|
Laugardagurinn 28. febrúar 2004 GARFIELD
|
|
Föstudagurinn 27. febrúar 2004 ÍBÚÐ TIL LEIGU Þar sem við félagarnir erum núna að flytja til Nýja Sjálands í næsta mánuði þarf ég að finna nýjan leigjanda í íbúðin sem ég er í. Íbúðin er beint á móti skólanum að Amaliegade 17 og er 34 m2 að stærð. Það eru einungis um 20 skref frá húsdyrum að skóladyrum. Leigan er 2.400 Dkr á mánuði með hita og svo fæ ég um 340 kr. í húsaleigubætur til frádráttar þessu. Ef einhver veit um aðila sem vantar einstaklingsíbúð þá endilega látið þann aðila hringja í mig í S: 5053 2054 eða maila á mig á fylkismadur@hotmail.com. Íbúðin er laus frá ca 20 mars. |
|
Föstudagurinn 27. febrúar 2004 GARFIELD Þar sem ég var að skoða heimasíðuna mína í morgun rakst ég á í gegnum linkasafn Fylkissíðunnar, heimsíðu Kjartans Kjartanssonar, markmanns Fylkis, sem nú býr á Ítalíu. Ég sá að hann er með Garfield teiknimyndir inná milli hjá sér. Garfield hefur nú alltaf verið einn af uppáhalds teikninmyndafígúrunum mínum þannig að ætla ég að gera slíkt hið sama og koma með svona eina og eina seríú inn á milli. |
|
|
|
Þriðjudagurinn 24. febrúar 2004 FYRSTA GOLFMÓT LEIT.IS Kæru félagar , nú fer golfklúbburinn að taka til starfa eftir stutt vetrarfrí og ég vil biðja þá sem ætla að vera að vera með í ár að skrá sig með því að senda mér póst fyrir 1 MARS. Golfklúbburinn er í samningarviðræðum við völlin í Hansted um afslátt á vallargjöldum einungis fyrir félagsmenn sem framvísa félagsskirteinum Leitar.is Félagsgjaldið í ár verður 150 dk og mótsgjald 40 dk. Völlurinn opnar að öllum líkindum 1 Mars en æfingarsvæðið er opið núna og menn ættu að notfæra sér það og byrja að laga sveifluna fyrir komandi tímabil. Fyrsta mótið verður haldið föstudaginn 19. mars, og er kveðju mót fyrir okkar ágætu félaga og láforgjafar menn sem eru að fara til Nýja Sjálands þar sem þeir ætla að viðhalda félagsstarfsemi Leitar.is á suðrænum slóðum. Kveðja Óskar Email stinak@stofanet.dk Mobil 60129831 |
|
Sunnudagurinn 22. febrúar 2004 GOKART OG DJAMM Í ARHUS Í gær fór ég með nokkrum skólafélögum af dönsku línunni til Arhusa í Gokart. Þetta var snilldar ferð og óhætt að segja að það reyni soldið á óæfða vöfða að keyra þessa tæki. Eftirá fórum til heim til Lasse eftir mikið vesen að redda tonik og klaka, sem virðist illfáanlegt í Arhus. Setið var frameftir og farið síðan á vertshús, eins og þeir kalla það, þar sem spiluð var live musik. Snilldar dagur sem gaman væri að enduraka. |
|
Föstudagurinn 20. febrúar 2004 SKÓLAFERÐ TIL KÖBEN Farin var ferð til Köben til að skoða byggingar og byggingasvæði nún aí vikunni. Ekki þarf að taka það fram að þó nokkuð var um öl og aðra drykki í ferðinni. Farið var á lífið á miðvikudagskvöldinu og komu menn mis"snemma" heim og voru því misupplagðir daginn eftir til skoðanaferða. Áhugaverðasti staðurinn sem við skoðuðum voru íbúðir sem verið er að byggja á Íslandsbryggju. Þarna er um að ræða 84 íbúðir sem byggðar eru utaná gamlan korn tank. Áætlað er að verð íbúðann sé nálægt 35.000 Dkr á fermeter eða sem svarar um 420.000 Íslenskra króna. Dágott það. Reiknuðum við það út að dýrasta íbúðin myndi kosta um 105 miljónir, en hún er 250 m2. En það er nú margt borgandi fyrir að búa á ÍSLANDSBRYGGJU, ekki satt. |
|
Mánudagurinn 16. febrúar 2004 VEL HEPPNAÐ ÞORRABLÓT Þá er þorrablótið afstaðið og verður að segjast að það heppnaðist alveg einstaklega vel. Það var hljómsveitin Írafár án Birgittu sem hélt upp frábærri sveitaballa stemmingu og Gísli Marteinn Sjónvarpsmaður fór á kostum sem veislustjóri. Ekki má síðan gleyma þætti Skemtinefndar sem kom með hreint frábær skemtiatriði. |
|
Fimtudagurinn 12. febrúar 2004 ÞORRABLÓTIÐ Nú stendur undirbúningur fyrir þorrablótið okkar í Horsens sem hæst og er meðal annars Gummi Hreins að vinna myndaband sem skemtinefndin hefur tekið upp. Tókst mér af mikilli hæfni að veiða upp úr honum að atriði um okkur "hjónin" mig og Badda mun verða sýnt þetta kvöld. Ég sé nú svona aðeins fyrir mér að heimilislífið muni koma við sögu og sé ég þá helst fyrir mér að Baddi muni standa í eldhúsinu að elda og vaska upp, sem "konan" í sambandinu. Karlmennin í stjórninni eru svo að hittast í kvöld til að skera niður hákarl, baka flatkökur og smakka brennivínið sem verður á boðstólum á laugardaginn. Ég efast ekki um að við munum eiga góða stund við að útbúa þessa hluti sem og að fólki mun þykja flatkökurnar okkar góðar, eins og því þótti á síðasta blóti þegar við bökuðum. Ég segi bara skál og hlakka til að mæta á blótið. (sjá nánar hér) |
|
Mánudagurinn 9. febrúar 2004 HEIMSENDAR FISKIBOLLUR Við rákumst á þessa auglýsingu í Fréttablaðinu í morgun og varð strax hugsa til Magga nýja sveitastráks. Eins og allir í bekknum okkar vita þá er hann sérstakur áhugamaður um fiskibollur og og ekki líur sú vika að þær eru ekki á boðstólum á hans heimili. Nú er bara að taka sig til Maggi og panta, enda stendur að þær séu heimsendar. Okkur hlakkar öll að koma í næstu máltíð til þín. |
|
Mánudagurinn 9. febrúar 2004 AFMÆLISVEISLAN BÚIN Þar sem afmælisveislan er búin er rétt að segja frá því hvað fór af áfengi um kvöldið. Áætla má að það hafi á bilinu 120-140 manns rúllað í gegn þarna um kvöldið. Þegar mest var voru ca. 100-110 manns í salnum. Nánast allt áfengi kláraðist og allt gos auk þess sem fara þurfti aukaferðir í sjoppu bæði eftir klökum og gosi. Það sem kláraðist var: 25 fl léttvín, 15 ks bjór, 42 fl. Gin, 120 ltr. gos og 2 svartir pokar af klaka. Eins og sést á ofangreindri talningu þá var vel tekið til drykkjunnar þetta kvöldið enda heppnaðist veislan í alla staði eins og best verður á kosið. Ég vil þakka öllum sem mættu fyrir frábæra samveru og sérstaklega þeim sem lögðu til vinnu við undirbúninginn. |
|
Sunnudagurinn 8. febrúar 2004 ALDREI AÐ TREYSTA VINUM SÍNUM Það var svo sem auðvitað að maður gæti ekki treyst "fyrrverandi" vinum sínum. Í öllum undirbúningnum fyrir afmælið varð mér á að biðja Ragga Ragg að gera fyrir mig playlista fyrir kvöldið og lét honum því í hendur tölvuna mína ásamt lykilorðum. Auðvitað spurði ég sérstaklega að því hvort að hægt væri að treysta honum og virðist sem að vanti stoppara á milli eyrnanna á honum þar sem þessi setning staldraði aldrei þar við. Það enda því þannig að hann hleypti Badda Lofts í tölvuna mína til að breyta heimasíðunni minni þar sem lykilorðið inn á ftp sörverinn er geymt í minni. GRRRRRRRRR. (sjá næstu grein fyrir neðan) Ég verð samt að virðukenna að þetta var snilldar djók hjá þeim félögum, þó að ekki verði þeim boðin afnot af tölvunni minni í framtíðinni. |
|
Föstudagurinn 6. febrúar 2004 TILKYNNING: Ég er orðinn þreyttur á að vera svona piparsveinn, og mig langar í eiginkonu, svo ef einhver hefur áhuga endilega hafðu samband: Áhugamál mín eru Gin, Leeds, Teygjustökk, KR, Bókalestur, Nudd, Ferðalög og útivera. WORLD PEACE. Mitt motto er: GERÐU ÞAÐ Í DAG SEM ÞÚ GETUR ALDREI GERT AFTUR. Svo ef þú ert einhleyp á aldrinum 59 til 72, og ert til í hvað sem er, börn enginn fyrirstaða, endilega hafðu samband. E-mailið mitt er: Fylkismadur@hotmail.com |
|
Mánudagurinn 2. febrúar 2004 OPINBERT BRÉF FRÁ HEIÐARI LÖGGU Í EYJUM Ég var að fá þetta bréf frá honum Heiðari Löggu vini mínum í Eyjum. Mér sýnist reyndar kanski á öllu að hann sé núna fyrrverandi vinur minn, eða hvað??? Neinei alls ekki. Mér finnst þetta snilldar bréf hjá honum enda þekktur húmoristi í eyjunum. Bréfið hlóðar svona.
Djöfull ertu bilaður maður!!! Að láta tattóera Fylkismerkið á sig er merki um geðveilu innan fjölskyldunnar. Nú ertu brennimerktur það sem eftir er nema þú farir og látir skafa þetta af, sem ég á nú von á að þú gerir mjög fljótlega þegar aukaverkanirnar fara að koma í ljós. Þessar aukaverkanir eru stríðni og það verður litið á þig sem 2. – 3. flokks mann. Það hefði verið nær fyrir þig að láta setja FH merkið á þig eða þó ekki væri nema ÍBV merkið! En hvað um það, til hamingju með þennan áfanga í lífi þínu og vonandi verður ekki litið á þig sem nýjasta meðliminn í Hells Angels klúbbnum en það er talsvert stökk að fara úr RT í HE. Kveðja, Heiðar kaldi úr Eyjunum.
Ef einhverjir fleiri hafa athugasemdir í þessum dúr þá skal ég glaður birta þær. Alltaf gaman að fólki sem sér raunveruleikann á annan hátt en allir hinir. |
| Til baka á forsíðu |