Miðvikudagurinn 31. desember 2003

FJÖR Á AKUREYRI

Um síðust helgi skrapp ég norður á Akureyri til að hitta Ingu "BRINGU" KA fan vinkonu mína. Ég gisti í herbergi no. 2 hjá henni í vesturálmunni eins og hún er kölluð. Það er ekki oft sem maður er í svo fjölmennum kvennahóp eins og þegar farið er að hitta Ingu. Farið var í Sjallan á Laugardagskvöldinu og var mikill fjöldi manns þar, enda Paparnir að spila. Einnig fór ég á skíð bæði á sunndeginum og mánudeginum í Hlíðarfjalli. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég prófið báða dagana að fara á snjóbretti eins og hinir unglingarnir. Þetta gekk ansi brösulega og verð ég að segja að ég  ber virðingu fyrir þeim sem geta staði vel á þessu fyribæri. Að vísu tókst mér undir lokin að standa þetta þolanlega eins og meðfylgjandi video og myndir bera með sér.

Þessa dagana er ég staddur í Vestmanna eyjum og birti ég myndir af því eftir áramótin.

 

Föstudagurinn 19. desember 2003

ÚTVARP HROSSANES Á NETINU

Núna í kvöld mun Gummi Hreins opna formlega Útvarp Hrossanes á netinu. Athöfnin mun verða kl. 20.00 að dönskum tíma, þ.e. 19.00 að íslenskum. Að sjálfsögðu verðum við bakkabræður, ég og Baddi, viðstaddir þennan merka viðburð í menningarsögu bæjarins. Vonast er til að þetta lífgi upp á menningarheim Horsensbúa og verði miðill að enn meiri fróðleik og kjaftagangi um menn og málefni innan bæjarins. Hægt er að klikka á myndina til að linka sig beint inn á útvarpið. Við óskum Guðmundi velfarnaðar í sínu nýja starfi sem útvarpstjóra. Spurning er hvort að þetta nýja starf hans gangi svo vel að ekki verði tími til að sinna skólanum.

 

Fimtudagurinn 11. desember 2003

JABADABBADÚÚÚÚÚÚÚÚ - PRÓFIN ERU BÚIN

Loksins loksins loksins eru þessi önn búinn. Þetta er búið að vera strangt síðustu vikurnar og langur "vinnudagur" hérna í skólanum. Dómsdagur var í gær og og kynntum við verkefnið fyrir 6 kennurum og 2 sensorum og gekk þetta allt saman vonum framar. Einkunin varð 13 þannig að ekki er hægt að kvarta. Hérni í DK þá er einkunnakerfið soldið öðruvísi en hæsta einkun er 13 og næst hæsta er 11. Hér er aldrei gefið 12. Síðan þarftu 6 til að standast. Ef einhver fellur þá fær hann 5 eða 0,3. Þegar gefið er 5 þá er verið að segja að þetta hafi ekki verið nógu gott en þa ðsé í fínu lagi að reyna aftur. Ef þú færð 0,3 er helst ætlast til að þú látir ekkert sjá þig aftur.

Núna verður bara chilað og tekið því rólega þangað til heim verður komið þann 22. desember.

 

Þriðjudagurinn 9. desember (DAGINN FYRIR PRÓF)

ER ÓÖLD Á ÍSLANDI????

Það er núna dag eftir dag að maður les á mbl.is að um vopnuð rán sé að ræða á Íslandi. Er þetta að breytast í eitthvað óaldar ríki??  Maður prísar sig bara sælan að búa hérna í Horsens þar sem bara einu sinni hefur verið reynt að brjótast inn til mín, einu sinni stolið myndavél frá mér og reyndar Badda líka, 2 sinnum verið kveikt í Mosanum og þar af einu sinni rækilega, bílnum hans Óla var stolið en fanst aftur eftir að hafa verið notaður í innbrot í Arhusog svona gæti maður áfram talið. Eitt er þó alveg víst og það er að við erum ekki að horfa upp í haglabyssuhlaupið eða skammbyssuhlaupið í neinum af þessum "ránum". Má ég þá frekar biðja um öryggið hérna.í Horsens en óöldina heima á klaka.

 

Föstudagurinn 5. desember 2003

FRÉTT ÚR MBL.IS;  Ég verð að láta þetta vaða hingað inn. Stuðmenn hafa greinilega mikið álit á okkur félögunum, mér og Badda.

Stuðmenn frumsýna tvö myndbönd: Limaburður og sálarflækjur

Í gær var hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, önnum kafin við upptökur á tveimur myndböndum vegna nýútkominnar plötu sem ber titilinn Á Hlíðarenda. Eru þau við lögin "Ekki klúðra því" og "Hef ég heyrt þetta áður?"

Jakob Frímann Magnússon, hljómborðsleikari og söngvari, segir að myndböndin tvö verði frumsýnd hvort sínum megin við helgina.

"Í öðru laginu, "Ekki klúðra því", njótum við aðstoðar atvinnuleikaranna Ólafíu Hrannar Jónsdóttur og Þrastar Guðbjartssonar en svo koma okkar gömlu fylginautar, Addi og Baddi, ásamt fleiri Íslendingum af sömu kynslóð sem eru þekktir fyrir fágaðan limaburð!"

Jakob segir að seinna myndbandið fjalli um sálræna erfiðleika vegna ritstíflu lagahöfundar.

"Hann man ekki hvort það voru Bítlarnir, Steely Dan, Abba eða hann sjálfur sem samdi lagið, enda er það fullt af kunnuglegum tilvísunum. Í þessu myndbandi látum við meira reyna á leikhæfileika Stuðmanna sjálfra þar sem þeir sameinast um að kryfja sálarflækjur lagahöfundar til mergjar."

Stuðmenn troða upp á NASA annað kvöld og munu vafalaust leika þar lög af nýju plötunni í bland við þau gömlu góðu.

 
Til baka á forsíðu