|
Föstudagurinn 30. janúar 2004 ADDI TATTÚ Loksins kom að því að ég gæti safnað kjarki í mig til að fá mér tattú. Ég er búinn að hugsa þetta lengi en hef alltaf gugnað. Óskar Leedsari ætlaði reyndar að koma með mér of fá sér Leeds merkið í leiðinni en það var bara ekki hægt að bíða lengur. Eftir hvatningu frá Gumma Þór þá ákvað ég að láta vaða. Um er að ræða FYLKISMERKIÐ góða en sá klúbbur er mér einstaklega kær. Þetta var náttúrlega alls ekki eins sárt og ég var búinn að gera mér í hugarlund og samtals tók þetta ekki nema rúman hálftima. Þetta var gert á tattú stofu Hells Angels gengisins hérna í Horsens og var höfuðpaurinn viðstaddur. Sá sem gerði var líka anski skrautlegur eins og sést á myndunum, en hann er búinn að láta tattúvera andlitið á sér. Hægt er að sjá myndir og video af þessu hérna á síðunni. |
|
Sunnudagurinn 25. janúar 2004 HEIMSÓKN TIL ÓÐINSVÉ Við tókum okkur til í gær ég, Maggi og Hinni og fórum til Óðinsvéa til að hitta gömlu skólafélaga þeirra úr tækniskólanum á Íslandi. Þar sem þeir eru í BTH skólanum í óðinsvé fórum við og skoðuðum þann skóla. Hægt er að sjá myndir af þessu á myndasíðunni. Í partýi sem við fórum í um kvöldið sá ég einn töffaðasta upptakara sem ég hef nokkurn tímann séð. Búið var að smíða statív fyrir flöskuna og ekki þurfti mikið að hafa fyrir að opna. Hægt er að sjá videó af þessu hérna. |
|
Þriðjudagurinn 20. janúar 2004 BOÐ Í AFMÆLIÐ MITT Þá er loksins að koma að því að maður nái fullum þroska og komist í fullorðinna manna tölu. Bráðum get ég get ekki lengur sagt að ég sé á sama aldri og hinir í skólanum. Loksins verður maður að viðurkenna að þetta eru bara krakkar sem eru með manni í skóla enda þeir sem ég nú umgengst flestir einungis á fertugsaldri og jafnvel sumir bara á þrítugsaldri. Úffffff. Þó að raunverulegt afmæli sé ekki fyrr en þann 11. febrúar mun ég halda upp á það þann 6. febrúar í Round table salnum í Horsens sem er staðsetturá Søndergade 2-4. Herlegheitin byrja kl.18.30 fyrir íslendingana og þá útlendinga sem ég þekki best. Aðrir skólafélagar mæta örlítið seinna, eða um 8 leytið. Þó að byrjað verði snemma verður ekki boðið upp á mat þannig að fólk er beðið að borða áður. Eittvað mun svo verða um ræðuhöld og skemtiatriði og mun Gummi Þór stjórna þeim. Ég vona að ég sjá sem flesta íslendinga í þessari síðustu veislu sem ég mun halda í Danmörku áður en við flytjum niður til nýja Sjálands. Og plís, engar gjafir sem slíkt. Ég get ekki tekið neitt af þeim með mér niðreftir. |
|
Þriðjudagurinn 13. janúar 2003 SKÓLINN BYRJAÐUR AFTUR Eftir gott og letilegt jólafrí er skólinn nú loksins byrjaður aftur. Já ég segi loksins. Það ernú kanski vegna þess að því fyrr sem ég klára þessa önn því styttra er í að við förum í heimsreisuna okkar. Við erum núna búnir að panta og BORGA flugmiðana okkar hringinn í kringum jörðina og verður lagt af stað 23. mars. Flogið verður í gegnum bandaríkin til að byrja með og Asíu á bakaleiðinn. Samtals verðum við í 58 klst í loftinu, auk biðtíma á flugvöllum og ferðalögum til og frá þeim. Á næstu vikum mun ég endurbæta heimasíðuna að einhverju leiti og bæta inn síðu þar sem sagt er nánar frá þessu ferðalagi okkar. Meðfylgjandi mynd er af eyjunni sem við munum gista á í 4 nætur. |
|
Fimtudagurinn 1. jnaúr 2004 ÁRAMÓT Í EYJUM - ÞVÍÍÍÍÍÍLÍÍÍÍÍÍKT STUÐ Að þessu sinni ákvað ég að eyða áramótunum með Stebba bróðir og hans fjölskyldu í Vestmannaeyjum. Ég get ekki sagt neitt annað en þvíiíííílííííkt stuð. Annað eins hef ég ekki upplifað á áramótum áður. Að venju var farið að borða hjá "tengdo" hans Stebba og á eftir í annað hús að horfa á skaupið sem var í besta lagi núna. Á ármótum var að sjálfsögðu skotið upp, stórslysalaust, þó að stæðsta kakan hafi sprungið í höndunum á brósa. Sú kaka logaði lengi og vel og gerðu krakkarnir sér þann leik að bæta öðrum kökum á til að viðhalda eldinum. Ekki var meira um það hugsað fyrr en slökkviliðið stóð öllum að óvörum í garðinum til að slökkva í þessu litla báli að beiðna nágrannanna. Eitthvað hefur þetta kostað bæjarfélagið og það vesta er að Ívar greyið fékk ekki útkall, en hann var á bakvagt hjá slökkviliðinu og staddur í þessu partýi. Það er svo ekki fyrr en um 4 leytið sem Vestmannaeyingar fara að hugsa um að koma sér á ball, enda stendur það til kl. 8 um morguninn. Ég dugði nú reyndar ekki nema til um 7 leytið en það er önnur saga. Ég get bara sagt að þetta eru ein skemtilegustu áramót sem ég hef upplifað og mæli með einum slíkum í Eyjum við hvern sem er. |
| Til baka á forsíðu |