta í lengra lagi. Dagskrá er eftirfarandi, föstudaginn 19. mars:
15.00: Mót hefst á félagsvelli Leitar.is í Hansted 19.30: Matur í keiluhöllinni þar sem verða framreidd Bein að dönskum sið. Hefðbundin dagskrá verður yfir matnum þar sem meðal annars Addi og Baddi verða krýndir sigurvegarar mótsins.A 21.00: Aukamót, sem að þessu sinni verður þreytt á keilubrautinni. Um er að ræða diskó keilu í blikkandi ljósum með möguleika á ókeypis snafsi. 22.10: Skólabarinn verður tekinn í síðasta skifti fyrir brottför til NZ. ??.??: Heimkoma upp í rúm konunnar (fyrir utan mig)
Þeir sem ætla að vera með eru vinsamlega beðnir að skrá sig til þáttöku á heimasíðunni hjá Badda www.baddi.dk undir “comment” við þessa grein, sem einnig er birt þar. Þar sem við þurfum að panta borð í keiluhöllinni er allra síðasti skráningardagur á næsta Mánudag, þann 15. Mars. Kostnaður við golfmótið er á bilinu 100-120 kr og bein og bowling er um 139 kr.
Með kveðju fyrir hönd stórnarinnar
Addi og Baddi sigurvegarar mótsins |
|
Mánudagurinn 8. mars 2004 KÚRBÍTURINN OG ELLIÐI Ég rakst nú nýlega á síðu manns með réttar skoðanir á fótbolta. Þarna er að finna snilldar greinar um fótbolta, og sérstakla það félag sem getur talist Mekka fótboltans á Íslandi, Fylkir. Um er að ræða fyrrverandi leikmann "Mekka" liðsins sem lagði land undir fót og fluttist búferlum til Ítalíu. Er hann eflaust á mála hjá AC eða Inter, enda geta leikmenn Fylkis vænst þess að komast að hjá hvaða Stórliði sem er. Félagið hefur að þessum sökum náð að selja nokkra uppalda Fylkismenn til erlendra liða fyrir dágóðan pening, eitthvað annað en KR, enda ekki með neina uppalda leikmenn á sínum snærum. Ég hvet ykkur til að kíkja á síðun hans og er linkur hérna. |
|
Sunnudagurinn 7.mars 2004 KØBEN OG ÁLABORG Það hefur verið nokkuð ferðalag á manni síðustu daga og þegar ég settist niður núna rétt áðan voru liðnir næstum því 4 dagar síðan ég komst á netið síðast. Það er ekki laust við það að maður hafi verið kominn með fráhvarfseinkenni af netleysi, ótrúlegt en satt. Þar sem þetta eru nú að verða síðustu dagarnir hérna í Danmörku þá erum við mikið bókaðir í því að kveðja gott fólk sem við höfum kynnst við veru okkar hérna. Á fimtudaginn fór ég til Köben að hitta Gunnu vinkonu og fylgifiska hennar og um helgina vorum við Baddi í Álaborg að kveðja hana Írisi Lóu okkar. Hún var að flytja í nýtt húsnæði og eins ótrúlegt og það er þá býr húna núna á Íslandsgötu í Álborg. Við komu okkar þangað beið okkar yndisleg íslensk máltíð sem var nýsoðið slátur, lyfrapylsa og blóðmör. mmmmmmmmmm. Takk Íris. |
| Til baka á forsíðu |